Fréttablaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 2
Veður A- átt, 13-18 m/s með suðurströnd- inni fram yfir hádegi, annars mun hægari. Dálítil rigning suðaustan til, en bjart veður norðan heiða. Hiti 1 til 7 stig, en víða 0 til 5 stiga frost á N- og A-landi. SJÁ SÍÐU 26 Börn minna á rétt sinn Fjölmörg börn úr bæði leik- og grunnskólum mæltu sér mót á Skólavörðuholti í gær á alþjóðlegum degi barnsins. Þau gengu niður Skólavörðustíg og minntu á réttindi sín með kröfuspjöldum á 30 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR PREN TU N .IS mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 Austurströnd 14 • Hringbraut 35 ....................................................Sími: 561 1433 www.bjornsbakari.is PREN TU N .IS LAUFABRAUÐ eftir norðlenskri uppskrift ................................................ Hægtað pantasteikt ogósteikt DÓMSMÁL „Við erum að fá hingað þennan frábæra sérfræðing frá Skotlandi sem er framkvæmdastjóri Scottish Mediation og hann ætlar að segja okkur hvernig Skotar hafa verið að gera þetta,“ segir Dagný Rut Haraldsdóttir, sáttamiðlari, lög- fræðingur og stjórnarmaður Sáttar. Í dag klukkan 15 verður haldið málþing um sáttamiðlun í húsa- kynnum Íslenskrar erfðagreiningar þar sem Graham Boyack mun flytja erindi um innleiðingu sáttamiðlun- ar í Skotlandi. Sátt, félag um sátta- miðlun heldur málþingið og segir Dagný sáttamiðlun vera að ryðja sér til rúms á Íslandi. „Sáttamiðlun er það kallað þegar hlutlaus þriðji aðili leiðir og stýrir ferli þar sem markmiðið er að hjálpa málsaðilum að ná samkomulagi,“ segir Dagný. „Þetta ferli má nota í hinum ýmsu málum, til dæmis við nágrannaerjur, í viðskiptum og í rauninni á þetta heima alls staðar þar sem fólk á í deilum,“ bætir hún við. Dagný segir mun ódýrara að útkljá ýmis mál með sáttamiðlun en í dómskerfinu. „Þetta kostar okkur miklu minna ef talið er beint í beinum peningum og líka ef við lítum á tíma,“ segir hún. „Svona getum við leyst f lókin mál með nokkrum fundum sem taka í mesta lagi nokkrar vikur á móti mörgum mánuðum eða jafn- vel árum í dómskerfinu,“ segir hún. Árið 2013 var sett í barnalög skyldubundin sáttameðferð við skilnað eða sambúðarslit tveggja aðila sem eiga saman barn. „Með því að setja þetta inn í barnalögin hefur þekkingin og reynslan á sáttamiðlun aukist. Við sjáum að miklu færri mál eru að fara fyrir dómara og í úrskurð hjá sýslu- manni,“ segir Dagný. Árið 2014 kom 351 slíkt mál á borð Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu og þar af fór 261 þeirra í sáttamiðlun. „Þetta hefur gefið góða raun og í rauninni ætti það að vera þannig að ef upp kemur deila þá sé sátta- miðlun fyrsta skrefið sem er reynt en ekki dómskerfið,“ segir Dagný. Hún segir sáttamiðlun eiga við í hinum ýmsu málum, bæði einka- málum og sakamálum. „Íslendingar eru bara alltaf svolítið seinir til, og ef við horfum á löndin í kringum okkur þá er þetta úrræði notað mun meira þar en hér. Á málþing- inu munum við heyra hvernig þetta gengur til í Skotlandi en ætla má að Skotar séu um tíu árum á undan okkur í þessu,“ segir hún. Kolbrún Benediktsdóttir vara- héraðssaksóknari tekur undir orð Dagnýjar og segir að hægt væri að notast við sáttamiðlun í mun meiri mæli en gert er. „Þetta er mjög