Skessuhorn - 06.12.2017, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 201718
upp undir 30 stöðugildi yfir sum-
arið. Sveiflurnar eru því mun væg-
ari núna en áður og innkoman jafn-
ari. Nóvember er dauðasti tíminn
en samt hefur verið alveg fínt að
gera, en hingað eru Borgnesingar
líka duglegir að koma. Íslandsstofa
hefur mikið unnið að því undan-
farin ár að fá ferðamenn hingað til
lands yfir veturinn og er ég viss um
að herferðir þeirra eiga stóran part
í því hvernig ferðamannastraum-
urinn hefur jafnast yfir árið,“ segir
Guðmundur.
Í Landnámssetrinu hefur frá
upphafi verið boðið upp á fersk há-
degishlaðborð frá klukkan 11:30
til 15 alla daga. „Á hlaðborðinu er
boðið upp á grænmetisrétti og veg-
an rétti. Súpuna okkar ættu allir að
geta borðað en hún er alltaf vegan,
glútenlaus og laktósafrí. Hlaðborð-
ið hefur alltaf verið mjög vinsælt og
okkur þykir mjög vænt um hversu
duglegir Borgnesingar eru að koma
til okkar í hádeginu. Við leggjum
okkur mikið fram við að þjónusta
heimamenn jafnt sem ferðamenn,
þó um 80% viðskiptavina okkar séu
ferðamenn,“ segir Guðmundur.
Langar ekki að búa í
stórborg
Aðspurður hvort ekki hafi verið erf-
itt að flytja í Borgarnes eftir að hafa
búið í stórborgum á borð við Los
Angeles segir Guðmundur svo ekki
vera og að hann myndi alltaf velja
smábæinn fram yfir borgina. „Það
kann kannski að hljóma furðulega,
en innsti hringurinn manns verður
mun stærri í smábæ heldur en stór-
borg. Í smábæ þekkir maður alla og
það þarf ekki annað en að skjótast
út í búð til að hitta fólk sem mað-
ur spjallar við. Í stórborg hverfur
maður meira í fjöldann og kynn-
ist afar fáum, þekkir jafnvel ekki
nágranna sína með nafni og hitt-
ir afskaplega sjaldan einhvern sem
maður þekkir. Mér líður mun betur
í svona vingjarnlegum bæ þar sem
allir þekkjast. Borgarnes hefur líka
svo margt með sér, hér eru frábær-
ir leikskólar, öll þjónusta sem þarf
og virkilega barnvænt umhverfi þar
sem börn geta farið út að leika án
þess að hafa foreldra með, labb-
að út í búð, spurt eftir vinum og
búa bara almennt við mikið frelsi.
Svona er þetta ekki í stórborgum.
Í Los Angeles eru mjög lélegar al-
menningssamgöngur og það getur
hreinlega verið hættulegt fyrir börn
að nota þær ein. Allar vegalengdir
eru mjög langar og börn fara t.d.
ekkert að hjóla út í búð ein eða
heim til vinar. Þau fara í skólann og
svo beint heim aftur, nema eitthvað
annað sé skipulagt og þá með fyrir-
vara. Börn í stórborgum verða því
oft mjög einangruð,“ segir Guð-
mundur. „Ég hafði líka fengið alveg
nóg af því að búa erlendis og vera
alltaf útlendingurinn. Ef ég fæ svo
aftur löngun til að flytja út er ekkert
því til fyrirstöðu, það er alltaf hægt
að flytja,“ bætir hann við.
Opna krakkakaffihús
Aðspurður hvort eitthvað nýtt sé
framundan í Landnámssetrinu seg-
ir Guðmundur að nú sé verið að
undirbúa opnun á krakkakaffihúsi
á efri hæð hússins. „Við erum með
rosalega fína aðstöðu á efri hæð-
inni sem okkur langar að breyta í
krakkakaffihús. Þá er hugmynd-
in að hafa þar gott leikhorn fyrir
börnin og aðstöðu fyrir foreldra að
koma saman. Þangað geta þá for-
eldrar hitt aðra foreldra og feng-
ið sér smá kaffi í rólegheitunum og
börnin geta leikið við önnur börn
á meðan. Stefnan er að opna kaffi-
húsið mánudaginn 18. desember,
en þá kemur Ævar vísindamaður
og Guðni bróðir hans og lesa upp
úr bókum sínum fyrir okkur. Það er
einmitt vel við hæfi að Ævar komi
við opnun á krakkakaffihúsi,“ segir
Guðmundur og hlær.
