Hlynur - 15.02.1974, Qupperneq 7
1‘l vinstri er stiórn Starfsmannafélags Kf. Borgfirðinga, Sigþrúður Sigurðardóttir ritari, Þórir Þorvarðarson formaður og
Indriði Albertsson gfaldlceri. Hin myndin sýnir stjórn starfsmannafélags Kf. Hvammsfjarðar, Vnu Jónsdóttur ritara,
Jlartein Valdimarsson formann og Skúla Jóhannsson gjaldkera.
°g var það upphafið að hlið-
stæðum móttökum og greiða-
semi á öllum þeim stöðum, sem
ég átti eftir að heimsækja. Er
'mum og samherjum hér með
Þakkað af heilum hug.
Búðardalur
Afangastaður þennan dag var
Búðardalur. Sóttist vel yfir
Bröttubrekku og þegar til Búð-
ardals kom var barið uppá hjá
Marteini Valdimarssyni, for-
ffl-anns nýstofnaðs starfsmanna-
télags Kaupfélags Hvammsfjarð-
ar- Þá um kvöldið var svo hald-
ihn félagsfundur á skrifstofum
kaupféiagsins. Mæting var
saemileg en eitthvað mun það
hafa dregið úr fundarsókn, að
h^eppsnefndarfundur var á sama
tínia, þar sem „heit“ mál voru
a dagskrá.
Starfsmannafélagið var stofn-
a® 2l- júní í fyrra og sendi það
Þrjá fulltrúa á stofnþing LÍS að
Bifröst, og var í hópi fjögurra
télaga, sem gekk í landssam-
bandið án nokkurs fyrirvara.
Stofnfélagar í starfsmannafé-
laginu í Búðardal voru 32 eða
flestallir starfsmenn kaupfélags-
ins, og eitt fyrsta verkefni fé-
lagsins var að fara í ferðalag
um Borgarfjarðarbyggðir.
Á þessum félagsfundi var
niest rætt um orlofshúsabygg-
ingar og var áhugi fyrir því, að
starfsmannafélagið eignaðist
hús að Hreðavatni. Upplýst var
að starfsmannafélagið kýs nú
einn fulltrúa til setu á öllum
stjórnarfundum og aðalfundi
Kaupfélags Hvammsfjarðar.
Þessi fulltrúi er nú Kristinn
Jónsson og hefur hann tillögu-
rétt og málfrelsi á fundum en
ekki atkvæðisrétt.
Eitt af þeim verkefnum, sem
starfsmannafélagið hyggst beita
sér fyrir, er að gera starfs-
mannaskrá og taka saman
starfsaldur starfsmanna með
það fyrir augum, að á árshátíð-
um félagsins verði veittar við-
urkenningar þeim starfsmönn-
um, sem starfað hafa hjá kaup-
félaginu um ákveðið árabil.
Það var margt sem bar á góma
á þessum fundi og eitt var hug-
mynd um að starfrækja barna-
heimili á vegum starfsmanna-
félagsins og kaupfélagsins. Ég
hygg að það mál sé meira að-
kallandi víða en margur hygg-
ur, og þar sem kaupfélögin eru
allt í öllu og aðalvinnugjafi, þar
er vissulega kominn tími til
þess, að farið sé að huga að
verkefni eins og byggingu
barnaheimila.
í Búðardal eins og reyndar
alls staðar annars staðar á mín-
um ferðum komst ég í kynni við
áhugasamt og einlægt félags-
hyggjufólk, sem sannfærði mig
um tilgang og þýðingu þess að
byggja upp samtök samvinnu-
starfsmanna og tengja saman
félagshyggjufólkið í samvinnu-
félögunum.
Ástæðan fyrir athafnaleysi
liðinna ára er ekki skortur á
fólki til starfa að málum sam-
vinnustarfsmanna. Þetta fólk
hefur hins vegar virkjast til
starfa fyrir nánast öll önnur
félög og að öllum öðrum málum
en þeim er samvinnustarfsmenn
varðar sérstaklega. Hins vegar
hefur félagslegt sinnuleysi, sam-
takaleysi og vantrú forystu-
manna samvinnuhreyfingarinn-
ar á hinum félagslega styrk
starfsfólks samvinnufélaganna
skapað slíkan þyrnirósarsvefn
undanfarin ár, að ekki getur
talist vansalaust fyrir samtök
sem orða sig við félagshyggju á
góðum stundum eins og sam-
vinnuhreyfingin.
Hvammstangi
Á ferðaáætlun miðvikudagsins
var fundur um kvöldið á Blöndu-
ósi. Leit svo út lengi dags að sú
áætlun stæðist, því sama veður-
blíðan hélst þar til komið var
niður í Hrútafjörð. Þá fór að
blásn í mót, og þegar komið var
að vegamótunum niður að
HLYNUR 7