Skessuhorn - 16.08.2017, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 16. áGúST 201724
Guðmunda Ólöf Jónasdóttir úr
Borgarnesi, eða Mumma Lóa, er
nú stödd í Búdapest í Ungverja-
landi á Heimsmeistaramótinu í
garpasundi, Fina World Masters
Championships. Um er að ræða
sundmót fyrir eldri iðkenndur og er
mótinu aldurskipt þar sem yngstu
keppendurnir keppa í flokki 25-29
ára og þeir elstu í flokki 95-99 ára.
Guðmunda er 68 ára gömul og
mun því keppa í flokki 65-69 ára
en með henni í för eru börn henn-
ar Hildur Karen og Jónas Pét-
ur ásamt eiginkonu hans; Björgu
Bjarkeyju. „Ég met það mikils að
þau komi með mér, það eru for-
réttindi. Svona mót snúast fyrst og
fremst um að hafa gaman og það
skemmir ekki fyrir að fá slíkan fé-
lagsskap með sér í þetta ævintýri
og ég gæti ekki gert þetta án að-
stoðar þeirra,“ segir Guðmunda,
en Skessuhorn heyrði í henni rétt
áður en hún hélt utan til Ung-
verjalands. Guðmunda hóf keppni
í gær, þriðjudag, og keppir aftur á
morgun en hún keppir í 50 metra
og 100 metra skriðsundi. Hildur
Karen mun keppa í sömu greinum
í öðrum aldursflokki og Jónas Pét-
ur keppir í 100 metra bringusundi
og 200 metra fjórsundi.
„Ég hef keppt á tveimur Norður-
landamótum sem haldin voru hér á
landi og einu í Færeyjum. Þá fór-
um við Hildur Karen til London
í fyrra á Evrópumeistaramót garpa
í London. Maður kynnist mörgu
skemmtilegu fólki á þessum mót-
um og á mótinu í London á síð-
asta ári kynntist ég einni jafnöldru
minni og spurði hún mig hvort
við myndum ekki hittast á Heims-
meistaramótinu í Búdapest og ég
ákvað að slá til. Mótið í Búdapest
er samt töluvert stærra en öll þau
mót sem ég hef farið á. Það verða
rúmlega tuttugu þúsund kepp-
endur á mótinu í sundi, dýfing-
um, sundfimi og víðavatnssundi.
Það hefur orðið gífurleg aukning
í þátttöku á svona mótum hjá eldra
fólki. Það mættu fleiri frá Íslandi
taka þátt í garpamótum og von-
andi förum við að sjá meiri áhuga
hér á landi,“ segir Guðmunda.
Aldrei of seint að byrja
Guðmunda segir að fólk sé aldrei
of gamalt fyrir íþróttir og seg-
ist vonast til að geta stundað sund
á meðan hún hafi þrótt til þess.
„Sund er mjög góð íþrótt að því
leyti að hún er svo alhliða og reyn-
ir á allan líkamann. Maður er sí-
fellt í keppni við sjálfan sig að
reyna gera betur eða í það minnsta
að verða ekki verri. Það eru lág-
mörk á Heimsmeistaramótið og
við erum 46 í mínum flokki og ég
er með 33 besta tímann af þeim
keppendum. Eina markmiðið sem
ég er með fyrir mótið er að gera
betur og komast einu sæti ofar þá
væri ég ánægð,“ segir Guðmunda.
„Íþróttir eru hollar öllum en
hver og einn verður að finna eitt-
hvað við sitt hæfi; bæði að finna
hvað manni finnst skemmtilegt og
hversu mikið maður getur gert.
Það er ekki gott að æfa þannig að
líkaminn ráði ekki við það og held-
ur ekki að fara of geyst af stað,“
segir Guðmunda sem vill meina
að það sér aldrei of seint fyrir fólk
að byrja að hreyfa sig. „Það ættu
allir að geta fundið hreyfingu eða
íþróttir við sitt hæfi. Það eru ekki
bara afrekíþróttamenn sem geta
stundað íþróttir. Sá eini sem mað-
ur er raunverulega að keppa við er
maður sjálfur,“ segir Guðmunda
að endingu.
bþb
Sextíu og átta ára á Heimsmeistaramóti í sundi
Jónas Pétur, Hildur Karen og Guðmunda Ólöf á mótinu í Ungverjalandi.
Lokakvöld fegurðarsamkeppninn-
ar Ungfrú Ísland verður í Hörpu
í Reykjavík laugardagskvöldið 26.
