Fréttablaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 21.11.2019, Blaðsíða 29
 Í allri þeirri umræðu sem nú á sér stað um loftslagsmál er mikilvægt að setja sann- leikann í öndvegi hvort sem hann er okkur í hag eða ekki.Tilefni þessarar greinar er grein sem birtist í Fréttablað-inu þann 7. nóvember undir fyrirsögninni „Það heitir endur- hlýnun ekki hlýnun“ og vil ég leið- rétta ýmislegt sem þar kemur fram. Í allri þeirri umræðu sem nú á sér stað um loftslagsmál er mikilvægt að setja sannleikann í öndvegi hvort sem hann er okkur í hag eða ekki. Við viljum trúa því að f lestir vísindamenn vinni með sannleik- ann að leiðarljósi þótt örugglega séu undantekningar þar á. Ef við lítum á staðreyndir um lofthjúp jarðar eru þær þessar: Styrkur koltvísýrungs í andrúms- lofti hefur hækkað frá upphafi iðn- byltingar úr 290 ppm á seinni hluta 19. aldar og er nú um 400 ppm og spáð er árlegri aukningu um 10 ppm. Þessi mikla aukning skýrist fyrst og fremst af aukinni notkun jarðef naeldsney tis sem hef ur 10-faldast frá árinu 1930 og hækkar með veldisvísi (e. exponential). Í hinu náttúrulega ferli myndast koltvísýrungur við niðurbrot á líf- rænu efni sem viðheldur hringrás þess. Eyðing vistkerfa á jörðinni verður síðan til þess að stöðugt minni bindihæfni verður í gróðri og veldur þetta keðjuverkun þ.e. meiri losun á móti minni bindingu hefur stigmagnandi áhrif á magn koltvísýrungs. Til samanburðar má líta á hækkun höfuðstól láns sem einnig hækkar með veldisvísi. Vextir leggjast á höfuðstólinn og síðan leggjast nýir vextir á nýjan höfuðstól o.s.frv. Með þessu móti hækkar t.d. höfuðstóll láns sem ber 4 % vexti tvöfalt á 20 árum og 50-faldast á 100 árum. Efnafræðin kennir okkur að efnahvarf, þar sem stöðug hækkun verður á myndefni efnahvarfsins, er ekki í jafnvægi. Þetta þýðir að framleiðsla á koltví- sýrungi af völdum bruna jarðefna- eldsneytis á jörðinni er mun meiri en náttúran nær að binda. Ekki er hægt að horfa fram hjá niðurstöðum hitamælinga á jörð- inni og hefur meðalhitastig jarðar hækkað skv. mælingum um 1°C á síðustu 100 árum og frá árinu 1975 hefur meðalhækkun á ára- tug verið á bilinu 0,15-0,20 °C. Það er einnig vísindaleg staðreynd að svo hröð hlýnun hefur aldrei áður orðið í jarðsögunni þótt vitað sé að sveif lur hafa orðið á hitastigi jarðar á löngum tímabilum. Hraði breytinga skiptir hins vegar miklu máli í vistkerfi jarðar sem er lengi að aðlaga sig breytingum sem geta leitt til hruns á mikilvægum líf- kerfum. T.d. má nefna lækkun á Staðreyndir um hlýnun jarðar Egill Einarsson efnaverk­ fræðingur sýrustigi sjávar vegna hækkaðs koltvísýrungs sem veldur miklum breytingum á lífsskilyrðum líf- vera sem mynda kalkskel. Hækkun sjávar vegna þenslu er um 60 cm fyrir hverrar gráðu hækkun og þar við bætist hækkun vegna bráðn- unar jökla. Einungis um 1:100.000 af vatni jarðar er bundið í loft- hjúpnum og gefur auga leið að lítið munar um aukna uppgufun til að sporna við hækkun sjávarborðs. Að lok u m: Ef ma nn k y nið stendur frammi fyrir tveim mögu- leikum, hamfarahlýnun eða end- urhlýnun getur það tekið tvenns konar afstöðu: 1) Hafnað kenn- ingum vísindanna og látið reka á reiðanum og aðhyllst kenningu um endurhlýnun. 2) Viðurkennt þau hættumerki sem eru á lofti og búist til varnar. Hvor afstaðan er skynsamlegri óháð því hvor kenn- ingin er rétt? Í tilfelli 1 er hugsan- legt að um eðlilegt ferli sé að ræða og því ástæðulaust að bregðast við. Hafi menn hins vegar tekið rangan pól í hæðina blasir við stórkostleg eyðing búsvæða mannsins þar sem stórir hlutar jarðar verði óbyggi- legir. Í tilfelli 2 hefur verið gert ráð fyrir að verstu spár geti ræst og brugðist við með því að taka rækilega til í sóun og ofnýtingu auðlinda jarðar. Hvernig sem allt fer hefur þó verið brugðist við og reynt að bjarga lífríki og búsetu mannkyns. Ég læt lesendur um að meta hvor leiðin er betri. GEFÐU VATN gjofsemgefur.is 9O7 2OO3 ONEPL US 7 Magna ður sí mi á ótrúle gu ver ði 79.99 0 VERÐ ÁÐUR 99.99 0 AF ÖLLUM MINNISLY KLUM 50% Afsláttur AF ÖLLUM SSD DISKUM 20% Afsláttur 20% Afslát tur af öllum BLAST ! leikj atölvu m 2.792 VERÐ ÁÐUR 3.490 Af öllum snjallúrum frá Wonlex 20% AFSLÁTTUR JÓLAL EG TILB OÐ Sérva lin tilb oð í al lan nóvem ber eð a með an birgði r enda st SWITC H LITE Mögnu ð leikj atölva frá Ninten do í 3 litum 39.99 0 VERÐ ÁÐUR 42.99 0 GXT70 7 Magna ður le ikjastó ll frá Trust í rauðu eða b láu 29.99 0 VERÐ ÁÐUR 34.99 0 21. nóvem ver 2019 • B irt m eð fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og m yndabrengl TILBOÐ Reykjavík • Mörkin 3 • 563 6900 Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 SENDUM FRÍTT Um land allt allar vörur allt að 10 kg. FRÁBÆR TILBOÐ ÚT ALLAN NÓVEMBER S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F I M M T U D A G U R 2 1 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9 2 1 -1 1 -2 0 1 9 0 5 :2 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 4 4 9 -4 D B 4 2 4 4 9 -4 C 7 8 2 4 4 9 -4 B 3 C 2 4 4 9 -4 A 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 2 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.