Skessuhorn - 06.12.2017, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2017 31
MT1: Olgeir Helgi Ragnarsson í hlutverki björnsins Balú og Þorsteinn Loki Þórðarson í
hlutverki Móglí yngri. Ljósm. Andrea Eðvaldsdóttir.
MT2: MT3: MT4: MT5: MT6: MT7: SMT8: MT9: Ljósm. María Magnúsdóttir.
MT10:
Eiga króndemantabrúðkaup
Í dag, 6. desember, eiga
króndemantabrúðkaup
(65 ára brúðkaupsafmæli) hjónin
Sesselja Jóna Helgadóttir og
Hörður Jóhannesson á Akranesi.
Þau hafa búið alla sína hjúska-
partíð á Akranesi, þar af á
Hjarðarholti 3 síðan árið 1965.
Fjölskyldan sendir þeim innilegar
hamingjuóskir við þennan áfanga.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Á aðventu er fólk oft meyrt í hjarta
og styður við góð málefni, kaup-
ir jólakort af líknarfélögum, legg-
ur pakka undir jólatréð í Kringl-
unni eða þess háttar. Fáeinum finnst
þetta kannski yfirborðslegt og lítils
virði.
En ykkur sem leggið lykkju á leið
ykkar til að gleðja eða styðja við lít-
ilmagnann get ég glatt með því að
það er ekki bara fallegt heldur bein-
línis gott, ekki aðeins fyrir þann sem
þiggur góðvild ykkar, heldur líka
ykkur sjálf. Góðverkin hlýja manni
ekki bara um hjartarætur heldur
hafa þau líka bein áhrif í formi betri
heilsu, bæði andlega og líkamlega.
Það að gefa til góðs málefnis
lækkar blóðþrýsting á við lyfjagjöf
eða líkamsrækt. Þetta kom fram í
tilraun þar sem hópur fólks með
of háan blóðþrýsting fékk vikulega
fjárhæð sem það átti ýmist að nota
fyrir sig sjálf eða til að gefa til góð-
gerðamála að eigin vali. Þau sem
gáfu féð mældust með lægri blóð-
þrýsting en þau sem eyddu því í
sig sjálf. Lækkun var mest ef gjöf-
in hafði persónulega merkingu fyr-
ir gefandann, t.d. að gefa til SÁÁ ef
þau samtök hafa hjálpað ættingja,
eða til Hjartaheilla ef rannsókn þar
bjargaði lífi maka. Í annarri rann-
sókn sprautaði læknir kvefsmiti í nef
fólks og ýmist sýndi því góðvild eða
var hlutlaus og kuldalegur. Hópur-
inn sem hafði lækni sem hlustaði og
sinnti þeim hlýlega, varð sjaldnar
og minna veikur en hinn hópurinn.
Þetta sýnir óvænt en góð áhrif vin-
semdar á þann sem fyrir henni verð-
ur. Vinsemd eða góðvild (compas-
sion) hleypir krafti í ónæmiskerfið
og róar fólk niður.
Aðventan er yndisleg en er líka
tími anna og álags. Því er sérlega
gott að geta deilt því með lesendum
Skessuhornsins að það að gefa sér
tíma til að hjálpa einhverjum, eða
einfaldlega gefa tíma sinn, til dæm-
is með því að heimsækja ömmu eða
lasinn vin, hefur þau áhrif að þér
finnst álagið minnka og þú upplifir
minni tímapressu. Þetta er svolítið
mikið í hausnum á okkur, ekki satt?
Tímagjöf virkar á kollinn eins og
líkamsrækt á kroppinn, hún krefst
orku en veitir líka orku.
Jæja, þá ert þú kæri lesandi
kannski að hugsa; „aha, nú fer ég og
geri góðverk því það er svo gott fyr-
ir mig,“ en þá kemur smásnúður því
að góðverkin verða að vera einlæg
til að þau virki þannig og því bet-
ur sem gjörðin hefur persónulegri
merkingu. Þannig að vandaðu valið
á góðverkinu til að hámarka áhrifin.
Að lokum. Mörgum sem veikjast
finnst erfitt að þiggja aðstoð, finnast
þeir vera byrði á öðrum og skömm
að því að vera sá sem ekki getur. Ef
að þú ert í þeirri aðstöðu, prófaðu
að hugsa hvort þú myndir telja eft-
ir þér aðstoðina ef hlutverkin snér-
ust við. Mundu einnig hvað sá sem
hjálpar fær mikið út úr því, ekki að-
eins góðar tilfinningar, heldur einn-
ig beinan heilsufarslegan ávinning.
Þannig að þið skulið endilega lofa
fólki að hjálpa ykkur, biðja jafnvel
um tiltekna aðstoð til að gera fólki
það auðveldara. Reynið síðan að
deila þeim góðu tilfinningum sem
hjálpin vekur hjá hjálparanum, sam-
gleðjast með honum eða henni. Það
er ákveðin góðmennska að leyfa
fólki að hjálpa sér því góða fólkið
lifir lengur. Þau sem gera góðverk
njóta þess, þau sem þiggja njóta og
þau sem verða vitni að því fá líka
þessi góðu áhrif. Svo hikið ekki við
að deila sögum af góðum verkum
því það gerir líf okkar allra aðeins
betra.
Megið þið vel lifa.
Akranesi á aðventa 2017,
Steinunn Eva Þórðardóttir
(Byggt að mestu á bókinni The
science of compassion eftir Kelly
McGonigal)
Gróði af góð-
mennsku?
Heilsupistill Steinunnar Evu
Eitthvað svona yljar okkur um hjartarætur en hressir líka upp á heilsuna.
Steinunn Eva Þórðardóttir.
Ljósm. Kim Klara.