„Aðrar stórvægilegar breytingar
eru ekki í vændum eins og er. Við
verðum þó með mjög skemmtilega
viðburði í desember. Fimmdudag-
inn 7. desember og þriðjudaginn
12. desember ætlum við að færa há-
degishlaðborðið okkar í jólabún-
ing. Þá verðum við með hefðbund-
inn jólamat í bland við grænmetis-
réttina okkar og fleira. Verðið er
það sama og alla aðra daga. Þetta er
svona okkar jólagjöf til samfélags-
ins. Það er alltaf uppbókað á þessi
hlaðborð hjá okkur og því mikil-
vægt að panta borð. Laugardaginn
9. desember koma KK og Ellen
og halda jólatónleika klukkan 20.
Miðar verða bara seldir við hurð
og ekki hægt að panta fyrirfram.
Síðan heldur Vilborg Davíðsdóttir
áfram eftir áramót með sýninguna
um Auði Djúpúðgu,“ Ssegir Guð-
mundur og bætir því við að opnun-
artími verði hefðbundinn yfir há-
tíðarnar, frá klukkan 10-21, að und-
anskildum aðfangadegi og gamlárs-
degi en þá verður lokað klukkan
15. „Við viljum að okkar viðskipta-
vinir geti alltaf treyst á opnunar-
tímann og því höfum við hann eins
alla daga ársins, nema aðfangadag
og gamlársdag. Eins geta viðskipta-
vinir okkar treyst á að hádegishlað-
borðið er opið alla daga ársins, líka
á aðfangadag og gamlársdag,“ segir
Guðmundur.
arg
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Aðalskipulag Dalabyggðar
2004-2016
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 22. nóvember
2017 að auglýsa skipulags- og matslýsingu að breytingu á
Aðalskipulagi Dalabyggðar 2004-2016.
Hér er sett fram sameiginleg skipulags- og matslýsing fyrir
7 breytingar á aðalskipulagi Dalabyggðar 2004- 2016
samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingarnar sjö eru eftirfarandi:
Efnistökusvæði í landi Hvítadals í Hvolsdal.1.
Vindorkugarður við Hróðnýjarstaði.2.
Iðnaðarlóð fyrir gagnaver og fleira.3.
Íbúðarsvæði í Búðardal.4.
Stækkun verslunar- og þjónustusvæðis í Búðardal.5.
Frístundasvæði í landi Hlíðar í Hörðudal.6.
Stækkun byggðalínu. 7.
Með skipulags- og matslýsingu þessari er íbúum og öðrum hagsmuna-
aðilum gefinn kostur á að koma með ábendingar og athugasemdir sem
snúa að málefnum aðalskipulags og komandi skipulagsvinnu.
Tillögurnar liggja frammi, frá 7. desember 2017 til 5. janúar 2018
á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal,
heimasíðu sveitarfélagsins www.dalir.is.
Athugasemdum eða ábendingum skal skila til skrifstofu
skipulagsfulltrúa að Miðbraut 11 Búðardal eða netfangið
byggingarfulltrui@dalir.is fyrir 5. janúar 2018.
Dalabyggð 30. nóvember 2017
Bogi Kristinsson Magnusen
skipulags- og byggingarfulltrúi
„Borgarnes er að mínu mati besti
staður í heimi,“ segir Guðmundur
Karl Sigríðarson, framkvæmdastjóri
Landnámsseturs Íslands í Borgar-
nesi. Hann ætti að vita þetta, enda
búinn að búa ansi víða um heiminn.
Guðmundur er fæddur Reykjavík
en flutti fimm mánaða til Englands.
