Skessuhorn - 16.08.2017, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 16. áGúST 2017 25
Tjaldsvæðið í Kalmansvík á Akra-
nesi var opnað 5. maí í vor og verð-
ur opið til 1. október næstkomandi.
ása Katrín Bjarnadóttir og Sigga
Dísa Þórhallsdóttir hafa sinnt sumar-
starfi á tjaldsvæðinu í sumar en tjald-
svæðið er í rekstri hjá Akraneskaup-
stað. Skessuhorn hitti ásu að máli á
mánudag og rifjuð var upp reynsla
þeirra af starfinu í sumar. ása segir
vel hafa gengið í sumar og tjaldsvæð-
ið hafi verið vel sótt. „Ég hef ekki töl-
ur á reiðum höndum fyrir þetta sum-
ar. En okkar tilfinning er sú að tjald-
svæðið hafi verið mjög vel sótt í ár og
teljum að gestum hafi fjölgað tölu-
vert frá síðasta ári. Nánast öll kvöld
fyllist tjaldsvæðið af fólki, stundum er
fólk að koma alveg fram á nótt. Það
eru helst erlendir ferðamenn sem
eru búnir að keyra allan daginn og
skoða sig um en koma á tjaldsvæðið
og gista bara yfir blánóttina. Sumir
eru þá jafnvel farnir þegar við mæt-
um um morguninn og borga ekki,“
segir ása og bætir því við að þónokk-
uð sé um slíkt á tjaldsvæðum lands-
ins. „Langflestir vilja borga en það er
töluvert meira en ég hafði ímyndað
mér um það að fólk borgi ekki. Ég
hef rætt þetta við fólk sem sér um
tjaldsvæði annars staðar á landinu og
þau hafa enn verri sögu að segja af
þessu en við hér á Akranesi. Það er
töluvert mikið um þetta og við verð-
um vör við að sumum ferðamönnum
finnst dýrt að vera á Íslandi og reyna
að spara með því að borga ekki,“ seg-
ir hún. „Mér heyrist þetta ekki vera
jafn mikið vandamál hjá okkur og
annars staðar. Ef við ættum að ná öll-
um sem koma á tjaldsvæðið þyrfi að
vera vakt allan sólarhringinn,“ bætir
hún við.
Gaman að kynnast
ólíkum þjóðum
Þær skipta vöktunum á milli sín
þannig að aðra vikuna tekur ása dag-
vaktina og kvöldvaktina hina vik-
una. Síðan skipta þær helgunum á
milli sín. „Þetta hentar mér mjög
vel. Ég var nýbúin í fæðingarorlofi
og í fjarnámi þegar við byrjuðum.
Nú er skólinn búinn og þessi vinna
fer ágætlega saman við að eiga lít-
il börn,“ segir ása. „Það er búið að
vera mjög skemmtilegt að standa
í þessu. Við höfum orðið varar við
fastakúnna sem við fáum aftur og aft-
ur, í bland við nýja túrista,“ segir ása
og kveðst meta mikils að hafa feng-
ið að kynnast fólki frá hinum ýmsu
löndum. „Ég held það væri kjör-
ið fyrir mannfræðing að reka tjald-
svæði,“ segir ása. „Sjálf var ég að
læra ferðamálafræði og finnst gam-
an að pæla í því hverjir koma til okk-
ar. Við höldum utan um tölfræði fyr-
ir Ferðamálastofu, m.a. um þjóð-
erni ferðamanna sem koma til okkar.
Ég held að það myndi nægja að vera
með nokkra valmöguleika hjá okk-
ur. Hingað koma Bandaríkjamenn,
Þjóðverjar og Frakkar, fyrir utan Ís-
lendinga auðvitað. Það var síðan um
miðjan júní að allt í einu kom fullt af
fólki frá Sviss og Tékklandi. Aðrar
þjóðir mynda bara lítið brot af okkar
gestum, þeir eru langflestir frá þess-
um löndum.“
Vilja geta vísað
á fleiri staði
„Flestir sem koma til okkar eru að
koma beint af flugvellinum eða þá
eru að fara á flugvöllinn. Við erum
því annað hvort fyrsti eða síðasti við-
komustaðurinn,“ segir ása. „Þeir
sem koma beint til okkar úr flugi vilja
gjarnan skoða sig um. Hjá okkur, rétt
eins og öllum sem starfa í ferðaþjón-
ustu, er hluti af starfinu að veita upp-
lýsingar,“ segir hún. „Við þekkjum
ekki alla staði og erum ekki við allan
sólarhringinn. Því vildum við gjarn-
an fá fleiri bæklinga frá fyrirtækjum á
svæðinu sem vísa á áhugaverða staði
í nágrenninu. Við höfum fengið Tra-
vel West Iceland sem Skessuhorn
gefur út og bæklinginn frá Markaðs-
stofu Vesturlands. Veitingastaðirnir
Galito og Gamla Kaupfélagið komu
með litla bæklinga en okkur vantar
sárlega meira efni frá stöðum og fyr-
irtækjum á Akranesi og í nágrenninu.
