Skessuhorn - 16.08.2017, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 16. áGúST 20172
Skessuhorn að sér hafi verið gert
viðvart á tíunda tímanum um kvöld-
ið um að tveir menn væru þarna á
ferð. Hann hélt á staðinn og gerði
jafnframt lögreglu viðvart sem mætti
einnig til skýrslutöku af manninum.
„Maðurinn var einn þegar ég kom á
svæðið og fisklaus. Hann var greini-
lega meðvitaður um að hann væri að
brjóta lög og þegar honum var til-
kynnt um að þetta yrði lögreglumál
skyldi hann allt í einu ekki stakt orð
í ensku,“ segir Magnús. Hann seg-
ir að lögregla hafi rætt við manninn
með aðstoð Google translate þýð-
ingarforritsins. „Veiðifélagið mun
að öllum líkindum leggja fram kæru
eins og tíðkast í svona málum og má
maðurinn búast við hárri fjársekt
áður en hann heldur úr landi,“ segir
Magnús. mm
Um helgina, frá 17.-20. ágúst, fer fram bæj-
arhátíðin Danskir dagar í Stykkishólmi.
Hátíðin er rótgróin og verður haldin í 23.
skipti í ár og búast má við miklu fjöri eins
og fyrri ár. Þá er Akranes heiðursgestur á
Menningarnótt á laugardaginn og verða
bæjarlistamenn Akraness frá árinu 1992
til dagsins í dag þar í forgrunni. Þetta og
sitthvað fleira er á dagskrá helgarinnar
sem framundan er.
Á morgun og föstudag verður norðan og
norðaustan 8-15 m/s, hiti 7-11 stig. Á laug-
ardag er spáð minnkandi norðlægri átt,
skýjuðu og lítilsháttar vætu en bjart með
köflum, hiti 9-18 stig. Á sunnudag; aust-
læg átt, þykknar upp en bjart verður með
köflum, hiti 8-18 stig. Á mánudag er útlit
fyrir norðlæga eða breytilega átt og all-
víða vætusamt, hiti 8-13 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
Hvað skiptirðu oft um rúmföt á rúminu
þínu?
Flestir svaranda eða 46% sögðust skipta
tvisvar í mánuði um á rúminu, 28% sögð-
ust skipta vikulega, 19% mánaðarlega, 6%
sjaldnar og 1% daglega.
Í þessari viku er spurt:
Hefur þú hlaupið maraþon?
Máni Hilmarsson ungur knapi frá Borg-
arnesi varð heimsmeistari í flokki ung-
menna í fimmgangsgreinum á Heims-
meistaramóti íslenska hestsins sem hald-
ið var í Hollandi í vikunni sem leið. Máni
var þá einnig heiðraður í lok móts með
háttvísiverðlaunum Alþjóðasambands
íslenska hestsins fyrir lýtalausa reið-
mennsku. Máni er Vestlendingur vikunnar.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Veðurhorfur
Vestlendingur
vikunnar
Stefnir í góða
berjasprettu
VESTURLAND: Samkvæmt
upplýsingum sem Skessuhorn
hefur aflað á nokkrum stöðum á
Vesturlandi stefnir í góða berja-
sprettu víðast hvar í landshlutan-
um. Berin eru nú óðum að þrosk-
ast og sumsstaðar orðin tínslu-
hæf. Því er um að gera fyrir fólk
að drífa sig á berjamó og nýta
þennan góða og meinholla ávöxt
sem jörðin gefur af sér. -mm
Vilja hefja
viðræður um
ferjusiglingar
AKRANES: Bæjarráð Akranes-
kaupstaðar ákvað á fundi sín-
um í síðustu viku að fela Sæv-
ari Frey Þráinssyni bæjarstjóra
Akraness að hefja viðræður við
Sæferðir ehf. og Reykjavíkur-
borg um framhald ferjusiglinga
yfir Faxaflóa árið 2018. Í samtali
við RúV segir Sævar að mikill
áhugi sé meðal ferðaþjónustu-
aðila á Akranesi að fá niðurstöðu
sem fyrst um framhald ferjusigl-
inganna. Enn fremur segir Sæv-
ar að aðsóknin í ferjuna hafi far-
ið vaxandi í sumar og bendir á
að verkefni sem þetta geti tek-
ið tíma að aðlagast og hafi það
sýnt sig þegar strætó hóf reglu-
legan akstur milli Reykjavíkur
og Akraness. -bþb
Var nærri
strandaður
BREIÐAFJ: Um klukkan 17 á
laugardaginn barst stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar neyðar-
boð frá báti sem staddur var á
Breiðafirði. Um borð voru tveir.