Frá sjö ára aldri ólst hann að mestu
upp í Vesturbæ Reykjavíkur. Hann
bjó í eitt ár í Mexíkó þegar hann var
15 ára og dvaldi í þrjá mánuði á ári
í Los Angeles frá 11-16 ára aldurs.
Einnig hefur hann búið í Svíþjóð
í tíu ár, þar sem hann lærði póli-
tíska alþjóðahagfræði við háskól-
ann í Lundi. „Það var ekki fyrr en
ég kynntist Borgarnesi sem ég fann
stað þar sem ég vildi setjast að. Hér
líður mér mjög vel og ég er afskap-
lega þakklátur foreldrum mínum að
hafa kynnt mig fyrir þessu frábæra
bæjarfélagi,“ segir Guðmundur.
Móðir hans, Sigríður Margrét
Guðmundsdóttir, og stjúpfað-
ir, Kjartan Ragnarsson, hafa rek-
ið Landnámssetrið frá opnun þess
í maí 2006 en þar hafa þau komið
upp veitingastað, gjafavöruverslun
og sýningum á landnámssögu og
Egilssögu. Á sýningunum eru gest-
ir leiddir í gegn um sýningarsalinn
með hljóðleiðsögn þar sem farið er
yfir sögurnar tvær. Hvor leiðsögn
er um 30 mínútur. „Við fjölskyldan
höfum í raun enga tengingu í Borg-
arnes, ekki nema bara þá að hér eru
æskuslóðir Egils Skallagrímsson-
ar,“ segir Guðmundur og brosir.
„Foreldrar mínir eru mjög hrifnir
af Íslendingasögum og þá helst Eg-
ilssögu. Það getur verið mjög erf-
itt að komast í gegnum þessar sög-
ur og þær eru þungar í lestri. Þau
vildu því koma þeim í handhægt og
skemmtilegt form sem myndi samt
koma sögunum vel til skila. Þá kom
hugmyndin að hljóðleiðsögnun-
um. Þau vildu auðvitað koma þessu
upp hér í Borgarnesi því það ger-
ir svo mikið fyrir þann sem hlust-
ar að upplifa að hann er staddur á
nákvæmlega þeim stað sem sagan
gerðist. Núna ellefu árum seinna
erum við enn hér í Borgarnesi og
líkar það mjög vel,“ segir Guð-
mundur og brosir.
Ferðamönnum fjölgað
mikið yfir veturinn
Guðmundur hefur unnið í Land-
námssetrinu í átta ár, bæði í fullu
starfi og með námi og nú hefur
hann tekið við starfi framkvæmda-
stjóra. „Ég held það sé óhætt að
segja að ég hafi prófað öll störfin
hér og þekki því alla starfsemina
mjög vel. Mér finnst það forrétt-
indi að hafa unnið hér svo lengi og
geta gert áfram. Starfsandinn hér er
mjög góður og mikið lagt upp úr að
öllum líði vel. Fyrirtækið byggir til-
veru sína á starfsfólki og þá skipt-
ir miklu máli að allir vinni saman
og framlag allra sé metið, sem við
reynum alltaf að passa vel uppá,“
segir Guðmundur. Hann segir
mikið hafa breyst þessi ár sem hann
hefur unnið á Landnámssetrinu en
fjöldi ferðamanna hefur aukist jafnt
og þétt undanfarin ár. „Aukningin
hefur verið mjög hröð undanfar-
ið og þá sérstaklega yfir veturinn. Í
upphafi voru aðeins fjórir fastráðn-
ir starfsmenn hjá okkur yfir vet-
urinn en nú eru að um og yfir 17
stöðugildi á ársgrundvelli og alveg
Kann vel við sig í Borgarnesi
Guðmundur Karl Sigríðarson tekinn við framkvæmdastjórn í Landnámssetrinu
Guðmundur Karl Sigríðarson tók nýverið við starfi framkvæmdastjóra á Land-
námssetrinu í Borgarnesi.
Hákon Konráðsson og Guðmundur við girnilegt hádegishlaðborð í Landnáms-
setrinu.