Skessuhorn - 16.08.2017, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 16. áGúST 2017 21
Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrir tækinu starfa um 600 manns með
fjöl breytta menntun og bakgrunn. Norðurál vill stuðla að jöfnu hlutfalli karla og kvenna innan
fyrirtækisins og jöfnum tækifærum til starfsþróunar.
Norðurál leitar
að rafvirkjum
Norðurál leitar að metnaðarfullum rafvirkjum. Verkefnin eru fjölbreytt og
felast einkum í viðhaldi, endurnýjun og endurbótum á tæknibúnaði Norðuráls.
Norðurál leggur áherslu á heilsusamlegt, öruggt og ánægjulegt starfsumhverfi.
Eins er lögð rík áhersla á góðan starfsanda.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Pétursdóttir ráðningastjóri í síma ��� ����.
Umsóknarfrestur er til og með ��. ágúst ����. Sótt er um á vefsvæði Norðuráls,
www.nordural.is.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Sveinspróf í rafvirkjun
• Sterk öryggisvitund
• Góð þekking á viðgerðum
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð almenn tölvukunnátta
• Metnaður, öguð vinnubrögð og
rík ábyrgðarkennd
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum
samskiptum
• Reynsla af vinnu við háspennubúnað
er kostur
Reykholtskirkja
Verið innilega velkomin í Reykholtskirkju
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
7
- L
jó
sm
. G
Ó
Messa sunnudaginn 20. ágúst kl. 14
10. s. e. trinitatis
Sóknarprestur
Nýnemar mæta 18. ágúst kl 09:00
og fá þá stundatöflur afhentar og fleiri
upplýsingar varðandi skólastarfið.
Dagurinn hefst með sameiginlegum
morgunverði nýnema og starfsfólks.
Kennsla hefst miðvikudaginn 21. ágúst
samkvæmt stundatöflu.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Skólabyrjun í
Menntaskóla Borgarfjarðar
Fyrir ári greindi Skessuhorn frá því
að pípulagningameistarinn Hilmir
B. Auðunsson hygðist flytja fyrir-
tæki sitt frá Borgarnesi til Reykja-
víkur vegna þess að hann gat ekki
mannað fyrirtækið. Nú ári síð-
ar er annað upp á teningnum hjá
Hilmi en hann rekur enn fyrirtæk-
ið í Borgarnesi og hefur nú stækkað
það. „Fréttin í Skessuhorni í fyrra
um að ég ætlaði að færa starfsem-
ina vakti mikla athygli hér í Borgar-
nesi. Ég fann fyrir miklum vilja bæj-
arbúa að halda fyrirtækinu áfram
hér innan sveitarfélagsins. Þetta
hafði að sjálfsögðu áhrif á mig og
ég hélt starfseminni gangandi. Um
áramótin gekk Páll Sigurðsson svo
inn í fyrirtækið og keypti helmings-
hlut í því. Með því var staðan orðin
önnur og ég gat haldið starfseminni
áfram á svæðinu,“ segir Hilmir.
Með innkomu Páls í fyrirtækið
var ákveðið að breyta nafni þess úr
Hilmi B. ehf. í HP pípulagnir ehf.
Nú í sumar festi fyrirtækið svo kaup
á iðnaðarhúsnæði við Brákarbraut
18-20. „Við eigum annan endann
á þessari lengju hér í Brákarey.
Við höfum verið í bráðabirgðahús-
næði frá áramótum en það munar
miklu að vera komnir í húsnæði
sem maður getur byggt til framtíð-
ar. Við erum með lager í húsnæð-
inu og höfum stækkað lager fyrir-
tækisins um 40% eftir flutninginn á
Brákarbraut. Það er alveg nauðsyn-
legt fyrir fyrirtæki sem þetta sem
starfar utan höfuðborgarsvæðisins
að vera með stóran og góðan lager
eins og við erum með hér, það bæt-
ir þjónustuna umtalsvert og er mik-
ill tímasparnaður. Það er erfitt að
koma svona lager upp en til fram-
tíðar litið er það alltaf þess virði,“
segir Páll.
Þeir Páll og Hilmir horfa björt-
um augum á framhaldið enda nóg af
verkefnum framundan. „Við sjáum
það núna að það verða næg verk-
efni fram að áramótum. Við Páll
höfum sömu sýn á fyrirtækið að því
leyti að við viljum fyrst og fremst
þjónusta fyrirtæki og einstaklinga
og erum minna í því að vinna und-
ir byggingaverktökum. Þetta lítur
bara vel út hjá okkur,“ segir Hilm-
ir. á næstunni mun nemi sem hefur
verið hjá þeim Páli og Hilmi láta af
störfum og klára sitt nám. Nokkur
skortur er á pípulagningamönnum
í landinu en þeir hjá HP pípulögn-
um óttast ekki að geta ekki mannað
fyrirtækið. „Að vera pípari er gott
starf og vel launað, maður vill bara
hvetja fólk að mennta sig í pípu-
lögnum. Við erum allavega opnir
fyrir því að taka nema til okkar,“
segir Páll að endingu.
bþb
HP pípulagnir auka
starfsemina í Borgarnesi
Starfsmenn HP pípulagna; Ingi Sigurður Ólafsson, Hilmir B. Auðunsson, Gunnar
Freyr Guðlaugsson og Páll Sigurðsson.
Hilmir og Páll fyrir utan nýtt húsnæði fyrirtækisins.