Hlynur - 15.05.1974, Blaðsíða 4
Kirlcjuvegur 21, þar sem Kf. Vestmannaeyja rak verzlun, en húsið er nú nánast
í hraunjaðrinum.
fyrir einhverjar bætur er ljóst,
að tjón þess er gífurlegt, og mér
sýnist það augljóst, að það hefur
verið gengið á eignirnar til að
halda félaginu gangandi þennan
tíma. Það má nefna það sér-
staklega, að við erum einu húsi
fátækari núna en fyrir gos, og
auk þess hefur mikið af vöru-
birgðum félagsins farið fyrir lít-
ið við flutninga á milli lands og
Eyja og á útsölu í Reykjavík. Þá
er líka annað að athuga í sam-
bandi við þetta, að bærinn hefur
breytzt það mikið, að miðað við
aðalstöðvar okkar hér við Báru-
götu, þá hefur íbúum í nærliggj-
andi íbúðahverfum fækkað það
mikið frá því sem áður var, að
staðsetning okkar er mun lakari
en áður. Samt er það ljóst, að
Bárugatan verður áfram í aðal
miðbæjarkjarnanum, þar sem
allar helztu opinberar þjónustu-
stofnanir, stærstu vinnustaðirnir
og höfnin, auk fjölda sérverzl-
ana, verða áfram þarna í næsta
nágrenni. Verzlun á þessum stað
hlýtur því að byggj ast á því fyrst
og fremst í framtíðinni, að fólk
sæki þangað lengra að á bílum
sínum, og þess vegna sýnist mér,
að þar sé naumast um aðra teg-
und verzlunar að ræða en verzl-
un með vörumarkaðssniði, enda
liggur hún nokkuð miðsvæðis
miðað við umferð að og frá
vinnustöðum, auk þess sem
nægjanleg bílastæði eru í næsta
nágrenni. Verzlunin við Hóla-
götu er hins vegar af þeirri
stærðargráðu, að ég álit mjög
hætt við, að hún geti ekki borið
sig til frambúðar, og ef það
hefði verið farið út í það að opna
verzlun með hefðbundnu sniði
hér við Bárugötuna, þá hefðum
við setið uppi með tvær verzlanir
af þeirri tegund, sem fyrirsjáan-
lega eru á undanhaldi, svo að
þá hefði framtíðin af skiljan-
legum ástæðum ekki verið sér-
lega björt.
— Þú nefndir það, að hér í
Eyjum væ.u of margar verzlan-
ir. Spáir þú því þá, að þeim eigi
eftir að fækka?
— Já, það er mitt álit, að það
séu allt of margar og allt of smá-
ar verzlanir hér, og fyrir bragðið
er engin almennileg verzlun til
hér í Vestmannaeyjum. Það er
hver að hokra í sínu horni án
þess að geta veitt nógu góða
þjónustu. Ég tel sennilegt og
jafnframt æskilegt, að hér verði
sú þróun, sem hefur orðið ann-
ars staðar, að verzlunum fækki
og þær stækki, sem ætti að þýða
það, að þær gætu boðið betri
þjónustu og fjölbreyttara vöru-
val heldur en þær geta núna. Að
því er kaupfélagið varðar, þá
myndi ég telja æskilegt, að það
gæti rekið eina stóra verzlun hér
i Vestmannaeyjum með alla sína
starfsemi á einum og sama
staðnum. Það er þó þýðingar-
laust að tala um slíkt í dag, en
ef til vill kemur þó að því fyrr
eða síðar.
Myndin til vinstri er tekin af Ileimagötu 37 sumarið 1972,þegar félagið rak þar verzlun. Myndin til hægri sýnir, hvernig
þar lítur út nú, og er þá búið að hreinsa mikið af vikri af húsinu.
4 HLYNUR