Skessuhorn - 28.06.2017, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 28. júNÍ 20172
verkefnastjóri hjá Borgar-
byggð, segir ástæðu þess
að farið er í þetta til til-
raunaverkefni vera að færri
unglingar séu í Vinnuskól-
anum en verið hefur. „Að-
sókn í Vinnuskólann hef-
ur minnkað undanfarin ár
sökum aukningar í störfum
sem tengjast ferðaþjónustu
á svæðinu. Það er jákvætt
að unglingarnir geti unnið
í slíkum störfum en á móti
kemur að það bitnar á um-
hirðunni í bænum sökum þess að
fáliðað er í Vinnuskólanum. Margir
íbúar á svæðinu vilja, eðlilega, hafa
snyrtilegt í kringum sig og grípa
því sjálfir til þess ráðs að
snyrta í kringum sig. Það
er jákvætt að það sé til
svo öflugt og flott fólk og
við viljum koma til móts
við íbúa með því að út-
vega þeim garðáhöld til að
snyrta bæinn. Það er eng-
in pressa frá okkur að fólk
nýti sér þessa þjónustu
heldur einungis val hvers
og eins,“ segir Hrafnhild-
ur. Verkefnið verður með
þessum hætti í allt sumar
og ef vel tekst til verður framhald-
ið skoðað. bþb
Mikið líf og fjör verður á Vesturlandi þeg-
ar líður á vikuna. Má þar nefna að Fjórð-
ungsmót hestamanna hefst í Borgarnesi á
morgun og stendur allt til sunnudags. Um
helgina verða haldnar bæjarhátíðarnar
Írskir dagar á Akranesi og Ólafsvíkurvaka.
Á þriðjudaginn heldur Reykhólahrepp-
ur upp á þrjátíu ára afmæli sveitarfélags-
ins með skemmtidagskrá í Hvanngarða-
brekku. Þá má nefna að vestlenskur gítar-
leikari mun fara um héröð og kynna flam-
ingo tónlist fyrir íbúum. Þetta og sitthvað
fleira er á dagskrá eins og lesa má um í
Skessuhorni vikunnar.
Á morgun verður suðvestanátt, víða 3-8
m/s, smáskúrir og hiti 8 til 18 stig. Á föstu-
dag; suðlæg eða breytileg átt 3-8 og skúr-
ir, einkum síðdegis. Hiti yfirleitt 10 til 15
stig að deginum. Um helgina má búast
við norðaustlægri átt og smáskúrum, hiti
8 til 16 stig. Á mánudag og þriðjudag er
spáð suðlægri átt og víða skúrum, hiti 8
til 16 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Hversu oft ferðu í sund?”
Vestlendingar virðast almennt ekki sækja
þær flottu sundlaugar sem í boði eru því
39% sögðust aldrei fara í sund, 29% sögð-
ust fara nokkrum sinnum á ári, 17% fara
vikulega eða oftar, 9% daglega og 6%
mánaðarlega.
Í þessari viku er spurt:
Ætlar þú að ferðast erlendis í sumar?
Starfsmenn og sjálfboðaliðar á Norður-
álsmótinu á Akranesi eru Vestlendingar
vikunnar. Norðurálsmótið þótti heppn-
ast vel í ár þrátt fyrir fremur leiðinlegt veð-
ur í upphafi móts. Fjölmargir lögðu mikla
vinnu í að gera mótið glæsilegt og gest-
gjöfum til sóma.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Hallbera á
leið á sitt annað
stórmót
AKRANES: Freyr Alexand-
ersson, landsliðsþjálfari Ís-
lands í knattspyrnu, tilkynnti
í síðustu viku lokahópinn sem
fer á Evrópumót kvenna í
sumar. Mótið hefst 16. júlí og
fyrsti leikur Íslands er 18. júlí
gegn Frakklandi. Leikið verð-
ur í Hollandi og er Ísland í
sterkum riðli með Austurríki,
Sviss auk Frakklands. Þetta er
í þriðja sinn í röð sem íslenska
kvennalandsliðið kemst á EM.
