Fréttablaðið - 21.11.2019, Side 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
stod2.is 1817
Tryggðu þér áskrift
HEFST 29. NÓV
Jonathan, Ebba og Snjólaug skemmta gestum á Hard Rock í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
EIGANDI
KAFFIHÚSS
INS BIÐUR
MIG SVO UM
AÐ VERA MEÐ
UPPISTAND Á
STAFFA
DJAMMI HJÁ
ÞEIM. ÉG
EINHVERN
VEGINN
VONAÐIST
TIL ÞESS AÐ
ÞETTA MYNDI
BARA
GLEYMAST,
ÞANNIG AÐ
ÉG VAR BÚIN
AÐ DREKKA
MIG FULLA.
Í kvöld er uppistand með þeim Snjólaugu Lúðvíks, Jonathan Duffy og Ebbu Sig í kjallaran-um á Hard Rock. Ebba sagði Fréttablaðinu frá því hvernig hún hóf uppistandsferilinn
og hvernig það er að grínast með
ástalíf sitt áður fyrr fyrir framan
kærastann.
„Þetta er í annað skiptið sem við
þrjú erum saman með uppistand á
Hard Rock. Síðast gekk mjög vel og
það var setið í öllum sætum. Við
vorum pínu hissa en glöð að sjá allt
þetta fólk koma til að sjá okkur,“
segir leikkonan og grínistinn Ebba
Sig. Hún segir þau hafa verið mjög
sátt og ánægð með viðtökurnar.
Gekk vonum framar
Ebba lærði leiklist í Rose Bruford
leiklistarskólanum, og útskrifaðist
árið 2015.
„Árið 2016 samdi ég og flutti ein-
leik sem heitir Guðmóðirin. Hann
var byggður á lífi mínu að hluta,
sem einhleyp kona. Einhleyp, feit
kona, ef ég á að vera nákvæmari,“
segir Ebba hlæjandi.
Hún segir Guðmóðurina vera
lauslega byggða á hennar eigin
reynslu en einnig á sögum frá vin-
konum hennar.
„Ég sýndi hana á Kaffi Laugalæk
og það gekk svo ótrúlega vel. Fyrst
ætluðum við bara að hafa fjórar
sýningar en þetta endaði sem tíu
sýningar í heild því það hélt áfram
að seljast upp. Eigandi kaffihússins
biður mig svo um að vera með uppi-
stand á staffadjammi hjá þeim. Ég
einhvern veginn vonaðist til þess að
þetta myndi bara gleymast, þannig
að ég var búin að drekka mig fulla.
Svo spyr hann mig allt í einu hvort
ég sé ekki tilbúin. Ég var búin að
skrifa niður einhverjar hugmyndir
að bröndurum. Þetta gekk svo bara
mjög vel,“ segir Ebba um það hvern-
ig hún álpaðist út í uppistandið.
Hélt þetta væri svo erfitt
Í kjölfarið fór hún að halda uppi-
standskvöld á Kaffi Laugalæk.
Góður rómur var gerður að þeim og
fór nafn hennar því að spyrjast út og
fyrirtæki að hafa samband í leit að
skemmtikröftum.
„Ég var með uppistand ein á Hard
Rock í fyrra. Þannig æxlaðist þetta
allt saman, ég hafði aldrei ætlað mér
að fara í uppistand. Ég ímyndaði
mér að það væri alveg hræðilega
erfitt, ég er náttúrulega lærð leik-
kona og kann að fara með texta
sem einhver annar skrifar. En svo
varð ég eiginlega bara háð þessu og
finnst þetta ógeðslega skemmtilegt.
Þannig að ég er mest í þessu núna.“
Hún segist mest fjalla um sjálfa
sig og sinn kvíða í uppistandinu.
„Ég er með ofsakvíða, heilsukvíða,
ég held alltaf að ég sé með alla sjúk-
dóma sem til eru. Ég tala líka mikið
um það þegar ég var einhleyp en
núna er ég komin í samband. Þann-
ig að það er smá skrýtin tilfinning
og fyndið. En svo geri ég líka óspart
grín að kærastanum mínum, af því
að það er svo mikill aldursmunur
á okkur. Hann er 45 ára en ég er að
verða 29 ára á laugardaginn, þann-
ig að við erum á smá ólíkri bylgju-
lengd. Hann er sagnfræðingur og ég
grínisti, hann er aðeins háfleygari
en ég. En það gengur samt allt mjög
vel,“ segir Ebba.
Nammi sem enginn vill
Ebba segist áður hafa gert efni úr
vandræðalegum sögum af einnar
nætur gamni.
„Konur tengja ótrúlega mikið
við þessar sögur, kannast við þær
og hafa upplifað svipað. Svo halda
þær kannski að enginn lendi í þessu
nema þær, en síðan hafa svo margar
konur upplifað margt af þessu.
Slæmar Tinder-sögur og þannig,
það er náttúrulega bara helvíti.
Tinder er svona eins og laugar-
dagur í Nammilandi og það eina
sem er í boði eru súkkulaðirúsínur.
Nammi sem enginn vill,“ segir Ebba
hlæjandi.
Miða á uppistandið í kvöld er
hægt að kaupa á Tix.is, en það hefst
klukkan 21.00.
steingerdur@frettabladid.is
Álpaðist út í uppistand
algjörlega óvart
Þau Snjólaug, Jonathan og Ebba eru með uppistand í kvöld á
Hard Rock. Þar grínast þau með allt milli himins og jarðar, en
Ebba gerir mest grín að sjálfri sér og ástalífi sínu áður fyrr.
TINDER ER SVONA
EINS OG LAUGAR
DAGUR Í NAMMILANDI OG ÞAÐ
EINA SEM ER Í BOÐI ERU SÚKKU
LAÐIRÚSÍNUR.
2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R38 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
1
-1
1
-2
0
1
9
0
5
:2
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
4
4
9
-3
0
1
4
2
4
4
9
-2
E
D
8
2
4
4
9
-2
D
9
C
2
4
4
9
-2
C
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
2
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K