Skessuhorn


Skessuhorn - 16.08.2017, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 16.08.2017, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 16. áGúST 2017 21 Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrir tækinu starfa um 600 manns með fjöl breytta menntun og bakgrunn. Norðurál vill stuðla að jöfnu hlutfalli karla og kvenna innan fyrirtækisins og jöfnum tækifærum til starfsþróunar. Norðurál leitar að rafvirkjum Norðurál leitar að metnaðarfullum rafvirkjum. Verkefnin eru fjölbreytt og felast einkum í viðhaldi, endurnýjun og endurbótum á tæknibúnaði Norðuráls. Norðurál leggur áherslu á heilsusamlegt, öruggt og ánægjulegt starfsumhverfi. Eins er lögð rík áhersla á góðan starfsanda. Nánari upplýsingar veitir Sigríður Pétursdóttir ráðningastjóri í síma ��� ����. Umsóknarfrestur er til og með ��. ágúst ����. Sótt er um á vefsvæði Norðuráls, www.nordural.is. Menntunar- og hæfnikröfur: • Sveinspróf í rafvirkjun • Sterk öryggisvitund • Góð þekking á viðgerðum • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Góð almenn tölvukunnátta • Metnaður, öguð vinnubrögð og rík ábyrgðarkennd • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum • Reynsla af vinnu við háspennubúnað er kostur Reykholtskirkja Verið innilega velkomin í Reykholtskirkju S K E S S U H O R N 2 01 7 - L jó sm . G Ó Messa sunnudaginn 20. ágúst kl. 14 10. s. e. trinitatis Sóknarprestur Nýnemar mæta 18. ágúst kl 09:00 og fá þá stundatöflur afhentar og fleiri upplýsingar varðandi skólastarfið. Dagurinn hefst með sameiginlegum morgunverði nýnema og starfsfólks. Kennsla hefst miðvikudaginn 21. ágúst samkvæmt stundatöflu. SK ES SU H O R N 2 01 7 Skólabyrjun í Menntaskóla Borgarfjarðar Fyrir ári greindi Skessuhorn frá því að pípulagningameistarinn Hilmir B. Auðunsson hygðist flytja fyrir- tæki sitt frá Borgarnesi til Reykja- víkur vegna þess að hann gat ekki mannað fyrirtækið. Nú ári síð- ar er annað upp á teningnum hjá Hilmi en hann rekur enn fyrirtæk- ið í Borgarnesi og hefur nú stækkað það. „Fréttin í Skessuhorni í fyrra um að ég ætlaði að færa starfsem- ina vakti mikla athygli hér í Borgar- nesi. Ég fann fyrir miklum vilja bæj- arbúa að halda fyrirtækinu áfram hér innan sveitarfélagsins. Þetta hafði að sjálfsögðu áhrif á mig og ég hélt starfseminni gangandi. Um áramótin gekk Páll Sigurðsson svo inn í fyrirtækið og keypti helmings- hlut í því. Með því var staðan orðin önnur og ég gat haldið starfseminni áfram á svæðinu,“ segir Hilmir. Með innkomu Páls í fyrirtækið var ákveðið að breyta nafni þess úr Hilmi B. ehf. í HP pípulagnir ehf. Nú í sumar festi fyrirtækið svo kaup á iðnaðarhúsnæði við Brákarbraut 18-20. „Við eigum annan endann á þessari lengju hér í Brákarey. Við höfum verið í bráðabirgðahús- næði frá áramótum en það munar miklu að vera komnir í húsnæði sem maður getur byggt til framtíð- ar. Við erum með lager í húsnæð- inu og höfum stækkað lager fyrir- tækisins um 40% eftir flutninginn á Brákarbraut. Það er alveg nauðsyn- legt fyrir fyrirtæki sem þetta sem starfar utan höfuðborgarsvæðisins að vera með stóran og góðan lager eins og við erum með hér, það bæt- ir þjónustuna umtalsvert og er mik- ill tímasparnaður. Það er erfitt að koma svona lager upp en til fram- tíðar litið er það alltaf þess virði,“ segir Páll. Þeir Páll og Hilmir horfa björt- um augum á framhaldið enda nóg af verkefnum framundan. „Við sjáum það núna að það verða næg verk- efni fram að áramótum. Við Páll höfum sömu sýn á fyrirtækið að því leyti að við viljum fyrst og fremst þjónusta fyrirtæki og einstaklinga og erum minna í því að vinna und- ir byggingaverktökum. Þetta lítur bara vel út hjá okkur,“ segir Hilm- ir. á næstunni mun nemi sem hefur verið hjá þeim Páli og Hilmi láta af störfum og klára sitt nám. Nokkur skortur er á pípulagningamönnum í landinu en þeir hjá HP pípulögn- um óttast ekki að geta ekki mannað fyrirtækið. „Að vera pípari er gott starf og vel launað, maður vill bara hvetja fólk að mennta sig í pípu- lögnum. Við erum allavega opnir fyrir því að taka nema til okkar,“ segir Páll að endingu. bþb HP pípulagnir auka starfsemina í Borgarnesi Starfsmenn HP pípulagna; Ingi Sigurður Ólafsson, Hilmir B. Auðunsson, Gunnar Freyr Guðlaugsson og Páll Sigurðsson. Hilmir og Páll fyrir utan nýtt húsnæði fyrirtækisins.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.