Hlynur - 15.05.1974, Blaðsíða 6
— Þetta er þá fyrst og fremst
gert til þess að reyna að halda
dreifingarkostnaðinum niðri?
— Já, og meðan núverandi á-
stand ríkir hér, áleit ég, að við
gætum ekki farið út í samkeppni
hér á sama grundvelli og verið
hefur. Það sem af er má líka
segja, að vörumarkaðinum hafi
verið mjög vel tekið, og sú
rekstraráætlun, sem ég gerði fyr-
ir hann í upphafi, hefur mér
síðan virzt standast í grófum
dráttum, að því þó frátöldu, að
salan hefur orðið meiri en ég
gerði ráð fyrir. En á hinn bóg-
inn byggist framtíðin hjá félag-
inu að sjálfsögðu fyrst og fremst
á því, hvernig fortíðin kemur út,
en um það er ekki endanlega
vitað enn. Þannig er t. d. litið
vitað um raunverulegan félags-
mannafjölda hér, hann var um
430 manns fyrir gos, en það
liggur ekki enn fyrir, hvað af
því fólki er komið hingað aftur,
og stjórn félagsins er ekki öll
komin hingað enn. Þá hefur
ekki tekizt að halda aðalfund
iyrir tvö síðast liðin ár, í fyrra
fórst það fyrir af skiljanlegum
ástæðum að halda fundinn fyrir
1972, og í ár er ekki enn búið að
halda fund fyrir 1973.
— En hvað er að öðru leyti
Starfsfólk vörumarkaðarins við opnun, frá vinstri: Ingibjörg Bjarnadóttir, Aslaug
Bjarnhéðinsdóttir, Jóna Kr. Ouðmundsdóttir, Ilanna Bima Jóhannsdóttir og
Sigmar fíeorgsson verzlunarstjóri.
ákaflega aðkrepptir vegna
rekstrarfjárskorts í kjölfar
hinna miklu verðhækkana und-
anfarið á sama hátt og allur
rekstur í landinu. Þá hefur veru-
legur hluti af því starfsfólki, sem
var hjá félaginu fyrir gos, þegar
komið eða er að koma til starfa
aftur, m. a. fimm deildarstjórar,
og ég tel, að við höfum yfirleitt
verið heppnir með starfsfólk.
Það hefur staðið sig vel og verið
áhugasamt við erfiðar og mjög
frumstæðar aðstæður. Annars
hefur það verið mjög sérkenni-
leg reynsla fyrir mig að takast
á við þessi verkefni hér og ólík
því sem ég hef áður kynnzt.
Þetta líkist hvorki þvi að opna
nýja verzlun né breyta gamalli,
heldur er það engu öðru líkt, og
m. a. hefur orðið að mála húsin
hér í hólf og gólf til þess að
losna við gaslyktina, sem annars
verður þrálát.
— Hvernig hefur gengið að
fjármagna þessar framkvæmd-
ir?
— Bókhald félagsins er allt
fært í Reykjavík enn, og það er
ekki búið að Ijúka ársuppgjörinu
fyrir 1973, svo að þar eru ekki
öll kurl komin til grafar. Af
þeirri ástæðu hef ég orðið að
byrja verzlunarreksturinn hér
Vr vörumark-
aðinum að
Bárugötu 7.
um rekstrarhorfurnar að segja
miðað við ganginn síðustu mán-
uði?
— Vefnaðarvörudeildin hefur
gengið vel síðan hún var opnuð
að nýju, og við áætlum að sala
hennar á ársgrundveili verði uin
20—24 miljónir króna. Um bús-
áhaldadeildina er ekki vitað
enn, og auk þess verður bygg-
ingavörusala fyrirsjáanlega snar
þáttur í starfseminni í íramtið-
inni, en þar erum við hins vegar
6 HLYNUR