Fréttablaðið - 19.01.2019, Page 54

Fréttablaðið - 19.01.2019, Page 54
Við óskum eftir starfsfólki í afgreiðslu. Vinnutími er frá 13:00 til 18:00 Framtíðarstarf. Umsóknir sendist á bjornsbakari@bjornsbakari.is Merkt ATVINNA LIÐVEISLA – kvöld og helgar Hreyfihamlaður maður í Hafnarfirði leitar að einstaklingi til að sinna liðveislu á kvöldin og um helgar. Viðkomandi þarf að hafa náð 24 ára aldri, vera með bílpróf, vera heiðarleg(ur), samviskusamur(söm) og skemmtileg(ur). Starfið er óreglulegt, og felst helst í því að aðstoða í tengslum við mannamót og til útiveru. Æskilegt væri einnig að viðkomandi gæti aðstoðað sem ritari vegna verkefna er fylgja háskólanámi viðkomandi. Umsækjandur vinsamlega hafa samband í síma 895-8488/ 483-1088 eða í tölvupósti sjam@simnet.is Job.is Þú finnur draumastarfið á Náðu meiri árangri í samningaviðræðum Námskeið í samningatækni hagvangur.is Svæðisstjóri Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laus til umsóknar starf svæðisstjóra Heilsugæslunnar Mjódd. Svæðisstjóri gegnir jafnframt samhliða starfi fagstjóra lækninga eða fagstjóra hjúkrunar samkvæmt nýju skipulagi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, stefnumótandi hugsun og samskiptahæfileika. Umsóknarfrestur er til og með 04.02.2019 2019. Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustunni þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur gert breytingu á skipulagi og rekstri heilsugæslustöðva sem miðar að því að auka þjónustu við notendur, nýta betur fjármuni og að bæta vinnuumhverfi starfsmanna. Til að gera þjónustuna markvissari er lagt upp með teymisvinnu sem grunnstef í starfsemi stöðva, ásamt innleiðingu aðferða straumlínustjórnunar. Þverfagleg teymi heilbrigðisstarfsfólks munu auðvelda stöðvum að taka á flóknum vandamálum með fjölbreyttum úrræðum. Í breyttu skipulagi hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur starfsfólk aukið sjálfstæði til að móta starfsemi og til að útfæra þjónustu sem mætir þörfum íbúa og uppfyllir um leið kröfur um árangur samkvæmt mælingum og mati. Helstu verkefni og ábyrgð • Ber ábyrgð á rekstri heilsugæslustöðvar gagnvart framkvæmdastjórn • Skipuleggur heilsugæsluþjónustu í umdæmi stöðvar • Þróar nýjungar og vinnur að breytingum í starfsemi • Mótar, innleiðir og endurskoðar verkferla • Byggir upp og styður við teymisvinnu og þverfaglegt samstarf • Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu • Stuðlar að gæðaþróun og árangursmati í starfi stöðvar • Tekur þátt í gerð áætlana varðandi rekstur, þjónustu og áherslur í starfsemi stöðvar • Er faglegur yfirmaður á sínu sviði og sinnir klínísku starfi Hæfnikröfur • Heimilislæknir eða hjúkrunarfræðingur með framhalds­ menntun og/eða reynslu af stjórnun • Reynsla af starfi í heilsugæslu • Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar • Reynsla af þróunarstarfi og breytingastjórnun æskileg • Nám í stjórnun æskilegt • Hæfni í mannlegum samskiptum • Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi • Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt • Góð íslenkukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti Aðrir eiginleikar: • Vilji til að veita framúrskarandi þjónustu og efla heil­ brigði íbúa svæðisins • Áhugi og hæfni til að leiða þverfaglegt starf heilsu­ gæslunnar • Áhugi og hæfni til að nýta aðferðafræði straumlínu­ stjórnunar • Vilji til að skapa gott starfsumhverfi Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála­ og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Starfshlutfall er 100% og verður ráðið í starfið til 5 ára frá og með 01. maí 2019 eða eftir nánara samkomulagi. Umsókn skal fylgja ítarleg náms­ og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast, í tvíriti, til Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mann­ auðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningar í störf. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 04.02.2019 Nánari upplýsingar veitir Óskar Sesar Reykdalsson ­ oskar.reykdalsson@heilsugaeslan.is ­ 513­5000 Svava Kristín Þorkelsdóttir ­ svava.kristin.thorkelsdottir@heilsugaeslan.is ­ 513­5000 Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins Stjórnsýsla Álfabakki 16 109 Reykjavík Þarftu að ráða starfsmann? Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf. Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini. ATVINNUAUGLÝSINGAR 15 L AU G A R DAG U R 1 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.