Fréttablaðið - 19.01.2019, Side 62

Fréttablaðið - 19.01.2019, Side 62
Deildarstjóri umhverfismála Reykjanesbær óskar eftir að ráða öflugan stjórnanda sem deildarstjóra umhverfismála til starfa á Umhverfissviði sveitarfélagsins. Starfssvið deildarstjóra umhverfismála • Hefur umsjón með gatnakerfi sveitarfélagsins • Hefur umsjón með samgöngum í Reykjanesbæ • Hefur umsjón með fráveitu Reykjanesbæjar • Kemur að hönnun og skipulagi framkvæmda í sveitarfélaginu • Eftirlit með verklegum framkvæmdum • Skráningar í gagnagrunn • Vinna áætlunargerð og eftirfylgni áætlana • Aðkoma að skipulagsmálum • Almenn störf á Umhverfissviði Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólagráða í verk- eða tæknifræði á byggingarsviði eða nám í byggingarfræði • Víðtæk og góð reynsla af verkframkvæmdum • Reynsla af eftirliti með verkframkvæmdum • Reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg • Góð þekking og færni í Word og Excel • Þekking á tækniforritum svo sem AutoCad og Microstation æskileg • Kunnátta í skjalavistunarkerfum æskileg • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagsfærni • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum Um er að ræða fullt starf og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Launakjör eru skv. kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsóknarfrestur er til 2. febrúar 2019. Sótt er um starfið á vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri Umhverfissviðs, gudlaugur.h.sigurjonsson@reykjanesbaer.is Ertu snillingur í tækni og og hefur gaman af því að fikta þig áfram? Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Laus til umsóknar er staða verkefnastjóra Tilraunaverkstæðis Borgarbókasafnsins. Markmið Tilraunaverkstæðisins er að styðja við tæknilæsi, ásamt því að efla skapandi hugsun notenda. Verkefnastjóri vinnur náið með öðrum starfsmönnum safnsins en heyrir undir Þjónustu- og þróunardeild. Samkvæmt markmiðum þjónustustefnu Borgarbókasafnsins er lögð áhersla á að starfsemi þess sé vettvangur skapandi hugsunar þar sem tækni 21. aldarinnar er í fyrirrúmi. Tilraunaverkstæðið var sett á stofn til að bjóða upp á fjölbreyttar smiðjur og aðgengir að tækjum með það að markmiði að styðja við m.a. stafrænt læsi og tæknifærni til framtíðar. Þannig stuðlar starfsemi bókasafnsins að því að virkja sköpunarkraft notenda og efla sjálfþroska í gegnum tækni og leik. Borgarbókasafnið veitir íbúum borgarinnar heildstæða þjónustu og er opið öllum með það að markmiði að jafna aðgengi að menningu og þekkingu. Borgarbókasafnið er einnig vettvangur barna, ungmenna og fullorðinna til að uppgötva og rannsaka heiminn og þróa þannig hæfileika sína og tækifæri. Næsti yfirmaður er deildarstjóri þróunar- og þjónustu. Launakjör eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir deildarstjóri þjónustu og þróunar. gudrun.lilja.gunnlaugsdottir@reykjavik.is, sími: 6982466. Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar 2019. Umsóknir skulu sendar á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Helstu verkefni og ábyrgð • Stýra daglegu starfi og hafa yfirumsjón með Tilraunaverkstæði Borgarbókasafnsins og búnaði sem því tilheyrir. • Leiða tækniteymi Borgarbókasafnsins og miðla þekkingu innan safnsins. • Koma á samstarfi við skóla og frístundaheimili auk fagaðila vegna viðburða- og smiðjuhalds. • Leiða þróun og nýsköpun í fræðslu og miðlun fræðsluefnis fyrir Tilraunaverkstæðið og skipuleggur fræðslu fyrir alla aldurshópa. Hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldspróf á háskólastigi er kostur • Haldbær reynsla af verkefnastjórnun og/eða kennslu. • Metnaður, frumkvæði, skipulagshæfni, hugmyndaauðgi og sjálfstæði í starfi. • Mikill áhugi og/eða þekking á tækni og grunnforritun ásamt almennt góðri tölvufærni. • Færni og geta til að vinna undir álagi og sinna mörgum viðfangsefnum. • Færni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki. • Skapandi og lausnamiðuð hugsun. • Gott vald á íslensku og ensku og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. Grunnskólakennarar og þroskaþjálfi Við Grunnskóla Grindavíkur eru lausar til umsóknar stöður umsjónarkennara á miðstig, íþróttakennara og þroskaþjálfa. Um er að ræða 50-100% störf. Umsóknarfrestur er til 31. janúar. Skólinn er heildstæður, einsetinn grunnskóli, með 515 nemendur í tveimur starfsstöðvum. Í Grunnskóla Grindavíkur er starfað eftir Uppbyggingarstefnunni og lögð áhersla á að skapa námsumhverfi í samráði við foreldra þar sem allir eru virkir, að öllum líði vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu. Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar. Sjá nánar á heimasíðu skólans http://www.grindavik.is/grunnskolinn. • Við leitum að einstaklingum með réttindi til kennslu í grunnskóla sem eru metnaðarfullir, og góðir í mannlegum samskiptum, með skipulagshæfileika, eru sveigjanlegir og tilbúnir að leita nýrra leiða í skólastarfi. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitar- félaga og Kennarasambands Íslands. Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2, 240 Grindavík eða sendist á netfangið gudbjorgms@grindavik.is Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg M. Sveinsdóttir skólastjóri í síma 420-1200 Náðu meiri árangri í samningaviðræðum Námskeið í samningatækni hagvangur.is ATVINNUAUGLÝSINGAR 23 L AU G A R DAG U R 1 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.