Hlynur - 15.02.1974, Page 13
Arshátíð og starfsaldursmerki
> Reykjavík
Árshátíð SFS í Reykjavík var
haldin að Hótel Sögu 20. jan., og
sótti hana mikið fjölmenni að
vanda. Hátíðin hófst með ávarpi
formanns félagsins, Sigurðar Jóns-
sonar, Skipulagsdeild, en veizlu-
stóri var Geir Magnússon, Fjármála-
deild. Á hátíðinni voru margvísleg
skemmtiatriði, t.d. spurningakeppni
sem Þórður Magnússon, Afurðasölu,
stjórnaði, og einnig stjórnaði Ragn-
ar Jóhannesson, Verðlagningu, al-
mennum söng. Auk þess flutti á-
varp á hátíðinni Eysteinn Jónsson
varaformaður Sambandsstjórnar, og
Erlendur Einarson forstjóri afhenti
starfsaldursmerki. Að þessu sinni
hlaut einn starfsmaður gullmerki
fyrir 40 ára starf, Leifur Þórhalls-
son deildarstjóri í Innflutningsdeild,
eb silfurmerki fyrir 25 ára starf
hlutu Ásthildur Tómasdóttir, For-
stjóraskrifstofu, Einar Jónsson,
Innflutningsdeild, Gunnar Þ. Þor-
steinsson forstöðumaður Teikni-
stofu, Hjalti Pálsson frkvstj. Inn-
f'utningsdeildar, Jónas Valdimars-
s°n, Véladeild, Skarphéðinn Kristj-
ánsson, Véladeild, og Svavar Sig-
Urðsson, Innflutningsdeild.
Leifur Þórhallsson er fæddur að
opnafirði 14. apríl 1912, Foreldrar
nans voru Þórhallur Sigtryggsson
verziunarmaður og síðar kaupfé-
Asthildur. Einar.
lagsstjóri og kona nans Kristbjörg
Sveinsdóttir. Hann fluttist með for-
eldrum sínum tveggja ára gamall
til Djúpavogs og ólst þar upp. Þeg-
ar hann hafði aldur til, fór hann í
Samvinnuskólann og lauk þaðan
prófi. Að því loknu vann hann um
tima hjá Kf. Berufjarðar á Djúpa-
vogi, en réðst síðan til Sambands-
ins 1. jan. 1933 og hefur starfað þar
samfellt í 40 ár, í Bókhaldsdeild, á
skrifstofu Sambandsins í Leith, eh
lengst af í Innflutningsdeild, þar
sem hann starfar enn að fóðurinn-
flutningi. — Leifur er tvíkvæntur.
Fyrri kona hans, Ingibjörg Jóns-
dóttir, er látin, en þau áttu saman
tvo syni. Seinni kona hans er Hilde-
gard, þýzkrar ættar.
Ásthildur Tómasdóttir er fædd í
Reykjavík 24. maí 1929, dóttir
Bjarnínu G. Bjarnadóttur og Tóm-
asar Jónssonar. Hún lauk prófi frá
Kvennaskólanum í Reykjavík vor-
ið 1947 og hóf þá störf hjá Sam-
vinnutryggingum. Vorið 1949 réðst
hún til starfa hjá Sambandinu, og
vann í Fjármáladeild til hausts
1963, er hún hóf störf á skrifstofu
forstjóra, þar sem hún vinnur nú.
Einar Jónsson er fæddur í Snjó-
holti í Eiðaþinghá 9. júlí 1913. For-
eldrar hans voru Jón Sigfússon og
Þorgerður Einarsdóttir búendur þar.
Einar flutti með foreldrum sínum
til Seyðisfjarðar, er hann var fimm
ára, og dvaldi þar næstu tvö árin.
Sjö ára gamall fluttist hann frá
foreldrum sínum að Finnsstöðum í
Éiðaþinghá og ólst þar upp til 16
ára aldurs. Næstu árin átti hann
heimilisfang á Seyðisfirði og vann
við sjómennsku og ýmis almenn
störf í landi. Vorið 1947 fluttist
hann til Reykjavíkur, vann um
stund hjá Landssímanum, en réðst
síðan til Sambandsins haustið 1948.
Vann hann lengi við fóðurblöndun
og almenn vöruhúsastörf, sem hann
vinnur við enn. — Einar er ókvænt-
ur.
Gunnar. Hjalti.
Gunnar Þ. Þorsteinsson er fædd-
ur 17. nóv. 1920 í Gerðum i Garði,
sonur Þorsteins Árnasonar húsa-
smiðs og konu hans Guðnýjar Helgu
Vigfúsdóttur. Gunnar tók próf frá
Iðnskólanum í Reykjavík 1941 og
sveinspróf í húsasmíði 1942. Árin
1944-45 var hann byggingarfulltrúi
í Keflavíkurkaupstað, en hélt því
næst utan til frekara náms og lauk
prófi í byggingartæknifræði frá
Stoekholms Tekniska Institut 1947.
Til Teiknistofu Sambandsins réðst
hann í desember 1948 og hefur veitt
henni forstöðu síðan 1953. — Gunn-
ar var kvæntur Þóru Soffíu Guð-
mundsdóttir, sem nú er látin. Áttu
þau saman fjögur börn.
Hjalti Pálsson er fæddur að Hól-
um í Hjaltadal 1. nóv. 1922. Foreldr-
ar hans voru Páll Zophaníasson
skólastjóri þar, síðar alþingis-
maður og búnaðarmálastjóri, og
kona hans Guðrún Hannesdóttir.
Hjalti varð gagnfræðingur í Reykja-
vík 1938, og búfræðingur frá
Hólum 1941. Síðan nam hann land-
búnaðarverkfræði við háskóla Norð-
ur-Dakotaríkis 1943-45 og við há-
skóla Iowaríkis 1945-47 og lauk
þar prófi 1947. Árin 1948-49 var
hann fulltrúi í Véladeild Sambands-
ins, 1949-1952 framkvæmdastjóri
Dráttarvéla og síðan framkvæmda-
stjóri Véladeildar frá 1952 til 1967,
er hann tók við framkvæmdastjórn
í Innflutningsdeild. — Hjalti er
kvæntur Ingigerði Karlsdóttur, og
eiga þau þrjú börn.
Skarphéðinn. Svavar.
HLYNUR 13