Skessuhorn


Skessuhorn - 28.06.2017, Síða 26

Skessuhorn - 28.06.2017, Síða 26
MIÐVIKUDAGUR 28. júNÍ 201726 dýr þróun fyrir fyrirtæki að ráðast í á eigin spýtur. Þau þurfa að geta far- ið beint í að þróa notendahugbúnað með hjálp opins aðgangs að grunn- verkfærum.” Anna segir það vera nauðsynlegt að vera með skýr markmið um hvað geri skuli við tæknina strax við upp- haf áætlunarinnar. „Við þurfum að vita hvað við ætlum að gera við þá tækni sem við þróum. Við þurfum að vera í stöðugu samtali við atvinnu- lífið og þá sérstaklega nýsköpun. Við þurfum að skapa tengslanet hérlendis og erlendis og reyna að koma þessu öllu á koppinn,“ segir Anna. Nauðsynlegt að vera ekki háð stórfyrirtækjum Tækninni fleygir á ógnarhraða fram um þessar mundir og er mannskepn- an farin að hafa í auknum mæli sam- skipti við tækin. Flest öll tækin kunna ensku en þó eru nokkur sem skilja okkar ástækra ylhýra. „Íslendingar hafa í svolítinn tíma getað rætt við Google farsíma á íslensku og í nokk- ur ár hefur verið hægt að nota tal- gervla fyrir íslensku á vegum Blindra- félagsins. Bæði Google farsímarn- ir og talgervlar Blindrafélagsins eiga það sameiginlegt að vera þróaðir hjá erlendum stórfyrirtækjum. Við vilj- um ekki vera alveg háð fyrirtækjum þar sem íslenskan er bara eitt tungu- mál af mörgum og þar að auki ekki endilega með mikið vægi þar sem við erum svo fá sem tölum hana. Við vilj- um líka ráða yfir ákveðinni grunn- tækni sjálf þannig að við getum þá þróað og aðlagað hana eftir þörfum í stað þess að bíða og vona að það verði gert annars staðar,“ segir Anna. Það eru þó fleiri tæki en farsímar og heimilistölvur sem huga þarf að. Máltækni á eftir að verða samofin hugbúnaði í fyrirtækjum og stofn- unum og auka hagkvæmni á mörgum sviðum. „Í HR er t.d. verið að þróa sérhæfða talgreina, annars vegar fyrir röntgenlækna og hins vegar fyrir Al- þingi. Sá talgreinir mun geta unnið beint upp úr ræðum sem fluttar eru á Alþingi en eins og staðan er í dag eru allar ræður skrifaðar upp af starfs- mönnum Alþingis og settar í stafrænt form þannig. Uppkast frá talgrein- inum mun flýta verulega fyrir þeirri vinnu,“ útskýrir Anna. Móðurmálið mikilvægt En hvers vegna vilja stjórnvöld setja allt af stað núna; er íslenskan í raun- verulegri hættu? „Íslenskufræðing- ar og aðrir hafa reynt að ná eyrum stjórnvalda síðustu tvo áratugi vegna þeirra áhrifa sem tæknin getur haft á íslenskuna. Nú hafa stjórnvöld ásamt Samtökum atvinnulífsins lýst yfir vilja til þess að heilsteypt máltækniáætl- un fyrir íslensku verði loks að veru- leika. Ég tel að það hafi opnað augu margra að sjá hvað tæknin er kom- in langt fyrir ensku í þessum tækj- um sem við notum dagsdaglega. Það er orðið ljóst að máltækni er komin til að vera og mun verða allt umlykj- andi, áður var þessi veruleiki kannski fjarlægari,“ segir Anna sem vill ekki fullyrða það að þegar tækin geta farið að tala við okkur á íslensku sé tungu- málinu bjargað. „Það að geta talað við tækin hjálpar tungumálinu alveg klárlega. Það að við aðlögum tæknina að okkar móðurmáli frekar en að við aðlögumst tækninni á ensku skipt- ir vissulega miklu máli ef við viljum halda móðurmálinu okkar. En það er hins vegar undir okkur komið hvað við viljum gera við móðurmálið okk- ar. Á meðan við tölum og hugsum á íslensku verður íslenska til.