Skessuhorn


Skessuhorn - 06.12.2017, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 06.12.2017, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2017 31 MT1: Olgeir Helgi Ragnarsson í hlutverki björnsins Balú og Þorsteinn Loki Þórðarson í hlutverki Móglí yngri. Ljósm. Andrea Eðvaldsdóttir. MT2: MT3: MT4: MT5: MT6: MT7: SMT8: MT9: Ljósm. María Magnúsdóttir. MT10: Eiga króndemantabrúðkaup Í dag, 6. desember, eiga króndemantabrúðkaup (65 ára brúðkaupsafmæli) hjónin Sesselja Jóna Helgadóttir og Hörður Jóhannesson á Akranesi. Þau hafa búið alla sína hjúska- partíð á Akranesi, þar af á Hjarðarholti 3 síðan árið 1965. Fjölskyldan sendir þeim innilegar hamingjuóskir við þennan áfanga. SK ES SU H O R N 2 01 7 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Á aðventu er fólk oft meyrt í hjarta og styður við góð málefni, kaup- ir jólakort af líknarfélögum, legg- ur pakka undir jólatréð í Kringl- unni eða þess háttar. Fáeinum finnst þetta kannski yfirborðslegt og lítils virði. En ykkur sem leggið lykkju á leið ykkar til að gleðja eða styðja við lít- ilmagnann get ég glatt með því að það er ekki bara fallegt heldur bein- línis gott, ekki aðeins fyrir þann sem þiggur góðvild ykkar, heldur líka ykkur sjálf. Góðverkin hlýja manni ekki bara um hjartarætur heldur hafa þau líka bein áhrif í formi betri heilsu, bæði andlega og líkamlega. Það að gefa til góðs málefnis lækkar blóðþrýsting á við lyfjagjöf eða líkamsrækt. Þetta kom fram í tilraun þar sem hópur fólks með of háan blóðþrýsting fékk vikulega fjárhæð sem það átti ýmist að nota fyrir sig sjálf eða til að gefa til góð- gerðamála að eigin vali. Þau sem gáfu féð mældust með lægri blóð- þrýsting en þau sem eyddu því í sig sjálf. Lækkun var mest ef gjöf- in hafði persónulega merkingu fyr- ir gefandann, t.d. að gefa til SÁÁ ef þau samtök hafa hjálpað ættingja, eða til Hjartaheilla ef rannsókn þar bjargaði lífi maka. Í annarri rann- sókn sprautaði læknir kvefsmiti í nef fólks og ýmist sýndi því góðvild eða var hlutlaus og kuldalegur. Hópur- inn sem hafði lækni sem hlustaði og sinnti þeim hlýlega, varð sjaldnar og minna veikur en hinn hópurinn. Þetta sýnir óvænt en góð áhrif vin- semdar á þann sem fyrir henni verð- ur. Vinsemd eða góðvild (compas- sion) hleypir krafti í ónæmiskerfið og róar fólk niður. Aðventan er yndisleg en er líka tími anna og álags. Því er sérlega gott að geta deilt því með lesendum Skessuhornsins að það að gefa sér tíma til að hjálpa einhverjum, eða einfaldlega gefa tíma sinn, til dæm- is með því að heimsækja ömmu eða lasinn vin, hefur þau áhrif að þér finnst álagið minnka og þú upplifir minni tímapressu. Þetta er svolítið mikið í hausnum á okkur, ekki satt? Tímagjöf virkar á kollinn eins og líkamsrækt á kroppinn, hún krefst orku en veitir líka orku. Jæja, þá ert þú kæri lesandi kannski að hugsa; „aha, nú fer ég og geri góðverk því það er svo gott fyr- ir mig,“ en þá kemur smásnúður því að góðverkin verða að vera einlæg til að þau virki þannig og því bet- ur sem gjörðin hefur persónulegri merkingu. Þannig að vandaðu valið á góðverkinu til að hámarka áhrifin. Að lokum. Mörgum sem veikjast finnst erfitt að þiggja aðstoð, finnast þeir vera byrði á öðrum og skömm að því að vera sá sem ekki getur. Ef að þú ert í þeirri aðstöðu, prófaðu að hugsa hvort þú myndir telja eft- ir þér aðstoðina ef hlutverkin snér- ust við. Mundu einnig hvað sá sem hjálpar fær mikið út úr því, ekki að- eins góðar tilfinningar, heldur einn- ig beinan heilsufarslegan ávinning. Þannig að þið skulið endilega lofa fólki að hjálpa ykkur, biðja jafnvel um tiltekna aðstoð til að gera fólki það auðveldara. Reynið síðan að deila þeim góðu tilfinningum sem hjálpin vekur hjá hjálparanum, sam- gleðjast með honum eða henni. Það er ákveðin góðmennska að leyfa fólki að hjálpa sér því góða fólkið lifir lengur. Þau sem gera góðverk njóta þess, þau sem þiggja njóta og þau sem verða vitni að því fá líka þessi góðu áhrif. Svo hikið ekki við að deila sögum af góðum verkum því það gerir líf okkar allra aðeins betra. Megið þið vel lifa. Akranesi á aðventa 2017, Steinunn Eva Þórðardóttir (Byggt að mestu á bókinni The science of compassion eftir Kelly McGonigal) Gróði af góð- mennsku? Heilsupistill Steinunnar Evu Eitthvað svona yljar okkur um hjartarætur en hressir líka upp á heilsuna. Steinunn Eva Þórðardóttir. Ljósm. Kim Klara.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.