Hlynur - 15.02.1974, Síða 16
fundinum að fela stjórninni að
kanna möguleika á því að byggja
þar eitt hús til viðbótar eins fljótt
og kostur er á.
Viðtal við Harry Frederiksen
Kaupfélagsstjórafundur
Aukafundur kaupfélagsstjóra var
haldinn fyrir skömmu til að fjalla
um þau nýju viðhorf í peningamál-
um, sem hafa skapazt undanfarið
vegna hinna gífurlegu verðhækkana
á mörgum þeim vöruflokkum, sem
samvinnufélögin verzla með. Að
loknum fundinum var gefin út svo-
hljóðandi fréttatilkynning:
„Mánudaginn 4. febrúar 1974
komu kaupfélagsstjórar og forsvars-
menn Sambands íslenzkra sam-
vinnufélaga saman til fundar í
Reykjavík.
Aðalverkefni fundarins var að
fjalla um þann mikla vanda, sem
að steðjar vegna verðhækkana á
ýmsum þýðingarmiklum aðfluttum
vörum, sem vega þungt í verzlunar-
rekstri og þjónustu kaupfélaganna
og Sambandsins.
í framsöguerindi Erlendar Ein-
arssonar forstjóra kom fram, að á-
ætluð aukin fjárþörf á árinu 1974
er um einn miljarður króna, og er
þá við það miðað, að félagsmönn-
um sé tryggður aðgangur að svip-
uðu vörumagni og árið 1973. í þeirri
fjárhæð, sem hér var nefnd, eru
olíuvörur ekki meðtaldar.
Fundurinn taldi sýnt, að engin
ein aðgerð væri til þess fallin að
leysa þann mikla vanda, sem hér
er við að etja.
Ljóst er, að samvinnuhreyfingin
verður að endurskoða stefnu sína
með tilliti til lánsviðskipta, og verð-
ur því óhjákvæmilegt, að banka-
kerfið komi í auknum mæli inn í
fjármögnunarvandamál samvinnu-
verzlunarinnar, eigi henni að takast
að tryggja viðskiptavinum sínum
aðgang að eðlilegu vörumagni.
Fundurinn ályktaði, að teknar
yrðu upp af hálfu samvinnuhreyf-
ingarinnar beinar viðræður við
ríkisstjórn og bankana til þess að
kanna leiðir til lausnar þessum
mikla vanda.“
Framh. af bls. 5.
tollvernd minnkar, verður hún
harðari. Fólkið í landinu getur
þó komið þessum litlu fyrirtækj -
um til hjálpar með því að kaupa
frekar það sem íslenzkt er en
erlent.
— Og að lokum, hver álítur þú
vera brýnustu framtíðarverkefni
Iðnaðardeildar nú í dag?
— Brýnustu framtiðarverkefn-
in eru að mínu áliti annars veg-
ar að auka og efla þann iðnað,
sem fyrir er og alltaf verður að
taka breytingum frá ári til árs,
m. a. vegna samkeppninnar, sem
hann á við að etja, og svo hins
vegar að þróa nýjar iðngreinar
eftir því sem aðstæðurnar leyfa
hverju sinni, og þar held ég að
verði að taka á stóru verkefnun-
um, stóriðju, þar sem raforka og
jarðvarmi, sem landið er svo
auðugt af, eru orkugjafinn.
Meiri fjölbreytni í vinnslu sjáv-
arafurða tel ég einnig koma vel
til greina, og ætti sá iðnaður að
geta verið góð viðbót við frysti-
húsareksturinn úti um landið.
Því verkefni held ég, að þyrfti
að gefa meiri gaum vegna fram-
tíðarinnar.
HLYNIJR þakkar Harry Fred-
eriksen fyrir samtalið. — e.
Síðustu jól
kaupmannsins
á horninu
Eru þetta siðustu jólin, sem
„litli kaupmaðurinn á horninu”
verslar? Alþýðublaðið hafði
samband við nokkra þessara
kaupmanna og spurði þá um
jólaverslunina. Þeir svöruðu
yfirleitt þannig, að augljóst
væri, að viðskipti við þessar rót-
grónu verslanir heföu greini-
lega látið undan siga fyrir stór-
verslunum. Þeir sögðu að visu,
að eldra fólk i gömlu hverfunum
gerði matvöruinnkaup sin að
mestu i litlu búðinni, en það
væri hins vegar ljóst, að allur
þorri fólks keypti til jólanna i
stórverslunum. Kaupmaður i
matvöruversiun. sem starfað
hefur i 45 ár, sagði að frúrnar i
hverfinu kæmu til að kaupa
nokkur egg i jóiabaksturinn,
þegar þær hefðu keypt of naumt
i stórversluninni, og önnur inn-
kaup bæru keim af þessu.
Meira að segja bakari og fisk-
búðir þrifast ekki i gömlu
hverfunum, og eru þess vegna
tið eigendaskipti að þessum
verslunum eða þær eru hrein-
lega lagðar niður.
Óneitanlega er eftirsjón i
þeim persónulegu viðskipta-
háttum, sem nú eru ef til vill að
syngja sitt siðasta, og vist er, að
hverfi þeir úr sögunni verður
litla kaupmannsins saknað af
margri húsmóðurinni og þó sér-
staklega gamla fólkinu, sem á
þess engan kost að fylla kæli-
skápa og frystikistur með stór-
innkaupum i hinum glæsilegu
stórverslunum borgarinnar,
jafnvel þótt þær hafi næg bila-
stæði.
Frétt úr Alþýðublaðinu 22. des, sem við birtum hér til íhugunar þeim, sem
við verzlanarekstur fást.
H L Y N U R
Blað um samvinnumál
2. tbl. 22. árg.
febrúar 1974
Hlynur er gefinn út af Sambandi ísl. samvinnufélaga, Land'sambandi fsl. samvinnustarfsmanna
og Félagi kaupfélagsstjóra. Ritstjórar eru Sigurður A. Magnússon (ábm.) og Eysteinn Sigurðs'on.
Auk þeirra eru í ritnefnd Sigurður Jóns~on og Gunnar Sveinsson. Ritstjórn og afgreiðsla eru hjá
Fræðsludeild Sambandsins, Ármúla 3, Reykjavík. Verð kr. 275.00 érgangurinn. Kemur út mán-
aðarlega. — Prentun: Prentsmiðjan Edda hf.
16 HLYNUR