“ Fremur hálftyngd en tvítyngd Til lengri tíma litið segir Anna, eins og margir aðrir, að staða íslenskunn- ar geti verið í hættu. „Málumhverfi barna hefur gjörbreyst á fáum árum. Enska er orðin mjög fyrirferðarmik- il í afþreyingarefni barna og í sam- skiptum þeirra, og um leið er hætta á að þau heyri og tali minni íslensku en nauðsynlegt er til þess að ná góðu valdi á móðurmálinu. Á það hefur verið bent að þetta geti leitt til þess að þessi börn komi til með að tala sæmilega ensku og íslensku, án þess að þau búi yfir móðurmálsfærni í öðru eða báðum tungumálum. Þau verði því frekar „hálftyngd“ en tví- tyngd. Með íslenskri máltækni getum við vonandi aukið vægi íslenskunn- ar í tölvum og snjalltækjum, en burt- séð frá allri tækni verðum við að hlúa að móðurmálinu í öllum samskiptum okkar á milli, tala við hvort annað og ekki bara við tækin,” segir Anna að endingu. bþb Fimmtudaginn 29. júní kl. 20 flyt- ur Kalmanskórinn á Akranesi valda kórtónlist upp úr söngheftunum Ljóð og lög sem Þórður Kristleifs- son tók saman og gaf út á árunum 1939-1949. „Það muna margir eft- ir þessir söngheftum sem til voru á mörgum heimilum. Þórður Krist- leifsson, sem var uppalinn í Reyk- holtsdalnum, kenndi íslensku og söng við Héraðsskólann á Laugar- vatni. Honum þótti vanta efni fyr- ir kóra og fór í að safna efni og til urðu sjö bækur með um 400 lög- um. Þarna má finna gullmola sem margir þekkja en sjaldan heyrast,“ segir í fréttatilkynningu. Kalmanskórinn er skipaður 15 söngvurum sem allir hafa mikla reynslu af kórsöng og hópinn leið- ir Sveinn Arnar Sæmundsson. Kór- inn er að fara norður í land og mun halda tvenna tónleika, aðra á Þjóð- lagahátíðinni á Siglufirði og hina í Skagafirði. Tónleikarnir á fimmtudaginn verða í Guðnýjarstofu í safnaskála Byggðasafnsins í Görðum. Garða- kaffi verður opið og því hægt að setjast niður fyrir eða eftir tónleika og njóta góðra veitinga. Aðgangs- eyrir er kr. 1.500 en Kalmansvinir greiða kr. 1.000. mm Flytja ljóð og lög Sumarlesari vikunnar Sumarlesturinn fer prýðilega af stað á Bókasafni Akraness. Sum- arlesari vikunnar er Erna Dögg Fannarsdóttir. Með henni á myndinni er vinkona hennar; Íris Ósk Kjartansdóttir t.v. Hvað heitir þú og hvað ertu gömul. Ég heiti Erna Dögg Fannarsdótt- ir og ég er átta ára. Í hvaða skóla ertu? Ég er í Brekkubæjarskóla. Hvaða bók varstu að lesa? Ég var að lesa Þorri og þúsund- fætlan og Bókin borðaði hund- inn minn. Hvernig voru þessar bækur? Hundabókin var mjög fyndin og skrítin og Þorri og þúsundfætlan var skemmtileg. Hvernig bækur finnst þér skemmtilegastar? Spennandi bækur eru skemmti- legastar. Áttu þér uppáhalds bók eða uppáhalds rithöfund? Knúsbókin er mjög skemmti- leg. Svo er ég að lesa Þín eigin hrollvekja heima og hún er mjög skemmtileg. Af hverju tekur þú þátt í sum- arlestrinum? Af því að mér finnst gaman að lesa. Kemurðu oft á bókasafnið og hvað gerir þú á bókasafninu? Nei, ekkert svo oft. Það er gaman að koma á bókasafnið og skoða og velja bækur. Á dögunum kynnti Kristján Þór júlí- usson menntamálaráðherra nýja verkáætlun um máltækni fyrir