Fréttablaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is stod2.is 1817 Tryggðu þér áskrift HEFST 29. NÓV Jonathan, Ebba og Snjólaug skemmta gestum á Hard Rock í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI EIGANDI KAFFIHÚSS­ INS BIÐUR MIG SVO UM AÐ VERA MEÐ UPPISTAND Á STAFFA­ DJAMMI HJÁ ÞEIM. ÉG EINHVERN VEGINN VONAÐIST TIL ÞESS AÐ ÞETTA MYNDI BARA GLEYMAST, ÞANNIG AÐ ÉG VAR BÚIN AÐ DREKKA MIG FULLA. Í kvöld er uppistand með þeim Snjólaugu Lúðvíks, Jonathan Duffy og Ebbu Sig í kjallaran-um á Hard Rock. Ebba sagði Fréttablaðinu frá því hvernig hún hóf uppistandsferilinn og hvernig það er að grínast með ástalíf sitt áður fyrr fyrir framan kærastann. „Þetta er í annað skiptið sem við þrjú erum saman með uppistand á Hard Rock. Síðast gekk mjög vel og það var setið í öllum sætum. Við vorum pínu hissa en glöð að sjá allt þetta fólk koma til að sjá okkur,“ segir leikkonan og grínistinn Ebba Sig. Hún segir þau hafa verið mjög sátt og ánægð með viðtökurnar. Gekk vonum framar Ebba lærði leiklist í Rose Bruford leiklistarskólanum, og útskrifaðist árið 2015. „Árið 2016 samdi ég og flutti ein- leik sem heitir Guðmóðirin. Hann var byggður á lífi mínu að hluta, sem einhleyp kona. Einhleyp, feit kona, ef ég á að vera nákvæmari,“ segir Ebba hlæjandi. Hún segir Guðmóðurina vera lauslega byggða á hennar eigin reynslu en einnig á sögum frá vin- konum hennar. „Ég sýndi hana á Kaffi Laugalæk og það gekk svo ótrúlega vel. Fyrst ætluðum við bara að hafa fjórar sýningar en þetta endaði sem tíu sýningar í heild því það hélt áfram að seljast upp. Eigandi kaffihússins biður mig svo um að vera með uppi- stand á staffadjammi hjá þeim. Ég einhvern veginn vonaðist til þess að þetta myndi bara gleymast, þannig að ég var búin að drekka mig fulla. Svo spyr hann mig allt í einu hvort ég sé ekki tilbúin. Ég var búin að skrifa niður einhverjar hugmyndir að bröndurum. Þetta gekk svo bara mjög vel,“ segir Ebba um það hvern- ig hún álpaðist út í uppistandið. Hélt þetta væri svo erfitt Í kjölfarið fór hún að halda uppi- standskvöld á Kaffi Laugalæk. Góður rómur var gerður að þeim og fór nafn hennar því að spyrjast út og fyrirtæki að hafa samband í leit að skemmtikröftum. „Ég var með uppistand ein á Hard Rock í fyrra. Þannig æxlaðist þetta allt saman, ég hafði aldrei ætlað mér að fara í uppistand. Ég ímyndaði mér að það væri alveg hræðilega erfitt, ég er náttúrulega lærð leik- kona og kann að fara með texta sem einhver annar skrifar. En svo varð ég eiginlega bara háð þessu og finnst þetta ógeðslega skemmtilegt. Þannig að ég er mest í þessu núna.“ Hún segist mest fjalla um sjálfa sig og sinn kvíða í uppistandinu. „Ég er með ofsakvíða, heilsukvíða, ég held alltaf að ég sé með alla sjúk- dóma sem til eru. Ég tala líka mikið um það þegar ég var einhleyp en núna er ég komin í samband. Þann- ig að það er smá skrýtin tilfinning og fyndið. En svo geri ég líka óspart grín að kærastanum mínum, af því að það er svo mikill aldursmunur á okkur. Hann er 45 ára en ég er að verða 29 ára á laugardaginn, þann- ig að við erum á smá ólíkri bylgju- lengd. Hann er sagnfræðingur og ég grínisti, hann er aðeins háfleygari en ég. En það gengur samt allt mjög vel,“ segir Ebba. Nammi sem enginn vill Ebba segist áður hafa gert efni úr vandræðalegum sögum af einnar nætur gamni. „Konur tengja ótrúlega mikið við þessar sögur, kannast við þær og hafa upplifað svipað. Svo halda þær kannski að enginn lendi í þessu nema þær, en síðan hafa svo margar konur upplifað margt af þessu. Slæmar Tinder-sögur og þannig, það er náttúrulega bara helvíti. Tinder er svona eins og laugar- dagur í Nammilandi og það eina sem er í boði eru súkkulaðirúsínur. Nammi sem enginn vill,“ segir Ebba hlæjandi. Miða á uppistandið í kvöld er hægt að kaupa á Tix.is, en það hefst klukkan 21.00. steingerdur@frettabladid.is Álpaðist út í uppistand algjörlega óvart Þau Snjólaug, Jonathan og Ebba eru með uppistand í kvöld á Hard Rock. Þar grínast þau með allt milli himins og jarðar, en Ebba gerir mest grín að sjálfri sér og ástalífi sínu áður fyrr. TINDER ER SVONA EINS OG LAUGAR­ DAGUR Í NAMMILANDI OG ÞAÐ EINA SEM ER Í BOÐI ERU SÚKKU­ LAÐIRÚSÍNUR. 2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R38 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 1 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 4 4 9 -3 0 1 4 2 4 4 9 -2 E D 8 2 4 4 9 -2 D 9 C 2 4 4 9 -2 C 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 2 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.