Hlynur - 15.07.1956, Side 5
HRINGBRAUT 119
Teiknistofa S/S
I framhaldi af greininni í marzhefti
Hlyns, um starfsemina að Hringbraut
119, birtist nú þáttur frá Teiknistofu
SÍS.
Teiknistofan var stofnuð 1945. Iíelgi
Bergs var forstöðumaður hennar frá
upphafi og fram til 1953, þá tók við
forstöðunni Gunnar Þ. Þorsteinsson,
sem hóf þar störf 1948. Störf teiknistof-
unnar eru fólgin í tæknilegri þjónustu
við kaupfélögin og Sambandið. Fyrir
Sambandið annast hún vmiss konar
teiknivinnu og tækniþjónustu vegna
hinna ýmsu deilda. Gerir sérupp-
drætti, annast efnispantrnir og daglega
framkvæmd byggingarvinnu, er sérstak-
4ir bvggingarmeistari fastráðinn til
þeirra starfa. Kaupfélögunum veitir hún
sömu þjónustu og Sambandinu, en þau
annast sjálf hinar daglegu framkvæmd-
ir. —
I þjónustu teiknistofunnar eru ýmsir
sérfræðingar, því starfsemin grípur inn
á mörg svið. Störf þeirra eru mjög yf-
irgripsmikil, þurfa
þeir oft að vera á
ferðalögum milli
kaupfélaganna til
að gefa ráðlegg-
ingar og fylgjast
með framkvæmd-
um.
Hægt væri að
nefna ótal verk-
efni, sem teikni-
stofan hefir leyzt Gunnar
af hendi, þótt
hér sé ekki rúm til þess. — Nægir
að nefna hinn glæsilega húsakost að
Bifröst, vöruskemmuna í Þorlákshöfn,
verksmiðjuhús Gefjunnar, tvær nýjustu
álmur Sambandshússins og margar
hinna glæsilegu kaupfélagsbygginga um
land allt.
Starfsfólk teiknistofunnar, talið frá vinstri: fremri röð: Páll Lúðvíksson, vélaverk-
fræðingur, Edda Sölvadóttir, aðstoðarstúlka, Sigríður Stefánsson, skrifstofustúlka og
Gunnar Þór Þorsteinsson, byggingafræðingur, forstöðumaður. Aftari röð: Björgvin
Olafsson, vélfræðingur, Sigurður Sigurjónsson, rafvirki, Hákon Hertervig, stud. arch.,
Björn Einarsson, raffræðingur og Sigurður Kr. Einarsson, húsasmiður.
5