Skessuhorn - 16.08.2017, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 16. áGúST 2017 19
Frá og með 1. september verður Snyrtistofa
Brynhildar starfandi að Stillholti 14, Akranesi.
Meðferðir í boði: Litanir, vax, heilnudd, andlitsböð,
augnháralengingar, fót- og handsnyrtingar.
Bókanir í síma: 695-1418
Snyrtistofa Brynhildar
Verðið velkomin,
Brynhildur Stefánsdóttir
Húðsnyrtifræðingur.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Upphaf haustannar 2017
Fjölbrautaskóli Vesturlands verður
settur fimmtudaginn 17. ágúst.
Móttaka fyrir nýnema verður á sal skólans kl. 10.
Gert er ráð fyrir dagskrá með nýnemum til kl. 14 þennan dag.
Kennsla samkvæmt stundatöflu
hefst föstudaginn 18. ágúst.
Kynningarfundur fyrir nemendur sem hefja
nám með vinnu verður haldinn mánudaginn
21. ágúst klukkan 17.
Skólameistari
Fjölbrautaskóli Vesturlands
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Upphaf skólastarfs FSN
á haustönn 2017
Skólasetning á haustönn 2017 verður föstudaginn
18. ágúst kl. 8:30.
Að lokinni skólasetningu hefst kennsla samkvæmt
stundaskrá.
Upplýsingar um skólaakstur má finna á heimasíðu
skólans, www.fsn.is.
Fjölbrautaskóli Snæfellinga er einnig á Facebook.
Kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema
verður haldinn mánudaginn 28. ágúst kl. 18.00 í sal
skólans í Grundarfirði.
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir
skólameistari
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Þrátt fyrir að ekki væri í boði útihá-
tíð á Húsafelli um verslunarmanna-
helgina, var engu að síður fjölmenni
á svæðinu í ágætu veðri. Líkt og í
sumar var boðið upp á varðeld og
söng á laugardagskvöldinu í rjóðr-
inu góða. Eins og sést á meðfylgj-
andi mynd var fjölmenni þar saman
komið, börn sem fullorðnir. bhs
Glatt á
hjalla við
varðeld í
Húsafelli
Um hádegisbil á laugardag hélt
hópur af stað í gönguferð um
Ólafsdal undir leiðsögn Birnu
Lárusdóttur fornleifafræðings.
Gangan var hluti af dagskrá Ólafs-
dalshátíðarinnar. Birna vinnur hjá
Fornleifastofnun Íslands og var
hún að eigin sögn svo heppin að fá
að hafa yfirumsjón með fornleifa-
skráningu í dalnum í samstarfi við
Minjavernd, sem hefur verið að
taka fyrstu skrefin í uppbyggingu
staðarins upp á síðkastið. Í botni
dalsins sýndi hún hópnum það
sem hún taldi að væri mögulega
skáli frá víkingaöld og nálæg tóft
sem minnti á jarðhús. Renndi það
því stoðum undir þær getgátur að
þarna væri um að ræða mannvirki
frá landnámi en jarðhús má gjarn-
an finna nálægt slíkum skálum frá
þeim tíma. Einnig báru 23 metra
langveggir skálans þau einkenni
sem hafa fundist á skálum þessa
tíma en þeir eru kúptir svo skál-
inn er breiðari í miðjunni. Von-
aðist Birna til að uppgröftur gæti
farið fram þarna sem fyrst til frek-
ari rannsókna og greiningar.
Þriðji staður
hrakfallabálks
Vafalaust eru þetta mikil tíðindi
fyrir staðinn en hópurinn og Birna
ræddu sín á milli hvort þarna væri
mögulega skáli landnámsmannsins
Ólafs Belgs. Í 42. kafla Landnámu
segir: „Óláfur belgur, er Ormur
hinn mjóvi rak á brutt úr Óláfs-
vík, nam Belgsdal og bjó á Belgs-
stöðum, áður þeir Þjóðrekur ráku
hann á brutt; síðan nam hann inn
frá Grjótvallarmúla og bjó í Óláfs-
dal...“. Gefur það til kynna að
Ólafur hafi verið mikill hrakfalla-
bálkur og að Ólafsdalur hafi ver-
ið þriðji staðurinn sem hann nam
land, á eftir Ólafsvík á Snæfellsnesi
og síðar í Belgsdal í Saurbæ. Dal-
urinn var þar með ekki fyrsti kost-
ur landnámsmanns enda staðsetn-
ingin að mörgu leyti óvenjuleg, að
sögn Birnu, fyrir skála þessa tíma.
Mögulega sé hægt að rekja hana
til þess að ábúendur hafi átt auð-
veldara með að verjast óvelkomn-
um aðkomumönnum á þeim stað
sem skálinn er.
Vel varðveittar minjar
Auk þess að leiða gönguna flutti
Birna ávarp í hátíðartjaldinu
við Ólafsdalshúsið þar sem hún
greindi nánar frá verkefninu og
ræddi einnig minjar bændaskól-
ans. á túnum og úthögum má
finna áveitumannvirki, kerruvegi
og mógrafir sem sýni umfangið á
því sem var unnið í dalnum á tím-
um bændaskólans. Hvernig hugvit,
tilraunastarfsemi og vinnuafl vann
saman undir stjórn Torfa Bjarna-
sonar. „Ólafsdalur er óvenjuleg-
ur minjastaður og hálfgerður fjár-
sjóður fyrir áhugamenn um minj-
ar og landbúnaðarsögu. Menn-
ingarlandslagið er einstakt hérna
og langt frá því að vera dæmi-
gert.“ Einnig sagði hún það vera
dýrmætt hversu vel minjar stað-
arins hafa varðveist því víða væri
til dæmis búið að slétta úr beða-
sléttum sem sjást mjög greinilega
víða í dalnum, sem og þeim fornu
minjum sem greint hefur verið frá.
Skýrslu má vænta í vetur með nán-
ari niðurstöðum úr þessari vett-
vangsvinnu og skráningum í vet-
ur.
sla
Telja að víkingaaldarminjar
hafi fundist í Ólafsdal
Gönguhópurinn að skoða nýfundnar minjar. Meirihluti hópsins stendur á langvegg fjær og má sjá móta fyrir skála þvert yfir
miðja mynd.
Birna Lárusdóttir greinir gönguhópn-
um frá fundinum í botni Ólafsdals.