Fréttablaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 44
Svanhildur Jakobsdóttir mætti ásamt Stefaní u Svölu Borg. Leikhúshjónin Arnar Jónsson og Þórhildur Þor- leifsdóttir brostu sínu breiðasta. Aðstandendur myndarinnar, leikstjórinn og handritshöfundurinn Rúnar Rúnarsson, Lilja Snorradóttir, Vigfús Þormar Gunnarsson og Elli Cassata. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Mæðginin Agnes Kristjónsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson. Tónlistarmennirnir Erpur Eyvindarson eða Blaz Roca og Huginn. Helgi Björnsson, Arnór Pálmi og Gunnar Hansson. Félagarnir Rúnar og Rúnar létu sig ekki vanta. Segja má að jólaand-inn hafi fyllt aðalsal Háskólabíós á meðan á f r u m s ý n i ng u á íslensku kvikmynd-inni Bergmál stóð á þriðjudaginn var. Leikstjór- inn og handritshöfundurinn Rúnar Rúnarsson, sem leik- stýrði meðal annars kvik- myndunum Þrestir og Eldfjall, fer hér svo sannarlega nýjar leiðir og brýtur upp hið hefð- bundna form kvikmyndar. Yfir þrjú hundruð leikarar Engir aðalleikarar eru í kvik- myndinni og í raun engir þekktir leikarar en í kringum 330 manns fara með hlutverk í henni. Ekki er um heildstæðan söguþráð að ræða heldur sjáum við 58 ljúfar, sárar, fyndnar og bitrar hversdags- legar örsögur. Allar eru þær leiknar af lítt eða óreyndum leikurum sem augljóslega er vel stýrt og ekki er að sjá að um frumraun fyrir framan kvik- myndatökuvél sé að ræða í langflestum tilvikum. Sögurnar sem allar eiga sér stað í aðdraganda jóla og voru teknar fyrir síð- ustu jól, fanga vel fjölbreytileika lífsins litrófs og verða klárlega frábær heimild um íslenskan samtíma þegar fram líða stundir. Nú þegar hefur verið ákveðið að myndin fari í sýningar í 25 kvik- myndahúsum í Hollandi í desember og hefur hún verið sýnd á kvikmyndahátíðum víða um heim frá því í haust, við góðar undirtektir. Íslensk jól ferðast því víða þetta árið og ættu íslensk jólabörn, kvikmyndaáhugafólk og þeir sem almennt hafa áhuga á mannlegu eðli og ýmsum birtingarmyndum þess ekki að láta Bergmál fram hjá sér fara. bjork@frettabladid.is Íslenska kvikmyndin Bergmál var frumsýnd með pompi og prakt í Háskólabíói á þriðju- daginn. Virtust frumsýn- ingargestir hrífast með af sögunum 58 sem gerast í aðdraganda jóla hér á landi. Áhrifamiklar örsögur Elisabete Fortes er ein þeirra yfir þrjú hundruð sem fara með hlutverk í myndinni. Nöfnurnar Ísold og Ísold Arna skemmtu sér vel. 2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R36 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 2 1 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 4 9 -4 3 D 4 2 4 4 9 -4 2 9 8 2 4 4 9 -4 1 5 C 2 4 4 9 -4 0 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.