Skessuhorn


Skessuhorn - 30.11.2016, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 30.11.2016, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 20164 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Þórarinn Ingi Tómasson toti@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Réttlát laun og skattheimta Það umræðuefni sem stjórnmálamenn notuðu hvað mest í aðdraganda síðustu alþingiskosninga til að koma sér og stefnumálum flokka sinna á framfæri var laskað heilbrigðiskerfi og að þar þyrfti að bæta í. Þegar leið á stutta en nokkuð snarpa kosningabaráttu voru allir þáttastjórnendur farn- ir að spila með í þessum leik og þegar komið var fram á kjördag virtist sem allir væru á þeirri skoðun að á Íslandi væri heilbrgðiskerfið ónýtt. Ekki laskað, fjárvana eða í leku húsnæði, heldur bókstaflega ónýtt. Þessari sí- bylju leyfi ég mér að gjalda varhug við enda byggir hún ekki að öllu leyti á staðreyndum. Eftir gjaldþrot íslensku bankanna og hrunið haustið 2008 hef ég t.d. í tvígang þurft að leita á náðir íslenska heilbrigðiskerfisins. Í báðum tilfellum gef ég íslenska heilbrigðiskerfinu toppeinkunn. Ekki nóg með að ég hafi fengið snögga þjónustu, heldur var hún góð, starfsfólk upp til hópa framúrskarandi og hlýlegt og sýndi alla þá fagmennsku sem ég held að vænta megi. Eftir meðhöndlun þessa góða fólks hef ég getað látið duga að mæta í það sem kallast reglubundið eftirlit „til að fyrirbyggja að allt væri í lagi,“ eins og einhver spekingurinn komst að orði. En hvað um það. Þessi neikvæðni í garð heilbrigðiskerfisins er að ákveðnu leyti heimagert vandamál. Í aðdraganda þess að læknar, hjúkr- unarfræðingar og síðar aðrar heilbrigðisstéttir töldu sig sitja eftir í kjörum á almennum vinnumarkaði, fengu þær vini á fréttastofunum með sér í lið. Um langa hríð var ekki opnaður sá fréttatími í ljósvakamiðlum, eða flett á síðum dagblaðanna, að ekki blasti við grátkór starfsfólks sem var á leið úr landi af því launin voru óviðunandi. Þannig hélt þetta áfram svo mán- uðum skipti þar til þessir hópar uppskáru kjarabætur. Þessa aðferðafræði hafa nú aðrir hópar launþega tekið upp. Nú er kjarabarátta því meira farin í fjölmiðla en á sér síður stað við fundaborðið hjá ríkissáttasemjara. Það er ekki breyting til batnaðar, heldur einvörðungu ný aðferðafræði. Ennþá eimir af þeim boðskap sem heilbrigðisstéttir komu út í þjóð- félagið í hinni löngu kjaradeilu sinni hér um árið. Reglulega dúkkar auk þess Kári Stefánsson upp og varpar fýlusprengjum þar sem hann básún- ar hversu vondir stjórnmálamenn voru að skilja heilbrigðisþjónustu eft- ir sem rjúkandi rúst, ónýtt. Auðvitað mætti margt betur fara í íslensku heilbrigðiskerfi. En hvar er það ekki? Eru menntastofnanir betur sett- ar, löggæslan eða Vegagerðin? Nei, ég held ekki. Ef við gefum okkur að illa gangi t.d. fyrir lögreglumenn að ná fram kjarabótum, eigum við þá að gefa okkur að hér muni óöld ríkja? Ef kennarar ná ekki samningum við viðsemjendur sína, að við uppskerum ónýtt skólakerfi? Að beita fjöl- miðlum í kjarabaráttu með sífellt neikvæðum fréttum, er verið að beita mjög svo tvíbentu vopni og vandmeðförnu. Ég vil hins vegar óska öllum þeim hópum sem eru í kjarabáráttu velfarnaðar í störfum sínum þannig að jöfnuður og réttlæti náist. Viðsemjendur þessara hópa, ekki síst þeir sem semja fyrir hönd hins opinbera, eiga einnig vandasamt verk fyrir höndum. Þeirra er að ákveða launahækkanir í takt við þær skatttekjur sem hið opin- bera hefur úr að spila. Það eina sem getur bætt stöðuna er að framleiðni í fyrirtækjum og ekki síður hjá hinu opinbera batni. Hér er nefnilega um að ræða línudans skattheimtu og keðjuverkun hækkana, dans sem erfitt getur reynst að feta. Ákvörðun eins og Kjararáð tók á kjördegi í lok októ- ber er síðan álíka skynsamleg og að hella olíu á eld. Það verður því erfitt, en nauðsynlegt, fyrir alþingismenn að samþykkja að launahækkun þeirra var úr takti við laun flestra annarra hópa í þjóðfélaginu. Einhver þessara kjaramála munu vafalítið fara til úrlausnar á borði nýrr- ar ríkisstjórnar, náist einhvern tímann að mynda hana! En hvernig sem þeim málum verður háttað get ég ekki tekið undir að hér á landi sé ónýtt heilbrigðiskerfi. Það er einfaldlega rangt, rétt eins og skólarnir okkar eru alls ekki ónýtir þótt vissulega þurfi að bæta kjör þeirra sem þar starfa. Magnús Magnússon. Leiðari Hjónin Maren Rós Steindórs- dóttir og Andri Júlíusson hafa fest kaup á rekstri verslunarinnar Gall- erí Ozone við Kirkjubraut á Akra- nesi. Bæði eru þau Akurnesingar en hafa búið í Noregi undanfar- in ár. Að sögn Huga Harðarsonar, fyrrum eigenda Gallerí Ozone, er búið að skrifa undir kaupsamning og taka Maren og Andri við versl- uninni í lok janúar á næsta ári. Það var haustið 1988 sem Hugi Harðarson og Elsa Jóna Björns- dóttir opnuðu verslunina Gallerí Ozone við Kirkjubraut 5 á Akra- nesi, í gamla Óðinshúsinu eins og það er oftast kallað. Vöruvalið sam- anstóð af leikföngum og íþrótta- fatnaði. Nokkrum árum síðar opn- uðu þau tískuvöruverslunina Roxy en 1995 fluttu þau rekstur Gall- erí Ozone í rúmlega 300 fermetra húsnæði hinum megin við götuna, við Kirkjubraut 8. „Við seldum Roxy áður en við fluttum okkur yfir götuna og byrjuðum að selja tískumerki í Ozone þegar við flutt- um þangað. Þá var búðin eins og hún er í dag; sport- og tískuvöru- verslun,“ segir Elsa Jóna í samtali við Skessuhorn. Verslunin var að endingu flutt í núverandi húsnæði við Kirkjubraut 12 árið 2004. Árið 2010 opnuðu Hugi og Elsa Gall- erí Ozone á Selfossi, í samstarfi við Sturlaug Sturlaugsson og Jóhönnu Hallsdóttur en seldu þann rekstur fjórum árum síðar. Rekstur Gallerí Ozone hef- ur gengið vel á þeim tæpu þrem- ur áratugum sem verslunin hefur verið starfrækt. Engu að síður hafa hjónin ákveðið að venda kvæði sínu í kross og hafa þau nú selt rekstur- inn. „Við töldum vera rétta tím- ann til að hleypa öðrum að núna, eftir að hafa verið í þessu í tæp 30 ár,“ segir Hugi. Hann segir tímana vera breytta frá því að þau opn- uðu verslunina 1988 og nú hafa þau bæði skellt sér á skólabekk. Elsa er í sjúkraliðanámi og Hugi er búinn að læra til innanhúss stíl- ista og hefur hug á því að starfa við það. „Ég er svo trúlega að fara út í meira nám með haustinu, í út- stillingarhönnun. En margt getur breyst, það eru margt annað í far- vatninu,“ segir Hugi að endingu. grþ Selja Gallerí Ozone eftir tæplega þrjátíu ára rekstur Hugi og Elsa hafa nú selt reksturinn á Gallerí Ozone, eftir að hafa rekið verslunina í 28 ár. Aðaltvímenningskeppni Briddsfélags Borgarfjarðar lauk á mánudaginn. Fimmtán pör tóku þátt á mótinu og dreifðist keppnin á fimm kvöldum. Sjaldan í sögu félagsins hefur spennan verið jafn mikil, en úrslit réðust ekki fyrr en í lokaspili. Úrslit urðu þau að Jón Eyjólfsson og Baldur Björnsson höfðu sigur, með 56,2% skori, hárs- breidd á undan þeim Jóni Einarssyni og Ingimundi Jónssyni sem uppskáru 56,0%. Í þriðja sæti urðu ungstirnin Heiðar Árni Baldursson og Logi Sig- urðsson með 55,3%, Sveinn Hall- grímsson og Flemming Jessen urðu fjórðu með 54,8% og í fimmta sæti urðu Sveinbjörn Eyjólfsson og Lárus Pétursson með 54,6%. Fyrir upphaf spilamennsku hjá félaginu á mánudaginn var aðal- fundur félagsins haldinn. Stjórn var endurkjörin og verður Jón Eyjólfs- son áfram formaður. Sveinbjörn Eyj- ólfsson var kosinn í stjórn Bridge- sambands Vesturlands. Ákveðið var á fundinum að sækja um kennitölu fyrir félagið. Næsta mánudagskvöld verður spilaður léttur tvímenningur hjá fé- laginu, en föstudaginn 16. desember er jólasveinatvímenningur félagsins ráðgerður. Þangað eru allir velkomn- ir, en dregið verður saman í pör. mm Spenna fram á síðasta spil hjá BB fólki Þeir sigruðu í aðaltvímenningi félagsins. F.v. Heiðar, Logi, Baldur, Jón, Jón og Ingimundur. Það lá vel á félögunum Eymari og Togga þegar þeir voru að þöku- leggja við hafnarsvæðið í Ólafs- vík á mánudaginn. Hitinn var um fjórar gráðurnar og milt í veðri. Ekki er ofsagt að þökulagning sé óalgeng þegar aðventan er geng- in í garð. Veðrið í haust hefur hins vegar verið með besta móti og nánast frostlaust það sem af er vetri. af Þökulagt í nóvemberlok

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.