Einn Vestlendingur er í hópn-
um en það er Skagamaðurinn
Hallbera Guðný Gísladóttir
sem nú leikur með Breiðabliki
í Pepsideild kvenna. Hallbera
er ein af reynslumestu leik-
mönnum íslenska landsliðsins
með 84 landsleiki en hún spil-
aði einnig á EM í Svíþjóð fyrir
fjórum árum. -bþb
Bláfáninn
að nýju
AKRANES: Í dag, miðviku-
dag klukkan 11, verður Bláf-
áninn dreginn að húni fimmta
árið í röð við Langasand á
Akranesi. Landvernd stendur
að úthlutun Bláfánans og mun
Sævar Freyr Þráinsson bæjar-
stjóri veita honum viðtöku við
fánastöngina ofan við sturt-
urnar á Langasandi. Bláfáninn
er alþjóðlegt umhverfismerki
sem hefur þann tilgang að
stuðla að verndun umhverfis
hafna og baðstranda. Fánann
hljóta þeir einir sem leggja
sig fram um að bæta gæði og
þjónustu stranda og smábáta-
hafna og stuðla að verndun
umhverfis. Bláfáninn er tákn
um að umhverfis-, öryggis- og
umhverfisfræðslumál eru í há-
vegum höfð og veittur þeim
baðströndum sem uppfylla
ákveðin skilyrði sem lúta að
eftirfarandi þáttum; umhverf-
isfræðslu og upplýsingagjöf,
vatnsgæðum, umhverfisstjór-
nun, öryggi og þjónusta. Öll-
um bæjarbúum er boðið að
mæta á athöfnina. -bþb
Nýtt stöðugildi
um barnavernd
AKRANES: Í vetur sam-
þykkti Akraneskaupstað-
ur að veita heimild fyrir nýju
100% stöðugildi á velferðar-
og mannréttindasviði. Áhersla
starfsins mun vera á vinnslu
og meðferð barnaverndar-
mála á Akranesi. Alls sóttu níu
um starfið en nú hefur Björg-
vin Heiðarr Björgvinsson ver-
ið ráðinn í starfið. Björgvin er
með meistaragráðu í félags-
ráðgjöf og hefur undanfarin ár
unnið sem félagsráðgjafi við
barnavernd og félagsþjónustu.
-bþb
MÚLAKAFFI
Múlakaffi leitar að starfs-
manni í mötuneyti Elkem.
Um vaktavinnu er
að ræða 2-2-3. Vinnutími
frá 7:30-18:00.
Við leitum að þjónustu-
lunduðum jákvæðum
einstaklingi með áhuga á
matseld. Bílpróf er skilyrði.
Umsókn og frekari
upplýsingarveitir
gudjon@mulakaffi.is.
Sveitarfélagið Borgarbyggð hef-
ur ákveðið að ráðast í tilrauna-
verkefni með íbúum sem felst í því
að þeir geta fengið lánuð garðá-
höld til að fegra í kringum húsin
sín. Fyrirkomulagið er með þeim
hætti að hægt er að nálgast og skila
garðáhöldunum hjá flokksstjórum
Vinnuskólans við UMSB húsið við
Skallagrímsgötu 7a í Borgarnesi
þrisvar á dag; klukkan 8:00, 12:00
og 15:45.
Hrafnhildur Tryggvadóttir,
Borgarbyggð lánar íbúum garðáhöld
Ýmsir sem leið áttu framhjá Akra-
neshöfn í vikunni voru að velta fyrir
sér gríðarmörgum rörum sem skip-
að var upp á bryggjusporðinn á laug-
ardaginn. Um heilan skipsfarm af
rörum er að ræða, alls 3,1 kílómetri
að lengd. Hér eru á ferðinni rör í
væntanlega Urðarfellsvirkjun sem
er í byggingu á Húsafelli í Borgar-
firði. Skessuhorn greindi síðastliðið
vor frá virkjanaáformum þessum, en
þeim fylgir m.a. vegagerð og pípu-
lögn en lögnin verður lögð í sand og
niðurgrafin. Á meðan unnið verð-
ur að pípulögn hefst vinna við upp-
steypu inntaksmannvirkja og síð-
an stöðvarhúss virkjunarinnar, sem
verður í Reyðarfellsskógi. Í fram-
haldi af því verður virkjunin tengd
flutningskerfi Landsnets og sam-
kvæmt áætlunum verður virkjunin
gangsett fyrir árslok.
