Skessuhorn


Skessuhorn - 30.11.2016, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 30.11.2016, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 201630 Þórður Alexandra LITIR: ERLA FRÆNKA KANN SKO AÐ BAKA Svunta með merkingu Sundpoki með merkingu Prjónahúfa með nafni Handklæði með nafniVinnupeysa með nafni Höfuðklútur með nafni LITIR: 3.990 ISK 3.200 ISK 1.480 ISK 1.980 ISK 3.200 ISK 2.900 ISK LITIR: LITIR: LITIR:LITIR: Samfella með merkingu Bolur með mynd/texta 1.980 ISK 3.500 ISK Frændi er langbestur LITIR: Barna 2.800 ISK Fullorðins 3.50 ,- ISK LITIR: Persónulegt jólakort með umslagi 130,- STK. 666-5110 Sendum frítt um allt land Þórður Alexandra LITIR: ERLA FRÆNKA KANN SKO AÐ BAKA Svunta með merkingu Sundpoki með merkingu Prjónahúfa með nafni Handklæði með nafniVinnupeysa með nafni Höfuðklútur með nafni LITIR: 3.990 ISK 3.200 ISK 1.480 ISK 1.980 ISK 3.200 ISK 2.900 ISK LITIR: LITIR: LITIR:LITIR: Samfella með merkingu Bolur með mynd/texta 1.980 ISK 3.500 ISK Frændi er langbestur LITIR: Barna 2.800 ISK Fullorðins 3.50 ,- ISK LITIR: Persónulegt jólakort með umslagi 130,- STK. 666-5110 Sendum frítt um allt land Þórður Alexandra LITIR: ERLA FRÆNKA KANN SKO AÐ BAKA Svunta með merkingu Sundpoki með merkingu Prjónahúf f i Handklæ i með nafniVinnupeysa með nafni öfuð lútur með nafni LITIR: 3. 9 ISK 3.200 ISK 1 481.980 ISK 3.200 ISK 2.900 ISK LITIR: LITIR: LITIR:LITIR: Samfella með merkingu Bolur með mynd/texta 1.980 ISK 3.500 ISK Frændi er langbestur LITIR: Barna 2.800 ISK Fullorðins 3.50 ,- ISK LITIR: Persónulegt jólakort með umslagi 130,- STK. 666-5110 Sendum frítt um allt land Nafn: Sigríður Björk Kristinsdótt- ir Fjölskylduhagir/búseta: Gift 3ja barna móðir, búsett á Akranesi með maka og yngsta syninum, sem er 17 ára. Starfsheiti/fyrirtæki: Grunn- skólakennari við Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit þar sem ég kenni heimilisfræði, textílmennt og smíði. Einnig er ég í meistaranámi í HÍ. Áhugamál: Mörg en aðallega handavinna og ferðalög. Dagurinn: Föstudagurinn 25. nóvember 2016. Klukkan hvað vaknaðirðu og hvað var það fyrsta sem þú gerðir? Ég vaknaði um 7 leytið og það fyrsta sem ég gerði var að fara á klósettið og hafa mig til fyrir vinnudaginn. Hvað borðaðirðu í morgunmat? Ég fékk mér AB mjólk með mús- líi. Hvenær fórstu til vinnu og hvernig? Við erum þrjár sem keyrum saman í vinnuna og þessa vikuna var ég að keyra þannig að ég sótti samstarfsfélaga mína og saman héldum við til vinnu. Fyrstu verk í vinnunni: Fyrsta verkið er vanalega að fá mér kaffi- bolla með samstarfsfélögunum og spjalla smá. Ég er vanalega ekki að kenna í fyrsta tíma en þennan dag tók ég að mér að kenna 1. og 2. bekk. Hvað varstu að gera klukkan 10? Þá var ég að kenna líflegum og skemmtilegum 2. bekkingum textílmennt. Hvað gerðirðu í hádeginu? Borðaði hádegismat í skólanum. Hvað varstu að gera klukkan 14: Þá var ég á leiðinni heim úr vinnu. Hvenær hætt og það síðasta sem þú gerðir í vinnunni? Á föstu- dögum fæ ég oft að fara fyrr úr vinnunni þar sem ég þarf að versla fyrir heimilisfræðina og geri það vanalega utan vinnutíma. Mitt síð- asta verk var að kíkja yfir skipulag næstu viku og útbúa innkaupalista. Hvað gerðirðu eftir vinnu? Ég fór í ræktina og um leið og ég kom heim úr vinnu og eftir það tók við verkefnavinna með félögum í náminu mínu en við vorum að undirbúa kynningu á verkefni