Skessuhorn


Skessuhorn - 28.06.2017, Page 6

Skessuhorn - 28.06.2017, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 28. júNÍ 20176 Ríkið skerðir framlög til Nátturu- stofunnar um 40% STYKKISH: „Framlög rík- isins til Náttúrustofu Vestur- lands hafa skerst verulega frá því sem var þegar starfsemin var mótuð og skipulögð. Raun lækkun framlaga er um 40% sem gerir starfsemina mjög erfiða miðað við þau nauð- synlegu verkefni sem blasa við vegna rannsókna og vöktunar á viðkvæmum svæðum Vestur- lands og Breiðafjarðar,“ segir í bókun sem stjórn Náttúru- stofu Vesturlands samþykkti samhljóða á fundi sínum 19. júní síðastliðinn. „Stjórn Nátt- úrustofu Vesturlands harmar lækkun ríkisframlaga til NSV og leggur áherslu á mikilvægi þess að starfsemi Náttúrustof- unnar verði tryggð með aukn- um framlögum til rekstrar- ins. jafnframt hvetur stjórnin til þess að umhverfis- og auð- lindaráðuneytið beiti sér fyr- ir því að gerðir verði samn- ingar við Náttúrustofuna um afmörkuð verkefni á hennar starfssviði, sbr. samninga við Náttúrustofur á Vestfjörðum og Norðausturlandi. Stjórnin skorar á ráðherra umhverf- is og auðlindamála, ráðherra fjármála og þingmenn Norð- vesturkjördæmis að taka hönd- um saman um að tryggja fjár- hagslegan grundvöll þess mik- ilvæga starfs sem Náttúrustofa Vesturlands þarf að sinna.“ -mm Sumarlist 2017 – Skelltu þér á rúntinn! HVANNEYRI: Laugardag- inn 8. júlí, á Hvanneyrarhá- tíð, verður opnuð sýningin Sumarlist 2017 – skelltu þér á rúntinn! Sýningin er stað- sett á loftinu fyrir ofan Ullar- selið á Hvanneyri og er opin alla daga frá kl. 11:00 – 17:00. Henni lýkur svo 8. ágúst. Hugmyndin að baki sýningar- innar byggir á einkunnarorð- um Creatrix Sköpun- Vitund- Samvinna og þeirri hugmynd Fluxus Design Tribe að sá sem ferðast getur haft áhrif á um- hverfi sitt og það samfélag sem hann er innan hverju sinni. Í ár taka 12 listamenn á öllum aldri þátt í sýningunni, verk- in eru fjölbreytt og sett upp í rými sem annars hefði staðið ónotað,“ segir í tilkynningu um væntanlega sýningu. Allir eru velkomnir á sýninguna og frítt er inn. -mm Féll af hestbaki BORGARFJ: Björgunarsveit- ir Slysavarnafélagsins Lands- bjargar í Borgarfirði voru kall- aðar út síðastliðinn fimmtu- dag vegna stúlku með hafði dottið af hestbaki í Lundar- reykjadal. Samkvæmt fyrstu fregnum virtist sem hesturinn hafi stigið yfir fót stúlkunnar og hún brotnað. Slysið átti sér stað nokkuð frá vegi og þurfti því að bera hana að sjúkrabíl, meðal annars yfir torfærur. -mm Sérstök sjúkraþyrla verði reynd SUÐUR- OG VESTUR: Fagráð um sjúkraflutninga hefur gefið út skýrslu þar sem lagt er til að keypt verði sérstök sjúkraþyrla sem yrði staðsetta á Suður- og Vestur- landi. Horft yrði á þetta sem tilraunaverkefni til eins eða tveggja ára til að skoða gagn- semi og rekstrarþætti sjúkra- þyrluþjónustu áður en frek- ari ákvarðanir verði tekn- ar. Áætlað er að kostnað- ur við rekstur sjúkraþyrlu sé um 650 milljónir króna á ári, en áætlað að þyrlan myndi sinna um 300 til 600 verk- efnum árlega. Vill ráðið fara í þetta verkefni vegna þess að meðferð alvarlegra slysa og bráðra veikinda fer aðal- lega fram á Landspítalanum og langar vegalengdir hamla því að fólk af landsbyggðinni fái bestu meðferð sem völ er á. Segir í skýrslunni að þetta gæti orðið liður í því; „að all- ir landsmenn eigi kost á full- komnustu heilbrigðisþjón- ustu sem á hverjum tíma eru tök á að veita.