gott úrræði og það er sorglegt hvað það er lítið notað. Ég held að þetta gæti verið stórgott úrræði í ýmsum saka- málum,“ segir Kolbrún. birnadrofn@frettabladid.is Sáttamiðlun notuð í of litlum mæli hér á landi Dagný Rut Haraldsdóttir sáttamiðlari segir sáttamiðlun ódýrari kost en að mál veltist um í dómskerfinu. Úrræðið mætti nýta í mun fleiri málum. Á mál- þingi um sáttamiðlun í dag verður meðal annars fjallað um reynslu Skota. Þetta kostar okkur miklu minna ef talið er í beinum peningum og líka ef við lítum á tíma. Dagný Rut Haraldsdóttir, sáttamiðlari og lögfræðingur UMHVERFISMÁL „Hér er verið að kynna áform um lagasetningu og leitað eftir ábendingum almenn- ings og hagsmunaaðila sem er mikilvægt skref í þessu stóra verk- efni,“ segir Guðmundur Ingi Guð- brandsson umhverfisráðherra um fyrirhugaðan hálendisþjóðgarð. Þverpólitísk nefnd um undirbún- ing að stofnun þjóðgarðsins hefur unnið að þeim áherslum sem fyrir- hugað lagafrumvarp mun byggja á. Þær áherslur hafa nú verið kynntar í samráðsgátt stjórnvalda. Þar kemur fram að vegna sérstöðu og stærðar væntanlegs hálendis- þjóðgarðs sé talið rétt að setja sér- lög um hann frekar en að friðlýsa svæðið á grundvelli gildandi laga. Samhliða verði lagt fram frumvarp um stofnun sem fer með málefni allra friðlýstra svæða. Þá er gert ráð fyrir því að sérlög um Vatnajökulsþjóðgarð falli niður þar sem hann verði hluti hálendis- þjóðgarðs. – sar Kynna áform um þjóðgarð +PLÚS Málþing um sáttamiðlun verður haldið í dag. NORDICPHOTOS/GETTY DÓMSMÁL Skúli Mogensen, fyrr- verandi forstjóri WOW air, hefur gert kröfu til Héraðsdóms Reykja- víkur um að Sveini Andra Sveins- syni verði vikið frá störfum sem skiptastjóra þrotabús flugfélagsins. Skúli byggir á því að skiptastjór- inn hafi veitt rangar og villandi upplýsingar um mikilvæg mál- efni búsins, bæði í fjölmiðlum og á skiptafundum. Með þeim hafi Sveinn Andri rýrt verulega það traust sem til hans þurfi að ríkja sem skiptastjóra. Vísar hann annars vegar til umfjöllunar Fréttablaðsins um kaup Ballarin á eignum þrotabúsins en haft var eftir Sveini Andra í frétt- inni að uppsett kaupverð væri þegar greitt. Á skiptafundi hefðu skipta- stjórar verið inntir eftir því hvort einhver tengsl væru milli þeirra og umrædds kaupanda og þeir svarað því að svo væri ekki, hvorki við kaupandann né forsvarsmenn hans. Við nánari athugun hafi þó komið í ljós að lögmaðurinn Páll Ágúst Ólafsson, sem gætti hags- muna umrædds kaupanda hér á landi, hafi starfsstöð í sama húsi og Sveinn Andri og deili með honum kaffistofu, fundarherbergi og prent- urum. Skúli byggir kröfu sína einnig á meintri vanrækslu Sveins við upp- lýsingagjöf, bæði um skiptakostnað og þóknanir og á því að Sveinn Andri hafi tekið sér þóknun af fé búsins án þess að hafa til þess við- hlítandi heimild. Krafa Skúla verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í næstu viku. – aá Vill skiptastjóra WOW úr starfi Skúli Mogensen, fyrrverandi for- stjóri WOW air. 2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 1 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 9 -2 1 4 4 2 4 4 9 -2 0 0 8 2 4 4 9 -1 E C C 2 4 4 9 -1 D 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 2 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.