Ferðamenn vilja gjarnan grípa þetta
með sér þannig að ég hvet ferðaþjón-
ustufólk til að koma til okkar kynn-
ingarefni ef það er til,“ segir hún.
Gestir almennt
snyrtilegir
ása segir gesti almennt vera til fyrir-
myndar en þó sé umsjón tjaldsvæðis-
ins ekki alltaf dans á rósum. ása tel-
ur heldur halla á sig þegar kemur að
óheppilegum atvikum. „Ég bara er
svo ótrúlega óheppin. Ef það þarf að
þrífa kúk á salerninu þá er það und-
antekningalaust ég sem er á vaktinni
þegar það gerist. Sigga er svo heppin
að hún lendir aldrei í neinu svona,“
segir ása og bætir því við að stund-
um fylgi nokkur óþrifnaður gestum
tjaldsvæðanna. „Salernin eins og við
þekkjum þau, þar sem fólk sest nið-
ur, eru ekki til alls staðar í heimin-
um. Hingað koma gestir sem eru
vanir því að setjast á hækjur sér fyrir
ofan litla skál eða jafnvel bara holu.
Er vant því og vill ekki setjast á set-
una. Þá er því kannski viðbúið að það
verði einhver slys,“ segir hún.
Fann kynlífsleikfang
á klósettinu
Þó geta óvæntu atvikin einnig ver-
ið bæði skemmtileg og stórundar-
leg. Gefum ásu orðið á nýjan leik: „Í
sumar lenti ég í stórkostlegu atviki.
Það voru sem sagt settir upp nýir kló-
settgámar fyrir Norðurálsmótið og
Skátamótið sem eru enn á tjaldsvæð-
inu og verða áfram. Nokkru seinna
er ég á vakt, mæti inn á eitt karlakló-
settið og byrja að þrífa. Blasir þá
ekki við mér, standandi á hillu fyrir
ofan klósettið, risastórt „butt plug“,“
segir ása og hlær. Fyrir þá sem ekki
þekkja er „butt plug“ kynlífsleik-
fang sem ætlað er að veita kynferðis-
lega örvun þegar því er stungið upp
í endaþarminn. „Hver tekur þetta
með í útilegu og hvar er þetta á for-
gangslistanum yfir það sem maður
bara verður að hafa með sér í tjald-
inu? Ég lokaði bara klósettinu því ég
var gersamlega í hláturskasti,“ seg-
ir ása. „Þegar ég var búin að hlæja í
smá stund hugsaði ég með mér að ég
yrði nú að halda áfram. „Kannski er
þetta ekkert „butt plug“. Ég er eng-
inn útilegusérfræðingur, þetta gæti
alveg verið einhver viðlegubúnað-
ur,“ hugsaði ég. Ég ákvað því að pota
í gripinn. Þá sveiflaðist hann örlítið
og var augljóslega úr gúmmíi. „Jú,
þetta er „butt plug“ hugsaði ég,“
segir ása og hlær við. „Ég er búin
að lifa á þessu atviki í meira en mán-
uð. Þetta er eitt það fyndnasta sem
ég hef lent í,“ segir hún og bætir
því við að gripnum hafi verið hent.
„Eigandinn verður bara að setja sig
í samband við Akraneskaupstað og
kvarta ef hann er reiður yfir því að
þetta hafi farið í ruslið,“ segir hún
létt í bragði.
Almenn ánægja
með dvölina
En þrátt fyrir að einn og einn óvænt-
ur aukahlutur skjóti upp kollinum
og einstaka óhapp verði á salernun-
um ítrekar ása að gestir gangi flest-
ir mjög vel um svæðið. „Við leggjum
líka mikið upp úr því að hafa snyrti-
legt. Það er mikilvægt að fólk sem
gistir í tjaldi geti komið inn á snyrti-
legt salerni og sturtur, tala nú ekki
um ef það er rigning og rok úti,“
segir hún.. „Fólk er þakklátt fyr-
ir það, flestir eru til fyrirmyndar og
er ánægðir með dvölina,“ segir ása
Katrín Bjarnadóttir að endingu.
kgk
„Búið að vera mjög skemmtilegt að standa í þessu“
- segir Ása Katrín Bjarnadóttir um rekstur tjaldsvæðisins á Akranesi
Ása Katrín Bjarnadóttir og Sigga Dísa
Þórhallsdóttir hafa haft umsjón með
tjaldsvæðinu á Akranesi í sumar.
Ása Katrín og Sigga Dísa á tjaldsvæðinu í Kalmansvík.