ágúst næstkomandi. Meðal kepp-
enda er úrsúla Hanna Karlsdóttir
frá Hrafnkelsstöðum á Mýrum. „Ég
hef satt að segja aldrei fylgst mik-
ið með Ungfrú Ísland,“ segir úr-
súla í samtali við Skessuhorn. „Ég
rakst á snapchat-aðgang keppninn-
ar þegar Anna Lára Orlowska var
með snappið meðan hún keppti í
Miss World á síðasta ári. Hún var
svo skemmtileg og indæl og virtist
hafa svo gaman af því að vera þarna
að það kveikti áhuga minn fyrir
keppninni. Ég ákvað því að slá til,
þar sem ég ímyndaði mér að þetta
yrði reynsla sem ég myndi aldrei
gleyma. Og hún er það,“ segir hún.
Því varð úr að úrsúla sótti um raf-
rænt, var boðuð í viðtal og síðan lát-
in vita að hún hefði komist inn. „Ég
var mjög hissa þegar ég fékk að vita
að ég hefði komist í keppnina. Ég
hafði engum sagt nema mömmu að
ég hefði sótt um og bjóst engan veg-
inn við því að komast inn. Ég fékk
því smá sjokk fyrst en svo var ég bara
mjög ánægð en líka aðeins stressuð,“
segir úrsúla.
„Út fyrir
þægindarammann“
Þessa dagana stendur yfir stífur und-
irbúningur fyrir lokakvöldið, keppn-
ina sjálfa, sem fram fer laugardaginn
26. ágúst næstkomandi. „Við hitt-
umst reglulega í hverri viku, oft fyrir
viðburði, í hópefli og síðan eru auð-
vitað gönguæfingar. Við erum enn á
fullu á gönguæfingum þar sem æft
er fyrir lokakvöldið svo við getum
vanist því að ganga á háum hælum,“
segir úrsúla. „Ég myndi segja að
ferlið sé krefjandi því margar okk-
ar eru þarna að upplifa hluti sem við
höfum aldrei gert áður. Maður þarf
að fara út fyrir þægindarammann,
en það er líka það sem gerir mann
reynslunni ríkari,“ bætir hún við.
„Að bíða eftir úrslitakvöldinu er síð-
an góð blanda af stressi og eftirvænt-
ingu. án efa verður þetta ógleyman-
leg lífsreynsla með æðislegu fólki.“
Ætlar að njóta þess að
taka þátt
Það er auðheyrt á úrsúlu að henni
þykir þátttakan í Ungfrú Ísland afar
ánægjuleg. „Þetta er mjög gaman
og varla hægt að velja eitthvað eitt
sem er skemmtilegast, þetta hefur
allt sinn sjarma. En ef ég þyrfti að
velja myndi ég segja að skemmti-
legast væri að hafa fengið að kynn-
ast öllum þessum flottu stelpum,
bæði þeim sem eru að keppa og
þeim sem eru að leiðbeina okkur í
gegnum ferlið,“ segir úrsúla. Hún
kveðst ekki hafa sett sér markmið
um sigur í keppninni, fyrst og fremst
njóta þess að taka þátt og reyna að
draga einhvern lærdóm af lífsreynsl-
unni. „Einu markmiðin sem ég setti
mér í raun þegar ferlið hófst var að
hafa gaman af þessu, taka áskorun-
um eins og þær birtast og koma út
úr þessu sem betri og sjálfsöruggari
manneskja,“ segir hún og mælir með
Ungfrú Ísland fyrir allar áhugasam-
ar. „Ég mæli með þessu fyrir allar
stelpur sem hafa áhuga á keppninni.
Ef þær eru eitthvað að velta því fyrir
sér að sækja um þá hvet ég þær til að
slá til,“ segir úrsúla.
„Nú er lokaspretturinn framund-
an og mig langar að nýta tækifærið
til að þakka fyrir mig, keppendum
sem standa í þessu með mér, fjöl-
skyldunni og vinum og svo auðvitað
fyrrum keppendum og eigendum
keppninnar. Ég mun aldrei gleyma
þessu ferli,“
kgk
Úrsúla Hanna Karlsdóttir tekur þátt í Ungfrú Ísland:
„Verður ógleymanleg lífsreynsla
með æðislegu fólki“
Úrsúla Hanna Karlsdóttir frá Hrafnkelsstöðum á Mýrum keppir í Ungfrú Ísland.