Fréttablaðið - 19.01.2019, Page 24
Marie Kondo og aðferðir hennar við tiltekt njóta vinsælda. Hún segir að tiltekt og snyrtimennska geti leitt til aukinnar sjálfsþekkingar og meiri færni í að leysa dagleg verkefni. NORDICPHOTOS/GETTY
+PLÚS
Stundum fara hreingerningar og
tiltekt út í öfgar,“ segir Sóley Dröfn
Davíðsdóttir forstjóri Kvíðamið-
stöðvarinnar. „Svo eru auðvitað þeir
sem eru með hreingerningaráráttu
þar sem óhóflega mikil orka fer í að
halda öllu fínu og þá þarf að spyrja
sig hvort það sé fyrirhafnarinnar
virði að hafa allt svona fínt. Ef fólki
líður vel með þetta er það í lagi en
sumir eru endalaust með tuskuna
á lofti af ótta við álit annarra eða af
ótta við sýkla eða svo allt líti vel út
á yfirborðinu. Ef það er ótti við til
dæmis álit annarra (eða sýkla) sem
stýrir þrifunum er hjálplegt að taka
áhættu, bjóða fólki heim og hafa
svolítið drasl og sjá hvað gerist. Eða
koma við það sem manni finnst
óhreint án þess að þvo sér og sjá
hvort nokkuð gerist,“ segir Sóley.
„Hæfileg óreiða finnst mér heil-
brigð og til marks um að fólk
hugi að einhverju öðru en enda-
lausum þrifum. Gott er að spyrja
sig hvers maður vilji minnast í ell-
inni, að það hafi alltaf verið rosa-
lega hreint og fínt hjá manni eða
hvort það væri kannski skemmti-
legra að minnast góðra bóka sem
lesnar voru, skemmtilegs fólks
sem maður umgekkst eða áhuga-
verðra ferðalaga og svo framvegis.
Til dæmis finnst mér alltaf skemmti-
legast að koma á heimili þar sem
bækur eru, ekki síst ef þær eru auð-
vitað lesnar og ekki bara til skrauts!“
En að fólk fái meiri skilning á
sjálfu sér og lífinu við að þrífa eins
og margir spekingar halda fram
segir Sóley ólíklegt.
„Mér þykir ólíklegt að fólk öðlist
meiri skilning á sér við þrif og mæli
þá frekar með ýmsu öðru svo sem
bókalestri, ferðalögum og kynnum
við alls konar fólk svo dæmi séu
nefnd. Auðvitað eru regluleg þrif
eitt af því sem reynir á sjálfsagann
og gott að ala börn upp við að
ganga vel um og taka tillit til ann-
arra að því leyti. Gott er samt að
temja sér og læra að maður geti
gert eitthvað þótt maður hafi ekki
gaman af því en það hefur svolítið
borið á því á samfélagsmiðlum að
fólki megi helst ekki leiðast nú til
dags og sumir eru svo agalausir
að þeir geta helst ekki gert eitt-
hvað ef þeim finnst það erfitt og
leiðinlegt,“ segir Sóley og segir
hægt að æfa sjálfs agann með því
að þrífa óháð því hvernig manni
líður. „Ekki þýðir að bíða eftir því
að maður sé í stuði til að gera vissa
hluti, eins og að fara í ræktina, því
þá færi maður líklegast sjaldan!
Takast þarf á við hlutina og svo
verður maður eftir á ánægður
með að hafa gert þá. Þetta er eins
og með sjálfstraustið, ekki þýðir
að bíða þar til maður treystir sér
í hlutina, það gefur sjálfstraust
að takast á við eitthvað erfitt og
komast að því að maður ræður við
það!“ segir Sóley að lokum.
Ekki bíða eftir því að vera í stuði
Hæfileg óreiða er heilbrigð, segir Sóley Dröfn Davíðsdóttir sálfræðingur og forstjóri Kvíðamiðstöðvarinnar. Hún segir ólíklegt að fólk
öðlist meiri skilning á sér við þrif og mælir frekar með ýmsu öðru. Svo sem bókalestri, ferðalögum og kynnum við alls konar fólk.
Sumir eru endalaust með tuskuna á lofti af ótta við álit annarra eða af ótta við sýkla,“ segir Sóley og mælir með að taka áhættu og bjóða fólki heim í draslið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR