Fréttablaðið - 19.01.2019, Side 50

Fréttablaðið - 19.01.2019, Side 50
Markaðs- og viðburðastjóri Þróttar. Knattspyrnufélagið Þróttur leitar eftir markaðs- og viðburða- stjóra til starfa fyrir félagið í fullu starfi. Í því felst m.a. stjórnun viðburða, verkstjórn í markaðs- og kynningarmálum, umsjón með fjáröflun, samskipti við styrktarfyrirtæki og störf fyrir deildir félagsins auk annarra verkefna samkvæmt samningi. Viðkomandi þarf að hafa menntun sem nýtist í starfi, haldgóða reynslu af sölu og markaðsmálum, ódrepandi trú á viðfangs- efninu og mikinn áhuga á íþróttum og öllu sem þeim tengist. Markaðs- og sölumál eru vaxandi hluti af starfsemi íþrótta- félaga og mikilvægt að þeim sé sinnt á skapandi hátt þar sem hagsmunir starfsmannsins og félagsins fara saman við tekju- öflun. Því leitum við að hugmyndaríkri manneskju sem býr yfir frumkvæði og getur starfað sjálfstætt en á um leið auðvelt með að vinna í hópi. Knattspyrnufélagið Þróttur, sem fagnar á þessu ári 70 ára afmæli sínu, er staðsett á besta stað í Reykjavík, í miðju Laugardalsins. Í félaginu er alltaf líf og fjör og tækifærin mýmörg. Fjölgað hefur verulega í félaginu síðustu misserin og framundan eru miklar breytingar og uppbygging á félagssvæðinu m.a. vegna þéttingar byggðar í nágrenni Laugardalsins. Umsóknum skal skilað fyrir 30. janúar til Ótthars Edvardssonar framkvæmdastjóra Þróttar á netfangið, otthar@trottur.is. Hann veitir jafnframt nánari upplýsingar. Bakarí / Kaffihús Starfskraftur óskast til afgreiðslustarfa í bakarí frá kl. 7:00 -14:00 virka daga og annan hvern laugardag. Íslensku kunnátta skilyrði og ekki yngri enn 20 ára. Uppl. sendist á : sveinsbakari@sveinsbakari.is Grunnskólakennarar og þroskaþjálfi Við Grunnskóla Grindavíkur eru lausar til umsóknar stöður umsjónarkennara á miðstig, íþróttakennara og þroskaþjálfa. Um er að ræða 50-100% störf. Umsóknarfrestur er til 31. janúar. Skólinn er heildstæður, einsetinn grunnskóli, með 515 nemendur í tveimur starfsstöðvum. Í Grunnskóla Grindavíkur er starfað eftir Uppbyggingarstefnunni og lögð áhersla á að skapa námsumhverfi í samráði við foreldra þar sem allir eru virkir, að öllum líði vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu. Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar. Sjá nánar á heimasíðu skólans http://www.grindavik.is/grunnskolinn. • Við leitum að einstaklingum með réttindi til kennslu í grunnskóla sem eru metnaðarfullir, og góðir í mannlegum samskiptum, með skipulagshæfileika, eru sveigjanlegir og tilbúnir að leita nýrra leiða í skólastarfi. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitar- félaga og Kennarasambands Íslands. Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2, 240 Grindavík eða sendist á netfangið gudbjorgms@grindavik.is Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg M. Sveinsdóttir skólastjóri í síma 420-1200 Seltjarnarnesi Spennandi störf í boði Hjúkrunardeildarstjórar – Hjúkrunarfræðingar – Sjúkraliðar – Starfsfólk við aðhlynningu – Iðjuþjálfar – Sjúkraþjálfarar – Húsvörður Leitað er eftir áhugasömu fólki til starfa á nýja 40 rýma hjúkrunarheimilinu að Safnatröð 1 á Seltjarnarnesi. Í boði er dagvinna- kvöld-helgar-og næturvaktir Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2019. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið starf 1. mars eða eftir nánari samkomulagi. Upplýsingar gefur Svanlaug Guðnadóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar og Kristín Sigurþórsdóttir mannauðsstjóri: sími 560-4107. Sótt er um á heimasíðu www//sunnuhlid.is merkt Nes-fyrir framan starfið sem sótt er um. Nýtt hjúkrunarheimili Hjúkrunarheimilið Seltjarnarnesi, Safnatröð 1, 170 Seltjarnarnes Ráðgjafar okkar búa yfir víðtækri þekkingu á atvinnulífinu og veita trausta og persónulega ráðgjöf. capacent.is Við finnum rétta einstaklinginn í starfið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.