ís- lensku árin 2018-2022. Markmið verkáætlunarinnar er að í náinni framtíð verði hægt að notast við ís- lensku í öllum tækja- og hugbúnaði sem gefinn verður út. Akurnesingur- inn Anna Björk Nikulásdóttir er einn þriggja höfunda verkáætlunarinnar ásamt þeim jóni Guðnasyni, lektor við Háskólann í Reykjavík, og Stein- þóri Steingrímssyni verkefnisstjóra hjá Stofnun Árna Magnússonar í ís- lenskum fræðum. Fyrir um 200 árum spáði danski málfræðingurinn Ras- mus Rask fyrstur til um endalok ís- lenskunnar. Samkvæmt spá hans væri líftími íslenskunnar senn á enda. Spá Rask virðist ekki ætla að rætast en fjöl- margir hafa engu að síður spáð fyr- ir um endalok íslenskunnar eftir tíma Rasks. Undanfarin ár hefur því verið haldið á lofti að helsti óvinur íslensk- unnar á okkar tímum sé hin síbreyti- lega tækni. Skessuhorni lék forvitni á að vita hvort íslenskan væri í raun og veru í hættu sem og hvað fælist í ver- káætluninni um máltækni sem á að laga stöðu íslenskunnar. Skessuhorn hitti Önnu Björk að máli á vinnustöð hennar við Suðurgötu 57 á Akranesi, í gamla Landsbankahúsinu. Úr tónlist í máltækni Það má segja að tilviljun hafi ráðið því að Anna Björk menntaði sig í mál- tækni. Hún hafði starfað sem tónlist- arkennari um tíma og flutti til Þýska- lands til þess að mennta sig frekar í tónvísindum. „Í skólanum þurftum við að taka nokkra valáfanga sem komu tónlistinni ekki við. Ég ákvað að velja ensku og þýsku. Ég heillað- ist af málvísindunum, komst síðan í kynni við þetta nýja fag, máltækni, og fann mig algjörlega í því,“ segir Anna og útskýrir frekar í hverju mál- tækni felst: „Máltækni má segja að sé sambland af málvísindum og tölvun- arfræði. Starf máltæknifræðings snýr að því að tölvur og tæki geti skilið og notað tungumál.“ Kenna tölvum að tala og skilja íslensku Anna hefur undanfarið ár starfað við Gervigreindarsetur Háskólans í Reykjavík sem sérfræðingur í mál- tækni. Í vetur vann hún einnig, eins og áður sagði, að verkáætlun um máltækni fyrir íslensku 2018-2022. „Í skýrslunni setjum við fram fjögur forgangsmál sem við teljum nauðsyn- leg. Í fyrsta lagi að búinn verði til tal- greinir sem skilur íslensku, í öðru lagi að til verði talgervill sem getur tal- að íslensku, í þriðja lagi þýðingarvél sem getur þýtt úr ensku yfir í íslensku og í fjórða lagi að þróaður verði mál- rýnir sem er stafsetningar-, málfræði- og málfarsleiðréttingarforrit,“ seg- ir Anna en með því að klára þessi verkefni telur hún að jarðvegurinn sé undirbúinn fyrir tæknifyrirtæki. „Við erum lítil þjóð og þurfum því að gera þetta sjálf. Við getum ekki ætlast til þess að öll stórfyrirtæki hugsi til okkar. Við viljum búa til þessi verk- færi fyrir fyrirtæki til að þau geti nýtt sér þau. Það er mikil vinna að búa til innviðatól fyrir máltækni, of mikil og „Á meðan við tölum og hugsum á íslensku verður íslenska til“ Rætt við Önnu Björk Nikulásdóttur, máltæknifræðing, um framtíð íslensku í heimi tækninnar Anna Björk Nikulásdóttir starfar sem máltæknifræðingur hjá Gervigreindarsetri Háskólans í Reykjavík. Hún, ásamt fleirum, er höfundur verkáætlunar um mál- tækni fyrir íslensku á árunum 2018-2022.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.