Fréttablaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 19
Það er harmþrungið að sjá það skilnings- og þekkingarleysi sem einkennir alla umræðu um verðtryggingu. Þetta skiln- ingsleysi blasir við í aðfararorðum forsætisráðuneytis við skipun nefndar sem skoða á aðferðafræði við útreikning vísitölu neysluverðs í tengslum við verðtryggingu. Þar segir: Í samræmi v ið y f irlýsing u ríkisstjórnar um markviss skref til afnáms verðtryggingar frá 3. apríl 2019, hefur forsætisráðherra skipað nefnd um aðferðafræði við útreikning vísitölu neysluverðs. Verkefni nefndarinnar er að skoða aðferðafræði við útreikning vísi- tölu neysluverðs út frá alþjóðlegum samanburði og leita álits erlendra sérfræðinga. Meðal annars verði aðferðafræði við húsnæðislið vísi- tölunnar tekin til athugunar auk svokallaðs vísitölubjaga. Hvað er verðtrygging? Samkvæmt umsögn með Ólafs- lögum er tilgangur verðtryggingar að koma í veg fyrir eignatilfærslur knúnar fram af verðbólgu. Sam- kvæmt umsögn með núverandi lögum á verðtryggingin að leiðrétta fyrir rýrnun gjaldmiðilsins. Skilgreiningin og tilgangurinn er því skýr og bundinn í lögin um verðtryggingu. Epli og appelsínur Mikilvægt er að allir sem fjalla um verðtryggingu geri sér grein fyrir að ef rýrnun gjaldmiðils er appelsína þá er breyting á vísitölu neyslu- verðs epli. Rýrnun gjaldmiðils á vinnusvæði sínu eða lækkun innra virðis hans er hér um bil aldrei jöfn hækkun vísitölu neysluverðs! Þótt vísitala neysluverðs sé fullkomlega reiknuð út án vísitölubjaga er breyt- ing hennar ekki jöfn breytingum á innra virði gjaldmiðilsins. Þetta er einfaldlega staðreynd samkvæmt skilgreiningu. Það verður ekki fyrr en þessi staðreynd rennur upp fyrir samfélaginu að við getum tekið örugg skref í rétta átt. Klassísk hagfræði Hagfræðingurinn, frumkvöðull- inn og hugsuðurinn Carl Menger innleiddi hugtök in um innra og ytra virði hluta. Stóri mis- skilningurinn sem umvefur fram- kvæmd verðtryggingarinnar og alla umræðu um hana er að ekki er gerður greinarmunur á breyt- ingum á innra og ytra virði krón- unnar okkar. Tökum dæmi til að skilja hver eðlismunurinn er: Við erum stödd í byrjun september og óvenjulega harður frostakaf li umlykur Þykkvabæinn. Uppskeran á kartöf lum bregst þetta árið. Fyrir jólin fer að bera á kartöf luskorti. Við þessi atvik rýkur verðið á kart- öf lum upp. Af því að kartöf lur eru í körfu vísitölu neysluverðs hækkar hún. Þá er spurningin með krón- una okkar, hefur hún rýrnað að sama skapi? Svarið er nei. Krónan getur áfram keypt jafnmörg lamba- læri, jafnmargar pulsur, jafnmarga dollara o.s.frv. Séu hugtök Mengers notuð þá hefur ytra virði krónunn- ar lækkað en innra virðið staðið í stað í dæminu okkar. Vísitala neysluverðs mælir breyt- ingar á ytra virði krónunnar en það Við eigum að mæta þörfum borgarbúa, fækka skrefum og stytta bið. Við eigum að einfalda líf íbúa og fyrir- tækja. Þess vegna ætlum við að taka stór skref í tækni- lausnum til hægðarauka fyrir íbúa og fyrirtæki í borginni. Örn Karlsson vélaverk fræðingur Um vísitölubjaga, raunvaxtabjaga og þekkingarbjaga HLUTHAFAFUNDUR Hluthafafundur Brims hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. desember 2019 í matsal félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík og hefst hann klukkan 17:00. Fundurinn fer fram á íslensku. DAGSKRÁ 1. Tillaga um að staðfesta ákvörðun stjórnar um kaup félagsins á öllu hlutafé í sjávarútvegsfyrirtækjunum, Fiskvinnslunni Kambi hf. og Grábrók ehf. 2. Önnur mál. AÐRAR UPPLÝSINGAR Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar á netfangið hluthafafundur@brim.is með það löngum fyrirvara að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en kl. 17:00 mánudaginn 2. desember 2019, þ.e. 10 dögum fyrir fundinn. Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta: a) veitt öðrum skriflegt umboð b) greitt atkvæði skriflega Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að. Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins. Dagskrá, tillögur og öll skjöl sem lögð verða fyrir fundinn eru hluthöfum tiltæk á íslensku, á heimasíðu félagsins og á skrifstofu félagsins á venjulegum skrifstofutíma. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn. Allar nánari upplýsingar um fundinn má finna á vefsíðu félagsins www.brim.is Stjórn Brims hf. eru breytingar á innra virði hennar sem skipta máli sem viðmið ef koma á í veg fyrir eignatilfærslur með verðtryggingu. Í dæminu hér að ofan hækkaði vísitala neysluverðs og þar með allir verðtryggðir lánasamningar. Þeir hækkuðu þrátt fyrir að krónan héldi styrk sínum. Þeir hækkuðu því að raungildi. Með þessum hugleiðingum sjáum við strax fleiri brotalamir í umræð- unni um hagræn málefni. Raun- reikningar, þ.e. raunvextir o.s.frv. eiga samkvæmt klassískri hagfræði að taka mið af breytingum á innra virði krónunnar en ekki ytra virð- inu eins og nú er gert. Þetta á einn- ig við um verðbólgu. Samkvæmt klassískri hagfræði er verðbólga það náttúrulega fyrirbæri þegar hagkerfi ryðja sig og innra virði gjaldmiðilsins lagar sig að raun- hagkerfinu í samræmi við peninga- magnið. Í nútíma er gjarnan reynt að mæla þessa hreyfingu á innra virðinu með vísitölu undirliggjandi verðbólgu. Við Íslendingar höfum enn sem komið er ekki náð tökum á slíkum mælingum eða þeirri hug- myndafræði sem að baki liggur. Að greina milli breytinga á innra og ytra virði krónunnar? Á einhverjum þröngum tímabilum skiptir það litlu máli, þá ganga breytingar á innra og ytra virðinu nálægt takti af því að lítið er um atvik sem hreyfa raunvirði einstak- ara vara og vöruf lokka. En þetta er eins og með veðrið, stormurinn skellur á með litlum fyrirvara. Slíkan storm fengum við í fangið um áramótin 2003/2004. Þá hófst nokkurra ára tímabil stórkost- legrar gliðnunar milli breytinga á innra og ytra virði krónunnar. Tveir vöruf lokkar með mestu vægin í vísitölu neysluverðs tóku stökk svo að segja samtímis. Olía á heimsmarkaði margfaldaðist í verði og húsnæði tvöfaldaðist. Þetta voru raunhækkanir vegna atvika óháðum peningum. Vegna þess að við sem samfélag greindum engan mun á innra virði og ytra virði krónunnar gerðum við tvennt til stórkostlegs skaða. Í annan stað urðu allir raunreikn- ingar kolvitlausir. Við vanmátum raunvexti og í fátinu keyrðum við stýrivexti upp og riðluðum með því svo að segja öllum parametrum fjármálalegs stöðugleika. Og hins vegar mokuðust raunverulegar eignir almennings til f jármála- stofnana með raunhækkun veð- bandskrafna í gegnum verðtrygg- inguna. Verðtryggingin kom ekki í veg fyrir eignatilfærslur á þessu tímabili, hún skóp eignatilfærslur þvert á tilgang laga um verðtrygg- ingu. Lauslega reiknað voru meira en 70% af breytingum vísitölunnar á löngum tímabilum vegna raun- breytinga á verðum þessara tveggja vöruf lokka. Ólögleg eignaupptak- an í gegnum verðtrygginguna var a.m.k. 200 þúsund milljón krónur á verðlagi þess tíma. Skilningsleysið hrakti okkur að hruni. Ef vísitala neysluverðs hefði verið rétt reiknuð án vísitölubjaga á þessum árum þá hefði það engu breytt um niðurstöðuna. Vísitölu- bjagi er talinn vera 0,3 til 1%, þ.e. útreiknuð vísitala er talin vera með þetta frávik frá því að mæla rétta breytingu á neysluútgjöldum með- almanns á gefnu tímabili. Vísital- an reiknuð án skekkju hefði gefið álíka ranga mynd af breytingum á innra virði krónunnar á ofan- greindu tímabili. Epli og appelsínur verða alltaf ólíkir ávextir jafnvel þótt eplið sé gljáfægt. Meirihlutinn í Reykjavíkur-borg er sammála um að einfalda líf fjölskyldna í borginni. Við í Viðreisn lofuðum fyrir síðustu kosningar að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og nú hefur fjármagn til þess verið tryggt. Við vitum hversu mikið for- gangsefni það