Skessuhorn - 16.08.2017, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 16. áGúST 2017 17
að bókum. „Mamma var gott skáld
og ég á mörg falleg ljóð eftir hana.
Ég varð læs mjög snemma, líklega
um fjögurra ára aldur, og las allar
bækur sem til voru á heimilinu.“
Dagbjört hefur, ásamt nokkr-
um konum, staðið fyrir bókahátíð
í fjórgang. Hátíðin ber nafnið Júlí-
ana eftir Júlíönu Jónsdóttur sem
var frá Stykkishólmi. Júlíana var
fyrsta konan hérlendis sem fékk út-
gefna bók eftir sig. „Frumkvæðið af
hátíðinni á Gréta Sigurðardóttir og
hafa hátíðirnar gengið vel hingað
til. Það hefur verið fín mæting og
hingað hafa komið flestir virtustu
höfundar landsins,“ segir Dag-
björt.
Alltaf látið í sér heyra
Samfélagsmál hafa skipt Dag-
björtu miklu allt frá því hún var
ung stúlka. Hún segir að móðir
hennar hafi haft sterkar skoðanir á
hlutunum og líklega komi áhuginn
þaðan. Móðir hennar barðist fyrir
réttindum kvenna og hefur Dag-
björt fylgt í sömu spor og gerði sér
meðal annars ferð til Reykjavíkur
24. október 1975. „Ég reyndi sí-
fellt að láta í mér heyra til þess að
hafa áhrif og breyta því viðhorfi
sem var til kvenna. Mamma varð
einnig mjög dugleg í verkalýðs-
baráttunni og ég er alin upp við að
segja mínar skoðanir. Maður lit-
ast af fólkinu sem elur mann upp,“
segir Dagbjört en hún var um tíma
varaþingmaður og sat í hrepps-
nefnd sveitarfélagins. „Ég var vara-
þingmaður fyrir Framsóknarflokk-
inn en tek ekki lengur þátt í flokks-
starfinu. árin sem ég var varaþing-
maður voru karlarnir í kjördæminu
mínu óvenju heilbrigðir og ég sett-
ist því aldrei á þing. Þeir hafa ef-
laust ekki viljað fá þessa ungu konu
inn á þing enda fáar konur þar fyrir.
Ég hef samt alltaf haft meiri áhuga
á sveitarstjórnarmálum og hef bar-
ist harðar þar og setið í sveitar-
stjórn. Mér finnst sveitarstjórnamál
vanmetin og þá aðallega hjá yngra
fólki. Yngra fólk á að hafa skoðanir
á því hvernig samfélag það vill búa
í, hvernig staðið er að leikskólamál-
um og öðru. Fólk getur haft áhrif á
samfélagið og það er best að fá öfl-
ugt og þróttmikið fólk í slík störf,“
segir Dagbjört.
Vill sameinast Grundar-
firði og Helgafellssveit
Aðspurð um umdeilt málefni
sveitarfélagsins í dag, sameiningu
Stykkishólmsbæjar, Grundarfjarð-
arbæjar og Helgafellssveitar, segist
Dagbjört vera hlynnt sameining-
unni. „Ef þú hefðir spurt mig fyr-
ir tíu árum hefði ég líklega svarað
öðruvísi en eftir vel ígrundað mál
tel ég að sameining sé það eina í
stöðunni. Bæði Grundarfjörður
og Stykkishólmur eru sveitarfélög
sem eru að berjast í bökkum fjár-
hagslega. Stjórnsýslukostnaðurinn
er býsna hár fyrir svo fámenn sveit-
arfélög. Við sjáum bara ráðhúsin.
Það er ekki skynsamlegt að sveit-
arfélögin séu að reka tvö slík. Það
er alltof mikil yfirbygging á Íslandi
miðað við fámenni,“ segir Dag-
björt.
„Margir óttast það að verði ekki
skóli á öðrum hvorum staðnum.
