Skessuhorn - 28.09.2016, Qupperneq 28
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 201628
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
LAUSNIN HÖFÐASELI
Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00
alla virka daga
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
SPEGLAR
Sunneva Dís Freysdóttir og Díana
Ósk Víðisdóttir, 9 ára gamlar, héldu
nýverið tombólu við Krónuna á
Akranesi og söfnuðu 6.980 kr. fyr-
ir Rauða krossinn. Rauði krossinn á
Akranesi þakkar þeim kærlega fyrir
þeirra framlag.
-fréttatilk.
Héldu
tombólu
Haustþing Samtaka
sveitarfélaga á Vest-
urlandi verður hald-
ið á Hótel Stykkis-
hólmi miðvikudaginn
5. október. Á þingið
mæta fulltrúar allra
sveitarfélaga á Vest-
urlandi og ræða mál-
efni komandi vetr-
ar. Dagskrá þings-
ins verður að mestu
með hefðbundnu sniði.
Formaður eða fram-
kvæmdastjóri Sam-
bands íslenskra sveit-
arfélaga flytur ávarp og stóra mál-
ið á dagskrá er fjárhagsáætlun SSV
fyrir komandi ár. Þá má búast við
að ráðherra sveitarstjórnarmála
og þingmenn kjördæmisins mæti
og haldi tölu undir liðnum „ávörp
gesta“, eins og venjan er. Sérstakt
þema Haustþings SSV 2016 verð-
ur ferðaþjónusta en einnig verður
lögð áhersla á kynningu og umræð-
ur varðandi Samgönguáætlun Vest-
urlands.
kgk
Haustþing SSV í næstu viku
Svipmynd frá síðasta Haustþingi SSV sem haldið var
á Hótel Glym í Hvalfirði. Fulltrúar Akraneskaupstaðar
næst í mynd.
Straumur ferðamanna í Snæfellsbæ
hefur aukist verulega á undanförnum
árum og má búast við að þeir verði
um hálf milljón á þessu ári. Til að
taka á móti þessum fjölda hefur Snæ-
fellsbær reynt að skipuleggja hvernig
dreifa megi ferðamönnum um sveit-
arfélagið, til að tryggja vernd nátt-
úruperla og koma í veg fyrir of mik-
inn ágang ferðamanna. Skipulagn-
ingarvinnan er liður í vinnu sveitar-
félagsins að nýju aðalskipulagi sem
taka á gildi næsta vor. „Við höf-
um reynt að hugsa fram í tímann
og byrjuðum fyrir fjórum árum að
skipuleggja hvernig við gætum dreift
ferðamönnum í Snæfellsbæ. Við fór-
um í það að skoða náttúruperlur sem
við töldum mjög áhugaverðar en
voru kannski ekki mikið sóttar vegna
þess að aðgengi var ekki gott,“ seg-
ir Kristinn Jónasson bæjarstjóri Snæ-
fellsbæjar í samtali við Skessuhorn.
Framkvæmdir við
náttúruperlur
Kristinn segir að í framhaldinu hafi
svæði verið skipulögð. „Við veltum
því fyrir okkur hvert við myndum
vilja að ferðamenn færu og hvar við
vildum ekki fara í framkvæmdir, þ.e.
hvar við vildum hafa áfram ósnortna
náttúruna. Hvernig eigum við að
taka á móti fjölda ferðamanna, og
hvert viljum við beina þeim? Í fram-
haldi af því skoðuðum við hvernig
við gætum best komið því við að taka
á móti ferðamönnum á hverjum stað
innan sveitarfélagsins.“ Snæfells-
bær sótti um styrki til framkvæmda á
þessum stöðum og varð eitt af fyrstu
sveitarfélögum landsins til að fá fjár-
magn í gegnum Framkvæmdasjóð
ferðamannastaða. „Fyrstu staðirn-
ir sem við fórum í voru til dæmis út-
sýnisplan í Rifi, en þar voru ferða-
menn mikið á þjóðveginum, í stór-
hættu, með sjónauka og myndavélar
að skoða fuglalífið. Síðan fórum við
í það að gera bætt aðgengi að Bjarn-
arfossi í Staðarsveit, héldum síðan
áfram og erum nú að gera nýjan án-
ingarstað við Svöðufoss sem er fyrir
ofan Rif. Svona getum við lengi tal-
ið, það er fullt af góðum hlutum sem
við höfum verið að gera til að mæta
þessum fjölda ferðamanna,“ útskýr-
ir Kristinn. Hann segir að auk þess
séu mun fleiri staðir í sveitarfélaginu
vinsælir meðal ferðamanna, svo sem
Vatnshellir, svo eitthvað sé nefnt. Þá
hafi Snæfellsbær einnig byggt upp
tjaldsvæðin í Ólafsvík og á Hellis-
sandi þar sem hefur verið í kringum
40% aukning milli ára.
Bætt aðgengi dreifir
ferðamönnum
Kristinn segir sveitarfélagið einn-
ig vera í góðu samstarfi við þjóð-
garðinn. „Það er mikil uppbygging
í þjóðgarðinum. Meðal annars hafa
þeir verið að laga göngustíga, búa
til bílastæði, útsýnispalla og fleira.
Reynslan sýnir að þegar við erum
búin að búa til gott aðgengi, eins og
t.d. góðan göngustíg, þá náum við
að dreifa ferðamönnum um svæðið.
Með því að búa til góða aðstöðu á
þessum svæðum þá fara ferðamenn-
irnir á milli þessara staða.“ Hann
nefnir Svalþúfu sem dæmi. Þar hafi
orðið gjörbreyting eftir að farið var
í að útbúa gott bílastæði og góða
göngustíga um svæðið. Eins hafi um-
ferð við Bjarnarfoss aukist mikið eft-
ir að aðgengi að fossinum var bætt.
„Við erum mjög meðvituð um hvað
við erum að gera. Við beinum fólki
á ákveðna staði og leggjum áherslu á
að við séum að gera þetta á okkar for-
sendum, sem við teljum að sé svæð-
inu fyrir bestu. Snæfellsbær vill vera
áfram í góðu samstarfi við ferðaþjón-
ustuaðila en þjónustan sem sveitar-
félagið veitir verður að vera á okkar
forsendum en ekki þeirra sem skipu-
leggja ferðirnar. Við viljum geta tek-
ið á móti sem flestum en það þarf að
gera það skipulega. Það sem skiptir
mestu máli er að gera hlutina þannig
að náttúran sé í forgangi og að fram-
kvæmdirnar séu í sátt við íbúa sveit-
arfélagsins“ segir hann. „Því ef við
eyðileggjum náttúruna, þá verður
ekkert til að skoða eftir nokkur ár.“
grþ
Ferðaþjónusta skipulögð með
náttúrvernd að leiðarljósi
Snæfellsbær hefur meðal annars bætt aðgengi að Bjarnarfossi með góðum árangri. Ljósm. wolfgangstrobel.com.
Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ.