Skessuhorn - 06.12.2017, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2017 25
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Mannbroddar
-öryggisins vegna
Jólatrjáa- og leiðisgreinasala
Kalmansvöllum 2b (húsnæði Björgunarfélagsins)
Sími 771-1998
Opnunartími:
Laugardagur 9. des. kl. 12-18
Sunnudagur 10. des. kl. 12-18
Föstudagur 15. des. kl. 16-19
Laugardagur 16. des. kl. 12-18
Sunnudagur 17. des. kl. 12-18
Mánudagur 18. des. kl. 16-19
Þriðjudagur 19. des. kl. 16-19
Miðvikudagur 20. des. kl. 16-19
Fimmtudagur 21. des. kl. 16-22
Föstudagur 22. des. kl. 16-22
Laugardagur 23. des. kl. 14-22
Sunnudagur 24. des. kl. 10-12
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Að stilla útvarpstækin á FM 101,3
er orðinn fastur liður í aðdraganda
jólanna í Borgarnesi. Á þeirri tíðni
ómar Útvarp Óðal í Borgarnesi ár
hvert um miðjan desembermán-
uð. Að þessu sinni hefjast útsend-
ingar mánudaginn 11. desember og
standa yfir alla vikuna þar til síðdeg-
is á föstudag. Það er nemendafélag
Grunnskólans í Borgarnesi sem
stendur að útsendingunum und-
ir handleiðslu kennara. Skessuhorn
hitti Marinó Þór Pálmason, útvarps-
stjóra og formann nemendafélags-
ins og Kristínu M.Valgarðsdótt-
ur, deildastjóra í Grunnskólanum í
Borgarnesi, í síðustu viku og ræddi
við þau um útvarpið. „Þessi útsend-
ing markar 25 ára afmæli útvarpsins.
Í tilefni þess verður á dagskrá tveggja
tíma afmælisþáttur þar sem farið
verður yfir sögu útvarpsins og rætt
m.a. við fjölmiðlafólk sem steig sín
fyrstu skref einmitt í Útvarpi Óðali,“
segja þau Kristín og Marinó. „Þar
að auki verða seldir bollar merktir
útvarpinu og lagt meira í lokahóf-
ið í tilefni afmælisins,“ bætir Kristín
við. Að öðrum kosti segja þau að út-
sendingarnar verði með hefðbundnu
sniði. „Við erum einmitt núna að
taka upp bekkjarþætti yngri bekkj-
anna. Krakkar í 1.-7. bekk taka upp
sína þætti en 8.-10. bekkur fer í beina
útsendingu,“ segir Marinó, en beina
útsendingu segir hann einmitt hafa
verið stærstu áskorunina við útvarps-
útsendingarnar. „Þegar ég prófaði
það fyrst þá var ég smá tíma að kom-
ast yfir feimnina. En eftir smá stund
þá gleymir maður að það séu allir að
hlusta og þá er þetta bara eins og að
spjalla við vini sína heima í stofu,“
segir hann.
Fjölbreytt dagskrá
Gaman er að geta þess að Kristín er
einmitt amma hans Marinós. Hafa
þau unnið saman við útvarpið und-
anfarin ár og láta vel af samstarfinu.
Bæði segjast þau hafa mjög gaman
að því að starfa að undirbúningi og
útsendingum Útvarps Óðals. „Það
er mjög gaman að vinna að þessu
með krökkunum, vera með í útsend-
ingunum og öllu sem þessu teng-
ist,“ segir Kristín og Marinó tek-
ur í sama streng. „Auglýsingagerðin
finnst mér skemmtilegust. Við fáum
að hafa frjálsar hendur með marg-
ar auglýsingar, skrifum textana sjálf
og lesum inn,“ segir hann. „En þetta
er allt mjög gaman, þó þetta sé mik-
il vina. Við í stjórn nemendafélags-
ins erum eiginlega búin að bíða eft-
ir þessu í allan vetur,“ bætir hann við
og brosir.
Þegar Skessuhorn ræddi við þau
Krístínu og Marinó var dagskrá-
in farin að taka á sig nokkuð heild-
stæða mynd. Verður hún með nokk-
uð hefðbundnu sniði, eins og Krist-
ín kom inn á hér að framan. Einn af
föstu liðunum eru daglegir frétta-
þættir. „Það eru fréttir á hverj-
um degi og svo verða Bæjarmálin í
beinni, á dagskrá föstudaginn 15.
desember. Þar verður til umfjöllun-
ar það sem er efst á baugi í sveitar-
félaginu um þessar mundir og góð-
ir gestir koma í þáttinn. Til dæmis
sveitarstjóri Borgarbyggðar, fulltrúi
frá sveitarstjórn, íþróttafélaginu og
úr atvinnulífinu. Krakkarnir sem sjá
um fréttirnar og þennan bæjarmála-
þátt bregða sér í hlutverk frétta-
manna þessa vikuna og sjá alfarið um
að afla frétta til að flytja í þættinum
og stjórna umræðum í bæjarmála-
þættinum,“ útskýrir Kristín og bætir
því við að krakkarnir muni njóta að-
stoðar Gísla Einarssonar fjölmiðla-
manns við bæjarmálaþáttinn. „Síðan
verður stjórn nemendafélagsins með
þátt og húsráð Óðals, það eru fast-
ir liðir,“ segir Marinó. Að öðru leyti
eru efnistök þáttanna eins fjölbreytt
og þættirnir eru margir, allt frá þætti
um jólahátíðina í öðrum löndum til
vinsælla snappara, draumaráðninga,
Google, Djáknans á Myrká og þá
stendur til að lýsa tveimur körfu-
boltaleikjum í beinni, svo fátt eitt sé
nefnt. „Við hlökkum mikið til að fara
í loftið á mánudaginn og hvetjum
alla til að hlusta,“ segja þau Kristín
og Marinó að endingu. kgk
Útvarp Óðal fer
í loftið í næstu viku
Amman og útvarpsstjórinn.
Kristín M. Valgarðsdóttir,
deildastjóri í Grunnskól-
anum í Borgarnesi og
Marinó Þór Pálmason, for-
maður nemendafélagsins
og útvarpsstjóri, eru meðal
þeirra sem unnið hafa að
undirbúningi Útvarps Óðals
sem fer í loftið eftir helgi.
Yngri krakkarnir í Grunnskólanum í Borgarnesi tóku upp sína þætti í hljóðverinu í
síðustu viku.
Stjórn nemendafélagsins vinnur að undirbúningi útvarpsins.