er fyrir foreldra að geta treyst á leikskóla borgarinnar og þurfa ekki að standa í alls kyns reddingum fyrstu mánuði eftir að fæðingarorlofi lýkur til að geta snúið aftur til vinnu eða jafnvel að þurfa að fresta því að snúa aftur til vinnu vegna þess að bilið er ekki brúað og daggæsla fæst ekki. Við höfum lofað að fjölga leik- skólarýmum á næstu fjórum árum um 700-750 pláss. Áætlun um að bjóða öllum börnum, 12 mánaða og eldri, leikskólavist fyrir lok árs 2023, gengur vel. Fjárhagsáætlun meiri- hlutans gerir ráð fyrir 2,7 milljarða fjárfestingu til að byggja leikskóla og endurgera leikskólalóðir. Við ætlum að byggja nýja leikskóla við Kirkjusand, við Njálsgötu, við Voga- byggð og í Skerjafirði. Með þessum byggingum bætast við 396 dagvist- unarpláss. Þá verða viðbyggingar reistar við a.m.k. fimm leikskóla þar sem mikil eftirspurn er eftir rýmum og mun árið 2020 og 2021 bætast við pláss fyrir 137 börn. Þegar hafa nýjar leikskóladeildir verið opnaðar í færanlegu húsnæði á þessu ári. Við tryggjum sumaropnun leik- skóla í öllum hverfum til að mæta Einfaldara líf borgarbúa Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti Viðreisnar og formaður borgarráðs fjölbreyttum þörfum fjölskyldna. Þetta verkefni hófst nú síðasta sumar með tilraunaverkefni sem nú verður haldið áfram með. Við erum að einfalda lífið fyrir fjölskyldur í borginni og einfalda þjónustuna. Við erum sammála um að fækka þeim skrefum sem þarf að taka til að fá góða þjónustu borgarinnar. Þess vegna ætlar meirihlutinn í fjárhagsáætlun sinni að forgangs- raða f jármunum í að rafvæða umsóknir til að það taki styttri tíma og færri skref til að sækja um og það taki styttri tíma að vinna úr þeim umsóknum. Nú þegar er búið að taka upp raf- rænar lausnir til að sækja um fjár- hagsaðstoð og þjónustu ferðaþjón- ustu fatlaðra. Umsóknarferlið orðið mun einfaldara fyrir notandann og afgreiðslutími slíkra umsókna um fjárhagsaðstoð hefur styst úr að meðaltali átta dögum í 24 klukku- stundir. Við viljum ganga lengra í raf- rænni þjónustu fyrir íbúa og fyrir- tæki, einfalda alla ferla fyrir not- endur og gera þá skilvirkari. Því er lagt hér til að leggja heilmikla fjár- muni í ný upplýsingakerfi. Við erum að betrumbæta þjón- ustu Reykjavíkurborg með þarfir notandans í forgrunni. Lykilatriðið er að setja sig í spor borgarbúa og fyrirtækja til að leysa þau vandamál sem upp koma, til að gera reynslu íbúa og fyrirtækja í Reykjavík af þjónustu borgarinnar ánægjulegri. Samfélagið sem við búum í er síbreytilegt og í stöðugri þróun. Tækninni f leygir fram, aðgengi að upplýsingum eykst, örar breytingar verða á framboði og eftirspurn þjónustu og þannig mætti lengi telja. Tækniþróunin hefur m.a. hjálpað okkur að panta pitsu og fylgjast með hvernig hún kemur til okkar. Fækkað flækjustigum við að fá greiðslumat fyrir íbúðaláni og að rata í útlöndum með aðstoð símans. Þetta eru dæmi um þjónustu sem hefur breyst gríðarlega á síðustu árum. Ekkert hefði gerst ef ekki væri fyrir meðvitaðar ákvarðanir um að leggja upp í vegferð til að auka þjónustu. Slíka meðvitaða ákvörð- un hefur Reykjavíkurborg tekið. Við eigum að leggja áherslu á góða og rafræna þjónustu af því að við höfum metnað til að vera leiðandi í þróun rafrænna lausna og viljum skýr þjónustuviðmið. Við eigum að mæta þörfum borgarbúa, fækka skrefum og stytta bið. Við eigum að einfalda líf íbúa og fyrirtækja. Þess vegna ætlum við að taka stór skref í tæknilausnum til hægðarauka fyrir íbúa og fyrirtæki í borginni. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F I M M T U D A G U R 2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 2 1 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 4 9 -5 2 A 4 2 4 4 9 -5 1 6 8 2 4 4 9 -5 0 2 C 2 4 4 9 -4 E F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 2 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.