Sögðu þeir að bátinn væri við
að reka upp í Framri – Langey
í innanverðum Breiðafirði. Þyrla
Landhelgisgæslunnar og sjó-
björgunarsveitir SL við Breiða-
fjörð voru kallaðar út á fyrsta
forgangi. Einnig voru nærstadd-
ir bátar beðnir um að halda á
staðinn. áhöfn bátsins setti út
ankeri sem náði að tefja rekið og
um klukkan 17:30 var björgun-
arbátur frá björgunarsveitinni
Berserkjum í Stykkishólmi kom-
inn að bátnum. Var hann tekinn
í tog og náðist að draga hann út
að stærri báti sem kominn var á
svæðið. Sá tók við drættinum og
hélt með fiskibátinn til Stykkis-
hólms í togi. -mm
Metumferð
um göngin
HVALFJ: Í samantekt Spal-
ar kemur fram að 306.500 öku-
tæki óku um Hvalfjarðargöng í
júlí eða hátt í 9.900 á sólarhring
að jafnaði. Aldrei fyrr hefur um-
ferð farið yfir 300 þúsund í ein-
um mánuði frá því göngin voru
tekin í gagnið sumarið 1998.
Umferðin nú í júlí jókst um
tæplega 4% frá sama mánuði í
fyrra. -mm
Grænlenski togarinn Polar Am-
aroq landaði tæpum 600 tonnum
af frosnum fiskafurðum í Grund-
arfirði nú í byrjun vikunnar. Það
var löndunarþjónustan Djúpiklett-
ur ehf. sem sá um löndunina en all-
ur aflinn fór inn í frystihótelið við
höfnina. Starfsmenn Djúpakletts
byrjuðu snemma á mánudagsmorg-
un að afferma skipið og unnu langt
fram á kvöld og svo aftur í gær-
morgun við að landa, en aflinn er
allur í 18 kg öskjum sem eru lausar í
lest skipsins og því þarf að umstafla
þeim öllum sem tekur langan tíma
enda um 33 þúsund kassar. Löndun
var svo lokið seint í gær, þriðjudag.
tfk
Polar Amaroq landaði í Grundarfirði
Olíuskipið Laugarnes
lá utan á Polar Amaroq
og dældi olíu á tanka
skipsins á þriðjudag.
Hásetar af togaranum taka á móti bretti sem híft er úr skipinu. Starfsmaður Djúpakletts umstaflar aflanum á bryggjunni.
Strandveiðimenn landsins eru
orðnir þreyttir á lágu fiskverði sem
verið hefur allt þetta veiðitímabil.
Þeir voru því nokkrir strandveiði-
mennirnir í Grundarfirði sem tóku
sig saman nýverið og prófuðu að
flytja aflann sjálfir út til sölu. Alls
voru þetta níu bátar sem fluttu út
50 kör eða 15 tonn af fiski í gámi til
Grimsby á Englandi. Runólfur Jó-
hann Kristjánsson er einn af þess-
um skipstjórum og sagðist hann
vera sáttur við verðið þegar að
blaðamaður heyrði í honum hljóð-
ið síðastliðinn miðvikudag. „Þetta
kom þokkalega vel út hjá okkur,“
sagði hann í stuttu spjalli en hann
var þá staddur á flugvelli í London.
„Við vorum að fá þetta 350 til 380
krónur fyrir aflann en meðalverðið
var um 360 krónur. Það má þó taka
það fram að það var óvenju gott
verð fyrir smærri fisk í Grimsby en
það er ekki alltaf svoleiðis,“ sagði
hann jafnframt. Aflinn sem sendur
var út veiddist dagana 1. til 3. ágúst
og var búið að selja hann að morgni
9. ágúst. Það var fyrirtækið Bók-
hald G.G. sem sá um útflutninginn
og Atlantic Fresh ltd sem sá um söl-
una í Grimsby.
tfk
Seint á mánudagskvöldið var fransk-
ur ferðamaður staðinn að verki þar
sem hann var að reyna að húkka
lax með spúni úr laxastiganum við
Glanna í Norðurá. Magnús Fjelds-
ted veiðivörður segir í samtali við
Gómaður við spúnveiðar úr laxastiganum við Glanna
Strandveiðisjómenn tóku sig saman
og fluttu sjálfir út gám af fiski