Skessuhorn - 28.06.2017, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 28. júNÍ 2017 19
Aðalfundur
Þörungaverksmiðjunnar hf. verður haldinn
miðvikudaginn 12. júlí 2017 kl. 14.00 á skrifstofu
félagsins, Karlsey, 380 Reykhólum.
Dagskrá: Aðalfundarstörf
skv. samþykktum félagsins.
*hverri seldri vöru af John Frieda
á meðan birgðir endast
frí smávara
fylgir með
í júlí *
Bæjarhátíðin Írskir dagar verður
haldin á Akranesi dagana 30. júní -
2. júlí. Með Írskum dögum er þess
minnst að írskir menn, bræðurn-
ir Þormóður og Ketill Bresasynir,
námu fyrstir manna land við Akra-
nes. Hátíðin hefur fyrir löngu skip-
að sér fastan sess í bæjarlífi Akurnes-
inga, enda er hún nú haldin í átjánda
sinn. „Stærstu viðburðir hátíðarinnar
verða flestir með hefðbundnu sniði,
líkt og verið hefur undanfarin ár. Á
föstudag verða hin árlegu götugrill
og föstudagstónleikar með hefð-
bundnu sniði nema að því leytinu til
að þeir verða haldnir á hafnarsvæð-
inu í ár, líkt og var gert fyrir tveimur
árum,“ segir Ella María Gunnars-
dóttir forstöðumaður menningar-
og safnamála hjá Akraneskaupstað í
samtali við Skessuhorn. Önnur föst
atriði verða einnig áfram á dagskrá
Írskra daga. „Skemmtun verður á
Akratorgi á laugardeginum þar sem
Sirkus Íslands mun vera með atriði,
Björgvin Franz og Bíbí, strákarnir í
BMX bros, rauðhærðasti Íslending-
urinn verður krýndur og verðlaun
veitt fyrir best skreytta húsið,“ segir
Ella María og tekur fram að Akur-
nesingar muni að sjálfsögðu einnig
koma fram á skemmtuninni.
Sandkastalakeppnin sem haldin
er árlega á laugardeginum á
Írskum dögum verður þó með
breyttu sniði í ár. „Það verður
flóð á hádegi þann dag, þannig
að við þurftum að færa bæði
staðsetninguna og tímasetninguna
á keppninni. Hún byrjar klukkan
9:30 og verður í Langasandskrika
við Sólmundarhöfða, sem er
innsti hlutinn á Langasandi og
næst dvalarheimilinu Höfða,“
útskýrir Ella María. Þá segir hún
að á laugardeginum verði tveir
kjarnar með skipulagðri dagskrá.
„Annars vegar á Akratorgi og hins
vegar við Byggðasafnið. Þar verður
rakubrennsla, eldsmiðir að störfum
og Hálandaleikar. Svo verða
leiktæki út um allan bæ og tónleikar
á ýmsum stöðum. Það verður því
skemmtun og nóg um að vera fyrir
alla aldurshópa alla helgina. Það
má líka nefna að Leikhópurinn
Lotta verður í Garðalundi á
sunnudeginum í boði Norðuráls.“
Á laugardagskvöldinu verður
árlegur brekkusöngur haldinn
við þyrlupallinn og hið sívinsæla
Lopapeysuball í framhaldi af því.
Ella María segir undirbúning fyrir
hátíðina hafa gengið vel. „Þetta er
allt að smella. Það eina sem maður
getur ekki slegið föstu er veðrið
en mér finnst að við eigum inni að
fá smá bongóblíðu þetta árið. En
þegar maður býr á Íslandi, þá þarf
maður stundum að ákveða hvort
það er gaman eða ekki, maður
getur eiginlega ekki látið veðrið
stjórna því.“
grþ
Írskir dagar framundan
Írskir dagar verða á Akranesi næstu helgi.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Bæjarhátíðin Ólafsvíkurvaka verður
haldin um næstu helgi, dagana 29.
júní - 1. júlí. Hátíðin fer fram annað
hvert ár, á móti svokallaðri Sandara-
gleði sem haldin er fyrir utan Enni
hitt árið. Líkt og hefð gerir ráð fyr-
ir verður bænum skipt eftir litum í
sex hverfi. Í ár kemur það í hlut bláa
og rauða hverfisins að skipuleggja
hátíðina. Hátíðin hefst formlega
á föstudaginn kl. 17, þegar opnuð
verður myndlistar- og handverks-
sýning í Átthagastofunni. Bærinn
er þó skreyttur degi áður en dag-
skrá hefst. „Á fimmtudagskvöldið
hittast öll hverfin og skreyta hjá sér
eftir litum. Svo er haldið götugrill í
öllum hverfum á laugardagskvöldið
og skrúðganga fer úr hverju hverfi
niður í Sjómannagarð á brekku-
söng. Þar kemur hvert hverfi með
skemmtiatriði og svo eru veitt verð-
laun fyrir best skreytta hverfið og
besta skemmtiatriðið,“ segir Sigrún
Guðmundsdóttir fyrir hönd skipu-
leggjenda Ólafsvíkurvöku 2017.
Frítt fyrir börnin
Nóg verður um að vera í Ólafsvík
um helgina og ættu flestir að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi. Má
þar nefna dorgveiðikeppni, tón-
leika og bryggjuball, svo eitthvað
sé nefnt. Þá verður fjölbreytt dag-
skrá allan laugardaginn. „Það
verður mikið líf í bænum, hátíð-
ardagskrá á Þorgrímspalli, hjóla-
keppni sem byrjar í Grundarfirði
kemur í gegnum bæinn og Snæ-
fellsjökulshlaupið verður á laug-
ardaginn, þar sem ræst verður frá
Arnarstapa og hlaupið yfir jök-
ulhálsinn,“ segir Sigrún. Ýms-
ir tónlistarmenn stíga á svið og
um kvöldið verður brekkusöng-
ur með Sverri Bergmann og Hall-
dóri Gunnari og að lokum dans-
leikur í félagsheimilinu Klifi þar
sem hljómsveitin Albatross leikur
fyrir dansi. „Á laugardaginn verða
einnig hoppukastalar, vatnaboltar
og veltibíll á svæðinu. Við ákváð-
um að hafa þannig fyrirkomulag í
ár að fólk þarf ekki að borga fyrir
börnin í tækin. Við fengum styrki
fyrir því en hátíðin er öll rekin á
styrkjum frá sveitarfélaginu og
fyrirtækjum í plássinu,“ segir Sig-
rún að endingu.
grþ
Ólafsvíkurvakan 2017
hefst á föstudaginn
Rúmlega 600 manns skemmtu sér í Sjómannagarðinum á Ólafsvíkurvöku 2015.