Skessuhorn


Skessuhorn - 30.11.2016, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 30.11.2016, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 201616 Talsverð breyting verður á hinni landstóru jörð, Steindórsstöðum í Reykholtsdal, um næstu áramót. Á kvótamarkaði 1. nóvember síðast- liðinn seldu bændurnir mjólkur- kvótann og því mun um næstu ára- mót leggjast af kúabúskapur á jörð- inni, en þar hafa verið kýr svo lengi sem elstu menn muna. Samkvæmt nýjum búvörulögum var þetta síð- asti frjálsi markaðurinn með mjólk- urkvóta. Á næsta ári taka við nýj- ar reglur og ríkið hefur milligöngu með kaup á mjólkurkvóta sem bændur vilja afsetja, en gegn mun lægri greiðslu en undanfarið hef- ur þekkst á frjálsum markaði tvisv- ar á ári. Verðið mun síðan enn frek- ar lækka árið 2018. Þórarinn Skúla- son og Guðfinna Guðnadóttir eru bændur á Steindórsstöðum. Þau hyggjast nú leggja aukna áherslu á móttöku ferðamanna á Steindórs- stöðum, en árið 2010 byrjuðu þau að selja ferðafólki gistingu í gamla íbúðarhúsinu á bænum. Hluta þeirra peninga sem þau fá nú fyrir mjólk- urkvótann munu þau leggja í end- urbætur á vélaskemmu og hyggjast auka gistirými og stækka eldunarað- stöðu sem ferðamenn hafa afnot af. Síðustu forvöð að fá gott verð Þórarinn bóndi segir það vissulega hafa verið stóra ákvörðun að selja mjólkurkvótann og í framhaldinu kýrnar og geldneyti. Slíkri ákvörð- un fylgi blendnar tilfinningar enda um mikla búháttabreytingu að ræða. Þau hafi hins vegar metið stöð- una þannig að réttast væri að gera þetta nú, meðan enn hafi verið von á þokkalegu verði fyrir kvótann og heilsa þeirra væri góð til að byggja upp og takast á við önnur verkefni. Kvótann seldu þau fyrir ríflega 200 krónur lítrann. Samkvæmt nýju bú- vörusamningunum fást 137 krón- ur fyrir lítrann á næsta ári en ekki nema 118 krónur árið 2018. „Jafn- vel þótt við höfum gert mikið fyr- ir fjósið árið 1995 hefði það ver- ið á undanþágu í hámark níu ár til viðbótar. Þetta er básafjós en til- skipanir sem Íslendingar hafa tek- ið upp að hætti Evrópusambandsins segja að slíkum fjósum eigi að vera búið að loka áður en langt um líð- ur. Þá hefðum við annað hvort þurft að byggja nýtt fjós og steypa okkur í skuldir sem því nemur, eða horfa í aðra átt. Ekkert barnanna okk- ar var tilbúið að taka við búinu eins og það er í dag og því völdum við að fara þessa leið. Við erum líka á þeim aldri að hálft okkar líf höfum við verið að mjólka kýr og finnst við eiga það inni að leggja drög að ein- faldari búháttum á efri árum,“ seg- ir Þórarinn. Guðfinna tekur undir þetta og bendir á að erfitt sé að fá af- leysingu þegar rekin er tvíþætt starf- semi á jörðinni, bæði gistiþjónusta og kúabú, því atvinnugreinar þess- ar eru í eðli sínu ólíkar. „Það er ein- faldlega auðveldara að fá einhvern til að leysa sig af, ef við vildum taka okkur frí, ef einungis þarf að leysa af við rekstur gistiheimilis. Þetta hafði áhrif á þá ákvörðun sem við tókum,“ segir hún. Sama ættin setið lengi Þórarinn er fæddur og uppalinn í Norðurárdal. Foreldrar hans bjuggu í Sanddalstungu í Sanddal en síðar á Hafþórsstöðum. Guðfinna ólst hins vegar upp á Steindórsstöð- um, en þau kynntust og hófu bú- skap sinn í Borgarnesi. Þar starf- aði hún við verslunarstörf í Kaup- félagi Borgfirðinga, en hann starfaði meðal annars í Loftorku og hjá Ra- rik. Árið 1988 keyptu þau hins vegar hálfa Steindórsstaðajörðina, eftir að Einar Pálsson bóndi og móðurbróð- ir Guðfinnu hafði lagt hart að þeim að íhuga búskap. „Það mætti segja að Steindórs- staðir séu ættaróðal en saga bú- setu og ættar hér er kannski dálítið óvenjuleg,“ segja þau Guðfinna og Þórarinn. „Fjölskyldusagan nær aft- ur til 17 aldar. Hér bjó um tíma Ein- ar Magnússon óðalsbóndi, en hann var sonur Magnúsar ríka á Vilmund- arstöðum sem er ættfaðir margra Borgarfirðinga. Niðjar hans eru nú meðal annars á Húsafelli, Stóra-Ási, Deildartungu og víðar um hérað- ið. Einar þessi átti ekki börn. Eft- ir fráfall hans