Fréttablaðið - 19.01.2019, Síða 44
hagvangur.is
Náðu meiri árangri
í samningaviðræðum
Námskeið í samningatækni
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Öryrkjabandalag Íslands auglýsir eftir tveimur starfsmönnum í tímabundin hlutastörf við átaksverkefni á sviði aðgengismála á höfuðborgarsvæðinu og á
landsbyggðinni. Samanlagt er gert ráð fyrir 100% starfshlutfalli sem skiptist á milli starfsmanna eftir samkomulagi. Átaksverkefnið mun standa yfir í sex mánuði.
Aðgengi um almannarými og byggingar hefur batnað til muna undanfarin ár. Þó þarf að gera miklu betur. ÖBÍ hyggst taka út aðgengi víða í samfélaginu og
leggja til úrbætur þar sem við á. Markmiðið er að vekja athygli stjórnvalda, stjórnsýslu og almennings á málaflokknum um mikilvægi aðgengis fyrir alla.
Úttektir verða gerðar á völdum byggingum ætluðum almenningi. Unnið er eftir hugmyndafræði algildrar hönnunar með notkun gátlista. Starfsmenn fá fræðslu
og þjálfun áður en úttektir hefjast. Unnið er í nánu samstarfi við skrifstofu ÖBÍ, málefnahóp ÖBÍ um aðgengismál og starfsmann hans. Gert er ráð fyrir að annar
starfsmaðurinn haldi utan um verkefnið, skrifi skýrslur og sjái um skjalavörslu en þeir fari saman í úttektir, miðla upplýsingum o.fl. Önnur verkefni taka mið af
menntun, reynslu og áhuga.
Aðgengisátak ÖBÍ
Verkefni
• Undirbúningur, skipulagning og utanumhald
• Úttektir á aðgengi
• Skráning á niðurstöðum
• Skýrslugerð
• Miðlun niðurstaðna og eftirfylgni
• Ljósmyndun, upptökur og miðlun efnis
Hæfniskröfur
• Framhaldsskólamenntun æskileg og/eða
menntun á háskólastigi
• Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð
vinnubrögð
• Góð íslenskukunnátta og ritfærni
• Tölvukunnátta og þekking á samfélagsmiðlum
æskileg
• Reynsla af aðgengishindrunum
• Góð samskipti og samstarfshæfileikar
Nánari upplýsingar veitir:
Inga S. Arnardóttir, inga@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar 2019.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Fatlað fólk/fólk með skerðingar er sérstaklega hvatt
til að sækja um.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.
Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) er heildarsamtök fatlaðs fólks, öryrkja, einstaklinga með langvinna sjúkdóma og aðstandenda þeirra.
Aðildarfélög bandalagsins eru 43 talsins. Hlutverk ÖBÍ er að vinna að samfélagslegu réttlæti, bættum lífsgæðum og kjörum auk þess
að vera stefnumótandi í réttindamálum hagsmunahópsins. Öflun og miðlun þekkingar er mikilvægur þáttur í starfseminni. Þá tekur
ÖBÍ þátt í erlendu samstarfi. Nánari upplýsingar er að finna á obi.is.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Væntanlegt byggðasamlag um brunavarnir Dala, Reykhóla og Stranda óskar eftir að ráða slökkviliðsstjóra.
Tilgangur byggðasamlagsins er að að fara með skipulag, yfirstjórn, þjálfun vegna slökkviliða og eldvarnareftirlits á starfssvæðinu.
Starfssvæðið er Árneshreppur, Dalabyggð, Kaldrananeshreppur, Reykhólahreppur og Strandabyggð. Íbúar á starfssvæðinu eru 1545.
SLÖKKVILIÐSSTJÓRI
Starfssvið
• Yfirumsjón og ábyrgð á rekstri og stjórnun
slökkviliðsins
• Ábyrgð á faglegri starfsemi slökkviliðsins
• Úttektir, eldvarnareftirlit og stjórnun aðgerða
• Stefnumótun og áætlanagerð
• Samskipti við hagsmunaaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
• Umsækjandi skal hafa löggildingu sem
slökkviliðsmaður skv. 17. gr. laga nr. 75/2000
og/eða hafa starfað að lágmarki í eitt ár
í slökkviliði sem löggiltur slökkviliðsmaður
eða hafa háskólamenntun með sérmenntun
í brunamálum
• Reynsla og/eða haldgóð þekking á stjórnun
slökkviliðs æskileg
• Leiðtogahæfni
• Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
• Góð almenn tölvukunnátta og færni til að
tjá sig í ræðu og riti
• Þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum
samskiptum
Nánari upplýsingar veitir:
Þórir Þorvarðarson, thorir@hagvangur.is
Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi
Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi
stéttarfélag.
Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar 2019.
Umsóknir ásamt ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi
óskast fylltar út á www.hagvangur.is
ATVINNUAUGLÝSINGAR 5 L AU G A R DAG U R 1 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9