Skessuhorn - 30.11.2016, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2016 23
Kærleikssetrið verður á jólamarkaði
í Nesi 3. desember n.k.
Í boði verða einkatímar kr. 5000.- (ekki posi)
hjá eftirtöldum aðilum:
• Friðbjörg Óskarsdóttir fræðslumiðill,
heilari og ráðgja
• Helga Björk Bjarnadóttir heilun-miðlun-
markþjálfun
• Dolores Mary Foley miðlun og heilun
• Guðrún Kristín Ívarsdóttir miðlun og
heilun
Athugið að takmarkaður tímafjöldi er í boði.
Tímapantanir í s. 8943061
Kl. 17.30 SKYGGNILÝSING í Golfskálanum
- opinn skyggnilýsingafundur
Friðbjörg Óskarsdóttir
Dolores Mary Foley
Guðrún Kristín Ívarsdóttir
Verð kr. 3.500.- (kaf innifalið)
Athugið að mæta stundvíslega, húsinu
verður læst 17.35.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Ungmennafélagið Skallagrímur í
Borgarnesi fagnar 100 ára afmæli
á þessu ári. Laugardaginn 3. des-
ember næstkomandi verður íbú-
um Borgarbyggðar boðið í af-
mæliskaffi í Hjálmakletti klukk-
an 14, þar sem þessara tímamóta
í sögu Skallagríms verður fagnað.
Þar verða rifjaðir upp ýmsir eftir-
minnilegir þættir úr sögu félags-
ins og leikdeild Skallagríms slær
á létta strengi. Íbúar eru hvattir
til að mæta og fagna aldarafmæli
Skallagríms. Að afmæliskaffinu
loknu hefst stórleikur í körfubolta
kvenna þar sem Skallagrímur og
Keflavík eigast við og um kvöldið
verður leikdeild Skallagríms með
hátíðarsýningu á afmælissýningu
sinni í Lyngbrekku.
Ungmennafélagið Skallagrímur
var formlega stofnað 3. desemb-
er 1916. Mikið vatn hefur runnið
til sjávar frá stofnun félagsins og
starfsemi þess tekið breytingum í
áranna rás. Í dag eru fimm deild-
ir starfandi innan félagsins: Sund-
deild, knattspyrnudeild, körfu-
knattleiksdeild, badmintondeild
og leikdeild. Lengi vel var einnig
starfandi frjálsíþróttadeild en hún
er í dag hluti af Frjálsíþróttafélagi
Borgarfjarðar.
Iðkendur innan Skallagríms eru
á fjórða hundrað og flestir leggja
stund á fótbolta og körfubolta.
Skallagrímur hefur undanfarin ár
verið meðal fremstu liða á landinu
í körfubolta og á í dag lið í efstu
deild karla og kvenna. Í gegnum
árin hafa landsliðsmenn í ýmsum
íþróttagreinum komið úr röðum
Skallagríms og svo er enn í dag.
Þrátt fyrir að íþróttastarf sé orðið
aðalsmerki ungmennafélaga eins
og Skallagríms þá er leiklistar-
starf ennþá í miklu blóma og hefur
leikdeild félagsins árlega sett upp
ýmsar sýningar sem margar hverj-
ar hafa vakið mikla athygli.
Deildir Skallagríms hafa með
ýmsum hætti minnst aldarafmæl-
isins. Síðastliðið vor gaf knatt-
spyrnudeildin út blað sem tileink-
að var afmælinu þar sem saga fót-
boltans í Borgarnesi var rifjuð upp.
Körfuknattleiksdeildin gaf einn-
ig út veglegt afmælisblað á haust-
mánuðum og leikdeildin hefur
staðið fyrir ýmsum viðburðum til
að minnast afmælisins.
mm/psb
Fagnaður á laugardaginn í tilefni
100 ára afmælis Skallagríms
Eftir afmæliskaffi á laugardaginn hefst stórleikur í körfunni þegar kvennalið
Skallagríms tekur á móti Keflavík í Fjósinu.
Að kvöldi afmælisdagsins verður hátíðarsýning í Lyngbrekku.