Fréttablaðið - 19.01.2019, Page 37

Fréttablaðið - 19.01.2019, Page 37
Ég missti heilmikið hár í fyrra-vetur vegna vöðvabólgu en gæti nú klippt á mig þykkan þvertopp,“ segir Ingibjörg Sveins- dóttir, hárgreiðslumeistari á Hári í höndum. Ingibjörg hefur síðan í apríl síðastliðnum tekið inn Protis® Kollagen sem styrkir uppbygg- ingu og endurnýjun húðar, hárs og nagla. „Sem hárgreiðslukona hef ég aldrei séð annað eins,“ segir Ingi- björg sem tekur þrjár töflur á dag og hefur ekki misst úr dag. „Protis® Kollagen hefur gert kraftaverk fyrir mig. Á innan við hálfu ári var ég aftur komin með hár en áður var farið að skína ofan í kollinn á mér. Þá hefur húðin mín, sem orðin var þurr, aftur fengið eðlilegan raka og aukinn þéttleika, og neglurnar eru sterkar og flottar.“ Líka gott fyrir karla Ingibjörg segir þekkt að vöðva- bólga og allt sem þrengi að blóð- flæði upp í höfuðið valdi hárlosi. „Það, ásamt minni framleiðslu kollagens í líkamanum, er ástæða þess að eldra fólk verður þunn- hærðara og kollvik hækka. Ég mæli því hiklaust með Protis® Kollagen fyrir þá sem vilja fallegt hár og ekki síst fyrir konur með hárlos og þær sem eru að eiga börn því eftir barnsburð er hárlos oft vanda- mál. Ég er líka viss um að Protis® Kollagen hjálpi körlum sem eru farnir að finna hár sitt þynnast en það gerist gjarnan vegna of mikillar gelnotkunar sem lokar hársekkjunum.“ Ingibjörg mælir með Protis® Kollagen fyrir konur sem greinst hafa með krabbamein og ganga í gegnum erfiðar krabbameins- meðferðir. „Lyfjameðferðir fara illa með húðina og valda hármissi. Því er kollgen eitt það besta sem hægt er að gera til að styrkja og efla hárið, húðina og neglurnar,“ segir Ingibjörg, Náttúrulegt yngingarmeðal Kollagen er náttúrulegt byggingar- efni húðar, hárs og nagla en eftir því sem aldurinn færist yfir fara birgðir þess minnkandi í líkamanum. „Þess vegna hafa konur keypt sér kollagen í gegnum árin og ég er þar engin undantekning. Hins vegar er þrefalt meira kollagen í Protis® Kollagen en því sem ég hef keypt annars staðar. Kollagen má segja að sé náttúrulegt yngingarmeðal því það spornar við hrukkumynd- un, endurnýjar húðina og dregur úr fínum línum,“ segir Ingibjörg sem talar af reynslu og fann fljótt mikinn mun á húð sinni, hári og nöglum með Protis® Kollagen. „Ég hef aldrei séð slíkan mun áður. Hárið var orðið til vandræða og ég farin að nota gamla blásturs- bursta frá diskóárunum til að ná að lyfta því upp frá andlitinu. Hárið vex hratt og þykknar eftir því sem ný hár vaxa. Endurnýjunin er því mikil og hröð.“ Góður og greinilegur árangur Fagurt hár Ingibjargar vekur athygli viðskiptavina hennar sem taka eftir því hár hennar hefur þykknað og er orðið ræktarlegt. „Breytingin er svo mikil og augljós. Það er stór munur á mér og fólk veltir fyrir sér hvað ég gerði. Eftir að hafa tekið inn Protis® Kollagen í aðeins tvær vikur var ég laus við hárlosið og eftir tvo mánuði var greinilegur munur á hárinu sem hafði bæði þykknað og vaxið mikið. Þeir sem prófa svo Protis® Kollagen einu sinni kaupa það aftur og aftur því árangurinn er svo góður og greini- legur.“ Protis® Kollagen fæst í flestum matvöruverslunum, apótekum, heilsuverslunum og í Fríhöfninni. Nánari upplýsingar á protis.is. Ingibjörg mælir með Protis® Kollagen fyrir allar konur sem glíma við hárlos en segir það einnig gott fyrir karla þegar hár fer að þynnast. MYND/SIGTRYGGUR ARI Kollagen er náttúrulegt pró-tein og eitt helsta bygg-ingarefni líkamans. Virkni þess styrkir bæði uppbyggingu og endurnýjun húðar, hárs og nagla. n Ekkert gelatín eða sykur n Meira magn virkra efna en hjá flestum samkeppnisaðilum n Engin aukaefni n Sýnilegur árangur á 30 dögum n Íslenskt hugvit og framleiðsla PROTIS® KOLLAGEN Fyrsta og eina íslenska kollagenið sem er framleitt á Íslandi. Protis® Kollagen er framleitt úr íslensku fiskroði hjá líftæknifyrir- tækinu PROTIS. Varan er einstök blanda af bestu innihaldsefnum sem öll styðja við styrkingu á húð, hári og nöglum. Kollagen úr fiski er áhrifaríkara en kollagen úr landdýrum þar sem upptaka úr meltingarvegi er betri. Helstu innihaldsefni n SeaCol® er blanda af vatns- rofnu kollageni úr íslensku fisk- roði og vatnsrofnu þorskprótíni úr íslenskum þorski. SeaCol ® tekur þátt í að styrkja vefi líkamans og viðhalda teygjan- leika. n C-vítamín tekur þátt í myndun kollagens í líkamanum. n Hyaluronic-sýra er eitt mest rakagefandi efni náttúrunnar og viðheldur meðal annars raka húðarinnar. n Kóensím Q10 er að finna í nær öllum frumum líkamans. Það er mikilvægt fyrir endurnýjun fruma eins og húðfruma. n B2- og B3-vítamín, sink, kopar og bíótín fyrir hárvöxt, endur- nýjun húðar og vöxt nagla. PROTIS® Kollagen – Eina íslenska kollagenið Protis® Kollagen hefur gert krafta- verk fyrir mig. Á innan við hálfu ári var ég aftur komin með hár en áður var farið að skína ofan í kollinn á mér. Framhald af forsíðu ➛ Protis® Kolla- gen er fyrsta og eina kollagenið sem framleitt er á Íslandi. Það er einstök blanda af bestu inni- haldsefnum sem öll styðja við styrkingu á húð, hári og nöglum. Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@ frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.