Fréttablaðið - 19.01.2019, Page 8

Fréttablaðið - 19.01.2019, Page 8
NOREGUR Ný ríkisstjórn í Noregi ætlar að koma á frístundastyrkjum fyrir börn á bilinu sex til átján ára sem hægt er að nýta til þess að niðurgreiða tómstundir barna. Að því er kemur fram í stjórnarsátt­ mála hinnar nýju stjórnar er þetta gert að íslenskri fyrirmynd. Stjórnin áformar að sveitarfélög geti svo aðlagað hið nýja kerfi að sínum þörfum. Erna Solberg forsætisráðherra komst á fimmtudag að samkomu­ lagi við Kristilega þjóðarflokkinn um að ganga til liðs við ríkisstjórn­ ina. Þannig mynda Kristilegi þjóðar­ flokkurinn, Hægriflokkur Solberg, Framfaraflokkurinn og Venstre nú fyrstu meirihlutastjórn norsku borgaraflokkanna frá árinu 1985. Til þess að fá Kristilega þjóðar­ flokkinn að borðinu þurftu hinir flokkarnir þrír hins vegar að gefa eftir er varðar stefnu um þung­ unarrof. Þannig stendur nú til að banna konum að eyða einu eða fleiri fóstrum, en ekki öllum, þegar kona er ólétt af margburum. Hins vegar vildu flokkarnir ekki gangast við kröfu Kristilegra um að banna þungunarrof seint á meðgöngu í þeim tilvikum sem fóstrið hefur greinst með Downs­heilkenni eða sambærilega erfðagalla. – þea Norska stjórnin horfir til Íslands í stjórnarsáttmála Ekki er ljóst hvort Solberg horfir hér bókstaflega til Íslands. NORDICPHOTOS/AFP útsölulok á morgun Allt að 72% afsláttur 30 daga skilaréttur Við bjóðum skilarétt á öllum gjöfum til 24. janúar. Nánar á elko.is. útsölulok á morgun Allt að 72% afsláttur 30 daga skilarétt r Við bjóðum skilarétt á öllum gjöfum til 24. janúar. Nánar á elko.is. útsölulok á morgun Allt að 72% afsláttur 30 daga skilaréttur Við bjóðum skilarétt á öllum gjöfum til 24. janúar. Nánar á elko.is. útsölulok á morgun Allt að 72% afsláttur 30 daga skilaréttur Við bjóðum skilarétt á öllum gjöfum til 24. janúar. Nánar á elko.is. icewear.is BANDARÍKIN Tvær nefndir fulltrúa­ deildar Bandaríkjaþings munu hefja rannsókn á því hvort Donald Trump forseti hafi skipað Michael Cohen, þá persónulegum lögfræð­ ingi sínum, að ljúga að þinginu meðan á kosningabaráttu stóð árið 2016 um mislukkuð fasteignavið­ skipti í Moskvu. BuzzFeed News greindi fyrst frá hinu meinta broti og hafði eftir tveimur heimildar­ mönnum innan úr löggæslukerf­ inu. Á þessum tíma sagði Trump sjálfur að hann hefði engin við­ skiptatengsl við Rússland. Jerrold Nadler, Demókrati og formaður dómsmálanefndar, sagði að það væri alríkisglæpur að skipa undirmanni sínum að ljúga að þinginu. „Dómsmálanefndin á að komast til botns í þessu máli og það munum við gera,“ tísti Nadler. Adam Schiff, Demókrati og for­ maður upplýsingamálanefndar, sagði að nefndin myndi gera það sem nauðsynlegt er til þess að kom­ ast að hinu sanna í málinu. Bætti því við að ásökunin væri sú alvar­ legasta á hendur Trump til þessa. Eins og Schiff tók fram hefur Trump verið sakaður um ýmis­ legt í forsetatíð sinni þótt hann hafi ekki verið dæmdur fyrir neitt. Þannig hefur Trump verið sagður nýta embætti sitt til þess að hagn­ ast persónulega og reyna að hindra framgang réttvísinnar svo eitthvað sé nefnt. Fleiri Demókratar brugðust við umfjölluninni af hörku. Joaquin Castro, fulltrúadeildarþingmaður og bróðir Julians Castro, sem hefur tilkynnt um forsetaframboð, sagði að ef satt reyndist þyrfti Trump annaðhvort að segja af sér eða sæta ákæru til embættismissis. David Þingið mun rannsaka meint afbrot forsetans BuzzFeed News segir Trump hafa skipað lögmanni sínum að ljúga að þinginu. Tilnefndur dómsmálaráðherra sammála því að slíkt teldist hindrun á framgangi réttvísi. Bæði dómsmála- og upplýsingamálanefnd þingsins ætla að rannsaka. Ennþá lokað Enn eru þær stofnanir alríkisins sem ekki teljast bráðnauðsyn- legar lokaðar. Deila Repúblikana og Demókrata um fjármögnun landamæraveggjar virðast engan enda ætla að taka. Lokunin er nú á 28. degi og er sú lengsta í sögu Bandaríkjanna. Nancy Pelosi, forseti fulltrúa- deildarinnar, og Trump hafa átt í hörðum deilum vegna málsins. Fyrr í vikunni lagði Pelosi til að Trump myndi fresta stefnuræðu sinni þar sem ekki væri hægt að tryggja öryggi þingsins vegna lokunarinnar. Í gær ákvað Trump svo að fresta fyrirhugaðri ferð Pelosi til Brussel og Afganistan með því að meina henni að nota eina af flugvélum hersins. Bandaríkjaforseti er enn á ný sagður hafa brotið af sér. NORDICPHOTOS/AFP Cicilline, Demókrati í dómsmála­ nefndinni, sagði að ef Trump hefði skipað Cohen í raun og veru að ljúga að þinginu væri það „hindrun á framgangi réttvísinnar. Punktur.“ Einkar áhugaverð í þessu sam­ hengi eru ummæli Williams Barr, sem Trump hefur tilnefnt í stól dómsmálaráðherra, er féllu þegar hann var yfirheyrður í öldunga­ deildinni á þriðjudag. Barr sagði að hver sá sem skipar vitni að ljúga teljist hindra rannsókn. Michael Cohen var sakfelldur fyrir að hafa séð um þagnar­ greiðslur til kvenna sem sögðu Trump hafa sængað hjá sér. Hann var dæmdur í þriggja ára fangelsi. Lanny Davis, lögmaður Cohens, sagðist í gær ekki ætla að tjá sig um fréttina. Sjálfur tjáði Trump sig um málið á Twitter. Sagði Cohen ljúga til þess að losna fyrr úr fangelsi. thorgnyr@frettabladid.is 1 9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.