og síðar ekkju hans ánafnaði hún Einari Pálssyni frænda þeirra Steindórsstaðajörðinni þegar hann var enn barn að aldri, eða sjö ára. Páll afi minn, faðir Einars, fékk þá ábúð á jörðinni og bjó þar til Ein- ar sonur hans tekur sjálfur við búinu árið 1956. Einar lauk fyrst búfræði- prófi frá Hvanneyri og þótti búmað- ur góður og hagur við ýmsa smíðis- vinnu. Hann veiktist ungur maður af lungnabólgu og fékk lífhimnubólgu í framhaldinu og var aldrei heilsu- hraustur. Einar var móðurbróðir minn. Móðir mín Ástríður Pálsdóttir var sú eina af fjórum systkinum sem átti börn, en hér bjuggu og störfuðu mamma og Imba frænka og hér var oft afar margt í heimili. Auk þess var Steini frændi, bróðir þeirra, bif- reiðasmiður og starfaði í Reykjavík en dvaldi hér í öllum fríum og féll þá sjaldan verk úr hendi. Einar Páls- son átti því ekki börn og valdi okkur Tóta úr frændgarði sínum til að taka við búinu. Fyrst keyptum við hálfa jörðina án íbúðarhúss, hluta af vél- um og kýrnar, en ég erfði svo hinn hluta jarðarinnar eftir fráfalls Einars vorið 1995; „auk kindanna og öllu því sem fylgir og fylgja ber,“ eins og sagði í erfðaskrá Einars bónda Páls- sonar. Þannig kom það til að við fór- um að búa á Steindórsstöðum árið 1988,“ rifjar Guðfinna upp. Fljót- lega eftir flutninginn byggðu þau nýtt íbúðarhús á jörðinni en önnur ættmenni og vinnufólk bjó áfram um hríð í gamla húsinu. Til efstu grasa Steindórsstaðir eru eins og fyrr seg- ir gamalt stórbýli og með landstærri jörðum í héraðinu. Að flatarmáli er hún þannig um þriðjungur af flat- armáli gamla Reykholtsdalshrepps- ins ef marka má fjallskilaseðla. Land jarðarinnar nær til efstu grasa, eins og segir í jarðarlýsingu, uppund- ir Okið og í suðri að afrétti Lund- dæla og jörðunum Hrísum og Hæl í Flókadal. Sjálf Steindórsstaðajörð- in er 2.918 hektarar að flatarmáli en auk þess fylgir henni hálft Búrfells- fjalllendið sem er um 1.500 hekt- arar. Jarðnæðið er því hálft fimmta þúsund hektarar. En hvernig skyldu bændur ætla að nýta allt þetta land eftir þær breytingar sem framund- an eru, þegar fækkar í hefðbundn- um bústofni og tvífættir ferðamenn taka við? „Nú, þetta mikla landrými hefur ekki nýst okkur nema að örlitlum hluta hin síðari ár. Við seldum fjár- kvóta strax eftir að við eignuðumst hann og vorum að kaupa mjólkur- kvóta í mörg ár til að byggja upp kúabú og reyndum að vega upp á móti þeirri skerðingu sem bænd- ur urðu sífellt fyrir með skerðingu mjólkurkvóta á þessum árum. Við eigum reyndar tæplega hundrað kindur í dag og tíu hross að auki,“ segir Þórarinn. Guðfinna bætir við að þau hafi auk þess stundað skóg- rækt síðan 1995 og gerðu samning um þátttöku í Vesturlandsskógum fyrir aldamótin. „Eftir það höfum við plantað skógi í 25 hektara. Hún Imba frænka mín var reyndar byrjuð í skógrækt sér til ánægju löngu fyrr og ræktaði upp fallegan skógarlund hér ofan við bæinn,“ segir hún. Fá góða einkunn gesta Árið 2009 ákváðu þau Þórarinn og Guðfinna að nýta betur gamla íbúð- arhúsið á Steindórsstöðum, enda reisulegt og stórt hús sem þá gegndi litlu hlutverki. Þetta ár seldu þau 30 þúsund lítra af mjólkurkvótanum og notuðu peninginn til að endurgera gamla bæinn. 2010 var síðan tekið á móti fyrstu gestunum. Þar er rými fyrir 12 gesti í nokkrum herbergj- um og aðstaða fyrir gesti til að elda ofan í sig. Sú þjónusta hefur verið að vinda upp á sig og er nú góð nýting í gistinguna allt árið. Aðspurð segj- ast þau selja mest í gegnum bókun- Búhættir breytast innan tíðar á Steindórsstöðum Selja kvóta og kýr en auka þess í stað við ferðaþjónustuna Guðfinna Guðnadóttir og Þórarinn Skúlason framan við Guesthouse Steindórsstöðum. Til hægri sést í vélaskemmunna sem nú verður breytt og tengd við gamla gisti- húsið. Kýr hafa verið á Steindórsstöðum svo lengi sem elstu menn muna. Ljósm. gg. Horft heim að Steindórsstöðum í Reykholtsdal. Fjær kúrir, hægra megin við Búrfellið, Okjökull hulinn skýjum.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.