Hlynur - 15.02.1974, Side 15
ar- 03 hreinlætisvörum í heilum
pakkningum til félagsmanna. Er
verð þessa varnings sem næst 10%
undir búðarverði, og er forsendan
fyrir því verði sú, að enginn flutn-
ings- og dreifingarkostnaður falli
á vörurnar utan Birgðastöðvarinn-
ar. Af þeim sökum er þessi tilraun
eingöngu gerð í Birgðastöðinni á
Akureyri, en hún er sem næst mið-
svæðis á félagssvæðinu, þ. e. álíka
langt er til hennar sunnan úr syðstu
dölum Eyjafjarðar sem utan úr
nyrztu byggðum félagssvæðisins
austan og vestan Eyjafjarðar.
Nýr kaupfélagsstjóri í
Vestmannaeyjum
Nýr kaupfélagsstjóri er kominn til
starfa hjá Kaupfélagi Vestmanna-
eyja, og er það Georg Hermanns-
s°n. Hann er fæddur í Reykjavík
16- ágúst 1939, útskrifaðist úr Sam-
vinnuskólanum 1958 og var því næst
um stuttan tíma verzlunarstjóri hjá
Kt Ölafsfjarðar, en réðist síðan til
Kf- Borgfirðinga í Borgarnesi, þar
sem hann var næstu árin við skrif-
stofu- og verzlunarstörf. Á árinu
!961 var hann um hálfs árs bil í
Öanmörku, þar sem hann vann hjá
og sótti námskeið í gluggaút-
stillingum, en árin 1962-66 starfaði
nann hjá Sparisjóði Mýrasýslu í
B°rgarnesi. í árslok 1966 réðist hann
aftur til Kf. Borgfirðinga, þar sem
aim starfaði sem verzlunarstjóri,
°S síðustu tvö árin hefur hann ver-
lð bar búðaeftirlitsmaður og séð um
matvöruverzlanir félagsins. — Georg
er kvæntur Helgu Helgadóttur, og
eisa þau einn son.
Aðalfundur Starfsmannafélags
Samvinnubankans.
Starfsmannafélag Samvinnubank-
ans hélt aðalfund sinn 28. jan. s. 1.
1 skýrslu stjórnar kom fram, að
mikil gróska hefur verið í starfi
félagsins, m. a. tóku um 50 manns
S ‘"4 4/ lí
m w f
gjl WW
j§||
Wf. / .ý - Æf v /!ÉgO/
Kj kS mi r j jff 1 'fA,-
mj \ J/W v. wmL
mm/
Ónnur mynd úr olíukreppunni, sem þarfnast varla slcýringar.
þátt í ferðalagi til Stykkishólms og
út í Breiðafjarðareyjar um Jóns-
messuna, og á annað hundrað
manns sóttu afmælishátíð félagsins
í nóvember. Þá hafa verið haldnir
þrír fundir með stjórnendum bank-
ans á árinu, og einnig er nú kom-
in reynsla á samræmdan vinnufatn-
að starfsmanna, sem áformað er að
viðhalda áfram. Þá er mikil gróska
í pöntunarfélagi starfsmanna bank-
ans, og er hagur þess, sem og fé-
lagsins sjálfs, mjög góður. Stjórn
félagsins var að mestu endurkjör-
in, en hana skipa Gunnar Sigur-
jónsson formaður, Pálmi Gíslason
varaformaður og ritari, Snæþór
Aðalsteinsson gjaldkeri og Rósa
Kristjánsdóttir og Eva Örnólfsdótt-
ir varamenn.
Aðalfundur FSSA
Félag starfsmanna Samvinnu-
trygginga og Andvöku hélt aðal-
fund sinn 30. jan. s. 1. Á fundinum
voru í fyrsta skipti kosnir fulltrúar
starfsmanna í fulltrúaráð trygging-
félaganna, og var kosinn Sverrir
Þór til eins árs, Héðinn Emilsson
til tveggja ára og varamaður þeirra
er Einar Frímannsson. í stjórn fé-
lagsins voru kosnir Einar Frímanns-
son formaður, Halldór Einarsson
varaformaður, Jón Þór Gunnarsson
ritari, Jón Guðmundsson gjaldkeri
og Kjartan Úlfarsson meðstjórn-
andi. í varastjórn sitja Reynir
Hauksson, Sigurður Jónasson og
Matthildur Sif Jónsdóttir. Félagið
á eins og kunnugt er tvö sumarhús
við Hreðavatn, og var samþykkt á
HLYNUR 15