Hlynur - 15.09.1972, Blaðsíða 2
Nýjung í kynningar-
starfsemi landbúnaðar-
afurða
Tilraunaeldhús Osta- og smjörsölunnar
og Sambandsins tekið til starfa
Nú fyrir skömmu hóf starf-
semi sína „Tilraunaeldhús Osta-
og smjörsölunnar og Sambands-
ins“, sem annast mun hvers kon-
ar kynningar- og tilraunastarf-
semi fyrir landbúnaðarvörur. Er
það til húsa hjá Afurðasölu
Sambandsins á Kirkjusandi, og
starfa þar tveir húsmæðrakenn-
arar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Guðjóni Guðjónssyni forstöðu-
manni Afurðasölu Sambandsins,
hefur þvi oftlega verið hreyft á
undanförnum árum innan sölu-
stofnana landbúnaðarins, að
stofna þyrfti til samræmdrar
starfsemi á þessu sviði. Hjá ein-
stökum stofnunum hefur nokkuð
verið að slikum verkefnum unn-
ið, og ber þar hæst, að Osta- og
smjörsalan hefur nú um þriggja
ára bil starfrækt lítið tilrauna-
eldhús, þar sem húsmæðrakenn-
arar hafa gert margvíslegar til-
raunir í sambandi við íslenzkan
ost til matargerðar, samið upp-
skriftir á ostaréttum, staðið fyr-
ir ostakynningum o. fl. Einnig
hafði Mjólkursamsalan i Reykja-
vík húsmæðrakennara i þjónustu
sinni fyrir nokkrum árum, sem
vann að svipuðum störfum varð-
andi mjóikurvörur og hélt all-
margar kynningar á þeim.
Þessi starfsemi hefur i heild
þótt gefa góða raun, og á s. 1.
ári réði Afurðasala Sambands-
ins í þjónustu sína tvo nýút-
skrifaða húsmæðrakennara, þær
Guðrúnu Ingvarsdóttur og Önnu
Finnsdóttur, með það í huga að
þær skyldu vinna að kynningu
á ýmsum þeim framleiðsluvör-
um, sem fyrirtækið selur til
verzlana. Var þetta i fyrsta
skipti, sem á vegum Sambands-
ins var farið að vinna skipulega
að slíkri kynningu hér innan-
lands, en hins vegar hefur það
á undanförnum árum unnið
mikið að kynningu islenzka
dilkakjötsins erlendis.
í síðustu sláturtíð voru haldn-
ar kynningar í mörgum verzl-
unum í Reykjavik og Hafnar-
firði, þar sem kynntir voru
margs konar réttir úr innmat
og dreift var fjölrituðum upp-
skriftum og öðrum leiðbeining-
um um matargerð. Undirtektir
við þessari starfsemi voru með
þeim ágætum, að fullkomlega
þótti sannað, að hún væri tima-
bær.
Upp úr þeirri reynslu, sem
þarna hafði fengizt hjá Osta-
og smjörsölunni og Afurðasöl-
unni, spratt svo það, að þessir
aðilar hófu umræður um að
sameina þetta starf sitt á ein-
um stað. Urðu þeir sammála um
að sníða væntanlega starfsemi
eftir tilraunaeldhúsum þeim,
sem rekin eru í Sviþjóð, Noregi
og Danmörku og gera tilraunir
með framleiðslu ýmissa rétta úr
framleiðsluvörum landbúnaðar-
ins og annast einnig samningu
uppskrifta o. fl. í Sviþjóð reka
helztu sölusamtök bænda þannig
stofnun, sem ber heitið Jord-
brukets Provkök og annast al-
hliða tilraunastarfsemi og vöru-
kynningar fyrir landbúnaðarvör-
2 HLYNUR