Skessuhorn - 28.06.2017, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 28. júNÍ 2017 13
REYNIR HAUKSSON
EINLEIKSTÓNLEIKAR
LEIKIN VERÐUR FLAMENCO OG KLASSÍSK TÓNLIST
1. júlí Akranesviti kl. 17:00
2. júlí Hjarðarholtskirkja, Dölum kl. 20:00
5. júlí Reykholtskirkja kl. 20:00
6. júlí Vatnasafnið, Stykkishólmi kl. 20:00
7. júlí Hvanneyri Pub kl 21:00
Aðgangseyrir 1500 kr
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Opið: Mán. - fimmt. kl. 09-18 / Föst. 09-17.
Lokað á laugardögum í sumar.
INNRÉTTINGAR
DANSKAR
Í ÖLL HERBERGI HEIMILISINS
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF HURÐUM,
FRAMHLIÐUM, KLÆÐNINGUM OG EININGUM,
GEFA ÞÉR ENDALAUSA MÖGULEIKA Á
AÐ SETJA SAMAN ÞITT EIGIÐ RÝMI.
STERKAR OG GLÆSILEGAR
Nýverið var í Borgarnesi hrundið
af stað átaki á landsvísu sem miðar
að því að auka skilning ferðafólks á
ábyrgri ferðahegðun. Herferðin er
á vegum Inspired by Iceland verk-
efnisins og snýst um að fá ferða-
fólk til að skrifa undir átta loforð
um að ferðast á ábyrgan hátt um Ís-
land - The Icelandic Pledge. Með-
al þeirra atriða sem samþykkt er að
gangast undir er að virða náttúruna
og skilja við hana eins og komið var
að henni, að aka ekki utan vega, að
koma sér ekki í hættulegar aðstæð-
ur við að taka myndir, að tjalda á
viðeigandi tjaldsvæðum sem og að
vera vel útbúinn á ferðalagi um Ís-
land í öllum veðrum. Það var Þór-
dís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir,
ráðherra ferðamála, sem var fyrst til
að samþykkja loforðin. Var það gert
þegar hún ásamt fólki frá Samtök-
um ferðaþjónustunnar, Íslandsstofu
og Landsbjörgu, sem saman standa
að verkefninu, kom saman á Land-
námssetrinu í Borgarnesi. Ísland er
fyrsta landið í heiminum sem hvet-
ur ferðamenn til slíkra loforða.
Í The Icelandic Pledge eru ferða-
menn hvattir til að samþykkja lof-
orðin átta á vefsíðu Inspired by
Iceland. Inga Hlín Pálsdóttir for-
stöðumaður Íslandsstofu segir að
eitt af meginatriðunum með lof-
orðunum sé að fólk gangi vel um
og sýni ábyrga ferðahegðun. „Við
teljum að oft viti ferðamaðurinn
ekki hvernig hann á að vera ábyrgur
og hann viti ekki að hann hafi gert
eitthvað rangt,“ segir Inga Hlín.
Hún segir mörg atriðanna á list-
anum hafi verið Íslendingum hug-
leikin síðustu ár. „Ég held að það
sé mjög mikilvægt að við öll sam-
an, komum þessum skilaboðum á
framfæri á jákvæðan máta og líka
kannski með smá húmor að vopni,“
bætir hún við. mm
Ferðamenn skrifi upp á
ábyrga ferðahegðun
Búin að skrifa undir loforð um ábyrga ferðahegðun. F.v. Helga Árnadóttir, Þórdís
Kolbrún R Gylfadóttir, Inga Hlín Pálsdóttir og Þór Þorsteinsson.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is