Ég held að það þyrfti alltaf að vera
skóli á báðum stöðum en það gæti
verið að það yrðu breytingar á nýt-
ingu þeirra. Það væri t.d. mögu-
leiki að færa efstu bekkina í Fjöl-
brautaskólannn í Grundarfirði, það
gæti verið góð lausn. Það þarf bara
að skoða þau mál. Mér þykir mjög
vænt um Stykkishólm og vegna þess
vil ég sameiningu. Í sameiningu
gætu þessi þrjú sveitarfélög mynd-
að sterkari einingu en þau geta í
dag. Það er margt í ólestri í Stykk-
ishólmi sem hægt væri að bæta með
sameiningu eins og þjónusta við
eldri borgara. Ég ber hlýjan hug til
Grundarfjarðar eftir búsetu mína
þar og ég hef fulla trú að sveitar-
félögin á norðanverðu Snæfellsnesi
geti eflst sameinuð. Síðan er næsta
skref að sameina Snæfellnesið allt,“
segir Dagbjört Höskuldsdóttir að
endingu. bþb
www.skaginn3x.com
Systurfyrirtækin Skaginn hf., Þorgeir og Ellert hf. á Akranesi og 3X Technology ehf. á Ísafirði mynda saman Skaginn 3X.
Fyrirtækin framleiða og selja sérsniðnar hátæknilausnir fyrir matvælaiðnað á alþjóðamarkaði og er viðskiptavinina að finna
víðsvegar um heiminn. Tæknistigið er hátt og starfsmenn eru rúmlega 200 talsins í starfsstöðvum sem eru um 14.000 m2.
Starfsemin hefur vaxið mjög síðustu misseri en frumkvöðla- og nýsköpunarandinn hefur viðhaldist allt frá fyrsta degi. Áhersla
er lögð á að bjóða gæðavörur og ryðja braut nýrrar tækni sem færir viðskiptavinum og umhverfinu verulegan ávinning.
Skaginn 3X hlaut nýlega Útflutningsverðlaun forseta Íslands og Nýsköpunarverðlaun Íslands.
Starfið felur í sér smíði, samsetningu og uppsetningu á rafbúnaði auk þjónustu og viðhalds
á tækjabúnaði víða um heim. Áhersla er lögð á framúrskarandi þjónustulund og metnað í starfi.
Hæfniskröfur: Sveinspróf í rafvirkjun
Starfið krefst mikilla hæfileika í mannlegum samskiptum og lausnamiðuðu hugarfari gagnvart
hinum ýmsu verkefnum sem upp koma hjá viðskiptavinum okkar. Starfsmaðurinn þarf að vera
bjartsýnn, úrræðagóður og vandaður ásamt því að ganga skipulega til verka.
Í boði er góð vinnuaðstaða og vinnuandi í lifandi starfsumhverfi. Upplýsingar um starfsemi
fyrirtækisins er að finna á vefsíðu okkar, www.skaginn3x.com
Nánari upplýsingar um starfið veitir Tómas Alexander Árnason tomasa@skaginn3x.com
Umsóknarfrestur er til og með 21.ágúst.
Umsóknir sendist á job@skaginn3x.com.
Vegna aukinna verkefna innanlands og utan óskum við eftir að ráða rafvirkja til starfa.
Rafvirkjar óskast
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Grunnskólinn í Borgarnesi
Kynningarfundur 23. ágúst kl. 17.00 í Hjálmakletti
Boðað er til fundar um fyrirhugaðar framkvæmdir við endurbætur á skólahúsnæði og viðbyggingu. Ráðist
verður í verulegar endurbætur á núverandi húsnæði á næstunni ásamt því að hafin verður bygging
mötuneytis og salar í viðbyggingu við skólann.
Dagskrá:
Núverandi staða húsnæðis Grunnskólans í Borgarnesi
Fulltrúi frá Verkfræðistofunni Eflu
Áætlun um endurbætur og viðbyggingu
Orri Árnason arkitekt og Pálmi Þór Sævarsson, formaður bygginganefndar Grunnskólans í Borgarnesi
Fyrirspurnir
Sveitarstjórn Borgarbyggðar
Verslunin Sjávarborg, sem Dagbjört rak til ársins 2012. Ljósm. úr safni.
Svipmynd frá Stykkishólmi, heimabæ Dagbjartar. Ljósm. úr safni.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is