Hlynur - 15.09.1972, Blaðsíða 4

Hlynur - 15.09.1972, Blaðsíða 4
Hrafn Magnússon, kennari, Bifröst: Athyglisverð nýjung við gerð verklýsinga á skrifstofum tíma, eða sex vikur, var hún hj á Jordbrukets Provkök í Svíþjóð, þar sem hún fékk að fylgjast með öllu, sem þar fór fram, og taka þátt í starfseminni. Þar er þó litið um beinar vörukynning- ar, eða ekki nema um sé að ræða einhver sérstök námskeið eða önnur slík tilefni. Hins vegar er þar mun meira unnið að til- raunastarfsemi varðandi nýj- ungar i matreiðslu landbúnað- arafurða, fræðslustarfsemi, eink- um varðandi útgáfu bæklinga og annars fræðsluefnis, og auk þess að leiðbeiningum fyrir matseld í sjúkrahúsum, skólum, veitingahúsum, mötuneytum o. fl., sérstaklega að því er varðar næringargildi fæðunnar. Auk þess var Guðrún svo i viku hjá tilraunaeldhúsi sænska sam- vinnusambandsins KF, þar sem starfsemin er svipuð, en tekur þó að sjálfsögðu til fleiri teg- unda af matvörum, eða til allra þeirra matvæla, sem KF hefur á boðstólum, auk þess sem marg- vísleg heimilistæki eru þar einn- ig tekin til athugunar. Loks var hún svo í viku í Kaupmanna- höfn hjá tilraunaeldhúsi danska samvinnusambandsins FDB. Við spurðum Guðrúnu um framtíðarstarf Tilraunaeldhúss- ins, og sagði hún það ekki vera að öllu leyti fullmótað enn. Þó væri ákveðið, að þær yrðu áfram — Það eru meiri mennirnir þessir nautabanar. Eg var á Spáni í sum- ar, og þar sá ég einn þeirra eyðileggja áreiðanlega einar fimm áigœtar kóti- lettur! I. INNGANGUÍt Sú grein, sem hér birtist, þjón- ar þeim tilgangi að kynna fyrir lesendum blaðsins aðferðir, sem notaðar eru á Norðurlöndum og viðar við gerð verklýsinga. í greininni er engin tilraun gerð til þess að fjalla ýtarlega um hagræðingarstörf, enda þótt full þörf væri á sliku. Ástæðan er sú, með vörukynningar i búðum, og einnig, að þær myndu fást við útgáfustarfsemi, þ. e. gefa út fjölrituð blöð og bæklinga. Væri fyrsti bæklingurinn reyndar þeg- ar kominn út, en hann nefnist „Tólf lambakjötsréttir frá 10 löndum“, og verður honum dreift i búðum í sláturtiðinni nú í haust í sambandi við auglýs- ingaherferð, sem farin verður í sjónvarpinu. Þriðja megin- verkefni þeirra verður svo vöru- eftirlit, fyrst og fremst hjá Af- uröasölunni, þar sem þær munu fylgjast með öllum vörum, sem þar eru framleiddar. Verður þetta bæði heilbrigðis- og gæða- eftirlit, sem framkvæmt verður í samstarfi við Rannsóknastofu Afurðasölunnar. Þetta starf mun Anna Finnsdóttir leysa af hendi, og verður hún í þvi sambandi í hluta úr starfi hjá Rannsókna- stofunni, en hún var fyrir skömmu í nokkrar vikur hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins við að læra gerlarannsóknir tii undirbúnings þessu starfi. —e. að hagræðing og ekki sizt hag- ræðing ýmissa skrifstofustarfa er svo geysiviðtækt verkefni, að alls enginn kostur er að gera sliku efni skil í stuttu máli, enda er rúm blaðsins að sjálf- sögðu takmaikað. Óhætt mun að fullyrða, að hagræðingarmálefni okkar ís- lendinga eru mörgum árum á eftir þeirri þróun, sem nú á sér stað beggja megin Atlantsála. Á- stæðurnar virðast vera marg- víslegar, en þó má fyrst og fremst rekja þær til smæðar fyrirtækjanna og vanþekkingar stjórnenda og starfsfólks þeirra. Eins og yfirskrift þessarar greinar gefur til kynna, verður fjallað um verklýsingar á skrif- stofum. Allir eru sammála um, að verklýsingar eru ekki einung- is nauðsynlegar, heldur sjálf- sagðar, enda hefur gerð þeirra tíðkazt um áraraðir hér á landi. Tilgangur verklýsinganna hef- ur verið að afmarka skýrt og ákveðið verksvið starfs- mannsins og gera honum ljóst, hvar vald- og ábyrgðarsvið hans hefst og endar. Slíkar verklýs- ingar hafa fram til þessa verið ritaðar hér á landi orði til orðs, án þess að beita þeirri aðferð, sem fjallað er um í þessari grein, þ. e. a. s. gerð verklýsinga með táknum. Sú aðferð hefur ýmsa góða kosti og er sá stærstur, að auðvelt er að gera sér grein fyr- ir verkinu og beita ýmsum vinnuhagræðingaraðferðum. Er nauðsynlegt, áður en lengra er 4 HLYNUR

x

Hlynur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.