sem við fluttum á mánudeginum. Síðan fór smá tími í að undirbúa starfs- mannahitting sem var heima hjá mér um kvöldið. Hvað var í kvöldmat og hver eld- aði? Það var farið auðveldu leiðina þennan daginn og makinn fór og sótti hamborgara í Olís Nesti. Ég eldaði reyndar fyrir soninn sem velur að borða ekki kjöt svo hann fékk grænmetisborgara. Hvernig var kvöldið? Mjög skemmtilegt. Ég fékk vinnufé- lagana í heimsókn og við skemmt- um okkur saman. Við vorum með leynigest í hittingnum okkar sem reyndist vera Sigga Kling – virki- lega skemmtileg manneskja og það var mikið hlegið. Hvenær fórstu að sofa? Rúm- lega eitt. Hvað var það síðasta sem þú gerðir áður en þú fórst að hátta? Las í smá stund – eins og öll kvöld. Hvað stendur uppúr eftir dag- inn? Yndislegur textílmennta- tími með snillingunum mínum í 5. bekk og skemmtilegt kvöld með samstarfsfélögum mínum. Eitthvað að lokum? Gleðileg jól! Kennara við Heiðarskóla Dag ur í lífi... Knattspyrnuskóli var í Íþrótta- húsinu í Ólafsvík um liðna helgi. Að honum stóð Ungmennafélag- ið Víkingur/Reynir. Yfir 70 þátt- takendur af báðum kynjum tóku þátt, strákar og stelpur frá 7. flokki og upp í 2. flokk. Var skólinn og helgin öll hin glæsilegasta, boð- ið var upp á morgunmat, hádegis- mat og kvöldmat. Á laugardegin- um fengu svo allir iðkendur frítt í sund í sundlaug Snæfellsbæjar. Elstu börnin hófu helgina á æfingum á föstudagskvöldið. Á laugardeginum voru svo æfing- ar meira og minna allan daginn. Ásamt þjálfurunum Ejub Purise- vic, Suad Begic og Birni Sólmari komu góðir gestir. Það voru þeir Heimir Hallgrímsson og Þor- grímur Þráinsson sem héldu fyrir- lestur um knattspyrnuiðkun, mat- aræði, hvíld, hugarfar og annað sem þarf til að verða góður fót- boltamaður eða -kona. Kvöldvaka var á laugardagskvöldinu og þar var sýnd myndin Jökullinn logar – leiðin okkar á EM. Fjallar myndin um undirbúning karlalandsliðsins í fótbolta fyrir EM 2016. Á sunnu- deginum voru æfingar og endaði knattspyrnuskólinn á því að allir þátttakendur fengu treyju. Óhætt er að segja að helgin hafi heppn- ast afar vel og fóru allir heim til sín með bros á vör eftir skemmtilegar æfingar og að fá að hitta kappa eins og Heimi og Þorgrím sem gáfu sér góðan tíma til að ræða við og sinna öllum. Að baki svona helgi liggur mik- il undirbúningsvinna og skipu- lagning. Hugmyndina að knatt- spyrnuskólanum átti Ejub Purise- vic sem hann kom á framfæri við stjórn Víking/Reynis fyrir nokkru. Leist stjórninni strax vel á hana en í stjórninni eru þau Rán Kristins- dóttir, Laufey Helga Árnadóttir, Hrafnhildur Arna Árnadóttir, Jó- hann Pétursson, Garðar Kristjáns- son og Margrét Sif Sævarsdótt- ir, og fór á fullt í að aðstoða hann í þessu. Útkoman var svo þessi glæsilega helgi sem allir geta verið stoltir af. þa Knattspyrnuskóli var í Snæfellsbæ um helgina Jón Rúnar Hilmarsson opnaði um liðna helgi ljósmyndasýningu í Safnahúsi Borgfirðinga við Bjarn- arbraut í Borgarnesi. Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur safnstjóra tóks opnunin vel og ágætlega var mætt. Þau hjón, Jón Rúnar og Alexandra, eru nú að flytja búferl- um úr Hvalfjarðarsveit til Njarð- víkur og er sýningin því ákveð- ið kveðjuverkefni þeirra á þessum slóðum. mm/ Ljósm. Halldór Óli Gunnarsson Opnaði ljósmynda- sýningu í Borgarnesi www.smaprent.is Gjafavöruhugmyndir

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.