Skessuhorn - 28.09.2016, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 201626
Ný stjórn FEBAN, Félags eldri
borgara á Akranesi og nágrenni, tók
til starfa í vetrarlok. Farið var að
hugleiða hvernig best væri að auka
starfið og fá fleiri félagsmenn til að
taka þátt en tiltölulega fáir eru virkir
þátttakendur, eða u.þ.b. 150 af tæp-
lega 700 félögum. Jóhannes Finnur
Halldórsson nýr formaður taldi það
athugandi að leita til félaga okkar í
Tønder og forvitnast hvað þeir gera
fyrir sína félaga. Tønder stendur
framarlega í þessum málaflokki í
Danmörku. Haft var samband við
Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra
Akraneskaupstaðar og henni kynnt
þessi hugmynd. Hún tók strax vel
í hana og þá var haft samband við
Ældrerådet í Tønder (öldrunaráð-
ið). Þeir tóku erindinu mjög vel
og buðu okkur að koma til þeirra
15. og 16. september til að kynn-
ast starfinu. Ákveðið var að senda
sex manna sendinefnd til Tønder.
Nefndina skipuðu Regína Ásvalds-
dóttir bæjarstjóri, Jóhannes Finn-
ur Halldórsson formaður og Júl-
íus Már Þórarinsson varaformað-
ur FEBAN, Vilborg Þórunn Guð-
bjartsdóttir bæjarfulltrúi fyrir vel-
ferðar- og mannréttindasvið, Ólína
Ingibjörg Gunnarsdóttir hjúkrun-
arfræðingur fyrir sjúkrahúsið og
Höfða og Ragnheiður Helgadótt-
ir hjúkrunarfræðingur fyrir heima-
hjúkrun. Nefndin er að vinna að
sameiginlegri skýrslu um ferðina
sem verður birt í byrjun nóvem-
ber. Hér í Skessuhorni birtum við
hins vegar stutta ferðalýsingu ásamt
ljósmyndum og frásögn af aðbúnaði
eldri borgara í Tønder. Skagamenn
og í raun Íslendingar allir geta lært
sitthvað af frændum vorum Dönum
í þessum mikilvæga málaflokki.
Heimsóknin
Sveitarfélagið Tønder og öldrunar-
ráðið höfðu undirbúið móttökuna af
miklum metnaði og skipulagt fundi
og kynningar af nákvæmni og fag-
mennsku. Tønder er byggðakjarni
með rúmlega 7.000 íbúa, rétt eins
og Akranes, en alls eru 37.916 íbú-
ar í sveitarfélaginu öllu. Flatarmál
sveitarfélagsins er 1.279 ferkíló-
metrar, vegir sveitarfélagsins eru
1.800 km auk 80 km vega ríkisins.
Allir vegir sem við fórum um voru
rennisléttir og ekki sá ég nokkra
holu eða skemmd. Fyrirbyggjandi
viðhald er stefna sveitarfélagsins því
það er miklu hagkvæmara en við-
gerðir á skemmdum vegum. Sveit-
arfélagið er eitt af landmestu sveit-
arfélögunum í Danmörku, en jafn-
framt það dreifbýlasta. Samt tekst
íbúum þar að halda uppi hámarks
þjónustu. Taka ber það fram að
sveitarfélög í Danmörku fá helm-
ingi hærri tekjur frá íbúunum og
ríki, en sveitarfélög á Íslandi, og
er það stór hluti af ástæðunni fyrir
góðri þjónustu sveitarfélaga í þess-
um málaflokki.
Velferðarþjóðfélag
Hendrik Frandsen bæjarstjóri sagði
að í Danmörku væri velferðarstefna
ráðandi stjórnarstefna. Það þýðir að
hagur fólksins ræður stefnunni. Ekki
hvað er ódýrast hverju sinni, heldur
hvað er hagkvæmast fyrir þjóðfélag-
ið. Það er því lögð rík áhersla á að
vinna forvarnarstarf því það er svo
miklu hagkvæmara að halda fólki
frísku og virku í daglegu lífi en hafa
það á sjúkrastofnun. Sveitarfélagið
fær fjármagn frá ríkinu og verð-
ur síðan að gæta þess að það nýtist
sem best til þeirra þátta sem sveit-
arfélaginu ber að sjá um. Framlag
sveitarfélagsins til eldri borgara er
19% til 20% af útgjöldum sveitar-
félagsins. Það er lögbundið í Dan-
mörku að sveitarfélögin veiti öldr-
uðum þá þjónustu sem þeir þurfa.
Tønder er raunar í fararbroddi í
Danmörku er varðar þjónustu við
aldraða. Við sáum það greinilega að
þeir leggja mikinn metnað í að þessi
málaflokkur sé til fyrirmyndar.
Öldrunarráðið
Öldrunarráðið (Ældrerådet) í Tøn-
der Kommune starfar samkvæmt
lögum um öldrunarráð. Ráðið er
skipað 13 mönnum, tveimur frá Bre-
debro, Højer, Løgumkloster, Nørre-
Rangstrup, Skærbæk og þrír frá
Tønder. Þetta eru sveitarfélögin sem
voru sameinuð. Með öldrunarráðinu
starfar starfsmaður bæjarfélagsins.
Bæjarfélagið leggur ráðinu til fjórar
milljónir danskra króna á ári. Öldr-
unarráðið starfar óháð fjárveiting-
unni til að tryggja að veitt sé sú þjón-
usta sem er skylt að veita án tilliti til
fjárveitinga. Stefnt er að enginn þurfi
að bíða eftir þjónustu lengur en sex
vikur. Þetta á við alla sem þurfa að
fá aðstoð sveitarfélagsins hvort sem
er vegna veikinda, fötlunar eða öldr-
unar. Allar ákvarðanir er varða aldr-
aða eru bornar undir öldrunarráðið
sem getur komið með erindi inn til
bæjarstjórnar. Öll mál eru því unn-
in í góðri samvinnu og lausn fundin
sem öllum líkar.
Matarpakkar
Eldri borgarar geta fengið mat frá
miðlægu eldhúsi. Matarpakkinn er
sendur heim einu sinni í viku fyr-
ir alla vikuna. Maturinn er í loft-
tæmdum umbúðum og er gerður til
geymslu í ísskáp og til upphitunar
í örbylgjuofni. Pakkinn inniheldur
morgunmat, hádegismat, eftirmið-
dagskaffi og kvöldmat. Dagskammt-
urinn kostar 110 dkr. eða 1.900 ís-
lenskar krónur.
Uppörvun
Mikil áhersla er lögð á að ná til ein-
stæðinga, sem sitja óvirkir heima og
fá þá til að taka þátt í félagsstarfi.
Heimsókn Skagafólks til Tønder Kommune
Sendinefndin frá Akranesi fyrir framan ráðhúsið í Tønder. Veröndin við sjúkraskýlið í Skærbæk.
Lyftibúnaður í herbergjum sjúkraskýlanna.
Borðstofa í sjúkraskýlinu í Skærbæk.
Eldhúsið í félagsaðstöðu eldri borgara.
Formenn eldriborgara og bæjarstjórarnir. Jóhannes Finnur, Anneliese Bucka,
Regína Ásvaldsdóttir og Hendrik Frandsen.
Líkamsræktarstöðin í Skærbæk.
Tölvustofan í félagsaðstöðu eldri borgara.
Heilsugæslan í Skærbæk.