mm
Átján bílfarmar af rörum í nýja virkjun
Hótel Bifröst í Borgarfirði fékk í síð-
ustu viku gæðaviðurkenningu Vak-
ans. Flokkast hótelið nú sem þriggja
stjörnu hótel samkvæmt viðurkennd-
um gæðaviðmiðum Vakans. Hótel
Bifröst er jafnframt fyrst vestlenskra
hótela til að ná þessari vottun. Hót-
elið hóf umsóknarferlið hjá Vakan-
um árið 2015. „Með þátttöku í Vak-
anum kristallast vilji okkar til að veita
gestum okkar framúrskarandi þjón-
ustu sem einkennist af fagmennsku
og þekkingu. Með símenntun starfs-
manna og skýrri stefnu í mannauðs-
málum fyrirtækisins skapast forsend-
ur til jákvæðrar upplifunar fyrir gesti
okkar. Það er okkur mikið ánægju-
efni að fá að vera hluti af Vakanum
og því markmiði að bæta fagmennsku
í ferðaþjónustu hér á landi,“ seg-
ir Guðveig Eyglóardóttir, hótelstjóri
Hótel Bifrastar.
Rekja má sögu ferðaþjónustu á Bif-
röst allt aftur til ársins 1955. Margir
Íslendingar þekkja til þessa sögulega
staðar og hafa komið við og dvalið
þar í lengri eða skemmri tíma í gegn-
um tíðina. Í dag er Hótel Bifröst rek-
ið allt árið og býður uppá 51 rúmgott
og vel búið herbergi í byggingu sem
var reist árið 2004. Gestamóttaka og
veitingasalur er staðsett í uppruna-
legu sögulegum húsakynnum. mm
Hótel Bifröst fær Vakann
fyrst vestlenskra hótela
Guðveig Eyglóardóttir og Anna Halldórsdóttir frá Hótel Bifröst með viðurkenningar-
skjal um að hótelið uppfylli gæði þriggja stjörnu hótela.
Í haust mun íbúðum í Grundar-
firði fjölga um fjórar. Gísli Ólafs-
son hefur fest kaup á sex af átta
íbúðum í blokkinni Sæbóli 33-35
og hyggst fjölga íbúðum í henni.
„Ég fæ afhent 1. júlí og hefjumst
við þá strax handa við framkvæmd-
ir í blokkinni. Húsið var tekið í
gegn að utan fyrir um tíu árum og
er í góðu ástandi þar. Inni er hins
vegar flest allt ónýtt; gólfefni og
slíkt. Við þurfum því að endurgera
allt innanstokks. Tvær af íbúðun-
um sem ég keypti eru 70 fermetrar
og fjórar eru tæpir 140 fermetrar,“
segir Gísli í samtali við Skessu-
horn.
Hann hyggst skipta þeim fjór-
um íbúðunum sem eru tæpir 140
fermetrar í tvennt svo úr verða
átta 70 fermetra íbúðir. „Blokk-
in var byggð þannig að hægt væri
að velja hvort íbúðir væru stór-
ar eða litlar svo það er lítið mál
að breyta þeim. Það er skortur á
minni íbúðum hér í Grundarfirði
svo þetta ætti að vera góð viðbót
á fasteignamarkaðinn,“ segir Gísli
og bætir við að hluti af íbúðun-
um verði seldur strax í haust. „Við
munum leggja allt kapp á að end-
urgera fjórar íbúðir til að byrja
með og þær munu fara beint í sölu
í haust. Tvær íbúðir mun ég nota
undir fyrirtækið mitt en um hinar
fjórar á eftir að taka ákvörðun. Við
ætlum að skoða hvernig markað-
urinn verður. Ef við seljum strax
íbúðirnar sem fara á sölu í haust
er möguleiki að hinar fjórar fari
einnig á sölu en svo er möguleiki á
skamm- eða langtímaleigu,“ segir
Gísli að endingu.
bþb/ Ljósm. tfk.
Íbúðum fjölgað í Grundarfirði