“ -bþb Slasaðist við Barnafoss BORGARFJ: Síðastliðið fimmtudagskvöld voru björg- unarsveitir Slysavarnafélags- ins Landsbjargar kallaðar út vegna slasaðrar konu við Barnafoss í Borgarfirði. „Sú hafði dottið, hlotið áverka á fæti og gat ekki gengið. Nokkur fjarlægð er að bíla- stæði og töluvert klöngur en björgunarmenn báru konuna að stæðinu þar sem hún var sett í sjúkrabíl og er nú a leið á sjúkrahús þar sem gert verð- ur að áverkum hennar,“ sagði í tilkynningu sem Landsbjörg sendir þá um kvöldið. -mm Tuttugu og átta nemendur úr sextán framhaldsskólum víðsvegar af land- inu tóku við styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Ís- lands við hátíðlega athöfn á Háskóla- torgi síðastliðinn mánudag. Styrk- þegarnir eiga það sameiginlegt að hafa náð framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og munu hefja grunnnám við skólann í haust. Við mat á styrkþegum er horft til árang- urs þeirra á stúdentsprófi auk annarra þátta, svo sem virkni í félagsstörfum í framhaldsskóla og árangurs á öðr- um sviðum, til dæmis í listum eða íþróttum. Markmið sjóðsins er að styrkja efnilega nýnema til náms við HÍ og nemur hver styrkur 375 þús- und krónum. Meðal þeirra sem hlutu styrk að þessu sinni eru Vestlending- arnir Anna Chukwunonso Eze og Þóranna Hlíf Gilbertsdóttir. Anna er Akurnesingur og braut- skráðist af náttúrufræðibraut Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akranesi nú í vor. Hún var dúx skólans og hlaut m.a. viðurkenningar fyrir ágæt- an árangur í raungreinum og stærð- fræði, þýsku og íslensku. Anna státar af góðum árangri í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna og var í Gettu betur liði FVA í tvö ár. Hún var jafn- framt mjög virk í félagsstarfi skólans og var formaður Viskuklúbbs FVA. Anna hyggur á nám í rafmagns- og tölvunarverkfræði með áherslu á læknisfræðilega verkfræði í haust. Þóranna Hlíf Gilbertsdóttir er frá Búðardal og brautskráðist af nátt- úrufræðibraut frá Menntaskóla Borgarfjarðar í lok maí eftir þriggja ára nám og var dúx skólans skóla- árið 2016 - 2017. Þóranna fékk auk þess fjölmargar viðurkenningar fyrir framúrskarandi námsárangur, þar á meðal fyrir vandaðasta lokaverkefn- ið sem fjallaði um líffræðilega þætti Alzheimer‘s sjúkdómsins. Þóranna hefur lagt stund á hestamennsku og í menntaskóla tók hún virkan þátt í félagsstarfi og var meðal annars gjaldkeri nemendafélagsins. Þóranna stefnir á nám í læknisfræði við Há- skóla Íslands í haust. grþ Tveir Vestlendingar í hópi afreksstyrkþega HÍ Styrkþegar og fulltrúar þeirra við athöfnina sl. mánudag. Anna Chukwunonso Eze ásamt Ágústu Elínu Ingþórsdóttur skólameistara FVA. Þóranna Hlíf Gilbertsdóttir ásamt Guðrúnu Björg Aðalsteinsdóttur skólameistara MB.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.