Hlynur - 15.05.1974, Síða 8
Aðalfundur SAFF
Félag Sambandsfiskframleið-
enda, skammstafað SAFF, hélt
aðalfund sinn í Reykjavík hinn
20. maí, en félagið er eins og
kunnugt er samtök þeirra frysti-
húsa og fiskvinnslustöðva, sem
selja framleiðslu sína í gegnum
Sjávarafurðadeild Sambandsins.
Kemur deildin fram gagnvart
félaginu sem söluaðili þessara
fyrirtækja, og var s.l. ár hið
fimmta í röð, sem sá háttur hef-
ur verið hafður á um starfsemi
hennar.
Á fundinum flutti Árni Bene-
diktsson frkvstj., formaður SA-
FF, skýrslu stjórnar félagsins,
og Guðjón B. Ólafsson frkvstj.
skýrslu um starfsemi Sjávaraf-
urðadeildar á s.l. ári. Kom fram
hjá þeim báðum, að afkoma
frystiiðnaðarins á árinu 1973 var
allgóð, en hins vegar horfir
þunglegar á yfirstandandi ári.
í skýrslu Guðjóns B. Ólafsson-
ar kom m. a. fram, að heildar-
velta Sjávarafurðadeildar á ár-
inu 1973 varð 3,6 miljarðar
króna á móti 2,4 miljörðum 1972
og hafði aukizt um 54%. Útflutn-
ingur deildarinnar var 11,5% af
heildarvöruútflutningi lands-
manna, en ef eingöngu er miðað
við útflutning sjávarafurða, þá
var hann 15,6%. Ef ferskur fisk-
ur og hvalafurðir eru auk þess
teknar út úr myndinni, þá varð
hluti deildarinnar 17,1%.
Auk þess var hlutur deildar-
innar í útflutningi nokkurra
helztu vörutegunda, sem hún
selur, sem hér segir á árinu
1973: Freðfiskur 25,0%, skreið
6,5%, humar 39,5%, rækjur
23,4%, hörpudiskur 30,7%, mjöl
13,1%, grásleppuhrogn 45,8% og
fryst loðna 22,5%. Þá nam heild-
arframleiðsla frystra afurða hjá
frystihúsum á vegum deildar-
innar 21.921 lest árið 1973 á móti
18.036 lestum árið áður og jókst
þannig um 21,5%.
Maikaðshorfur
Þá urðu á fundinum allmiklar
umræður um markaðshorfur er-
lendis fyrir freðfisk, einkum í
Bandaríkjunum. Þar kom það
fram m. a., að á s.l. ári varð
meiri hækk.un þar á söluverði
þorskblokkar en nokkru sinni
áður, því að hún hækkaði úr 48
centum pr. lbs. í ársbyrjun í 82
cent í árslok eða um 70,8%.
Sömuleiðis hækkuðu þorskflök
10x5 Ibs. úr 64,5 centum í 87
cent á árinu eða um 34,9%. Hins
vegar urðu margvíslegar breyt-
ingar á verðgildi gjaldmiðla á
árinu, sem gerðu það að verkum,
að raunvirði þessara afurða hér
á landi breyttist ekki algjörlega
samhliða þessum hækkunum.
Þá kom það fram, að verð-
hækkun frystu afurðanna á
Bandaríkjamarkaðnum hefur
síðustu árin fært íslendingum
drjúga björg i bú. Ef ársútflutn-
ingur landsmanna á þorskflök-
um og blokkum er reiknaður á
söluverðum í janúar 1970 og i
janúar 1974, nemur verðhækk-
unin um 39 milj. Bandaríkjadala
eða 3.430 milj. ísl. kr., miðað við
gengið 88 kr.
Á hinn bóginn hefur það gerzt
undanfarið, að Japanir hafa
stóraukið útflutning sinn til
Bandaríkjanna á fiskblokkum úr
Alaskaufsa. Þessar fiskblokkir
eru seldar á lægra verði en
þorskblok.kin, sem hefur leitt til
þess, að markaðurinn fyrir þær
hefur heldur veikzt á undan-
förnum mánuðum. Hins vegar
eru söluhorfur betri fyrir flök,
og kom fram, að nú sem stend-
ur er lögð á það áherzla, að
frystihúsin hérlendis framleiði
sem mest í flakaumbúðir.
Endurg-reiðslur
Á fundinum kom fram, að ár-
ið 1973 greiddi Sjávarafurða-
deild til frystihúsa og fisk-
vinnslustöðva innan SAFF sam-
tals 25,8 milj. kr. í tekjuafgang,
afslætti vegna veiðarfæra- og
saltkaupa og í vexti af séreigna-
sjóðum. Á s.l. fimm árum hefur
deildin þannig samtals endur-
greitt þessum aðilum 71,7 milj.
kr.
Stjórnarkjör
í stjórn félagsins til eins árs
voru kjörnir þeir Ríkharð Jóns-
son, Þorlákshöfn, Árni Bene-
diktsson, Reykjavík, Marteinn
Friðriksson, Sauðárkróki, Bene-
dikt Jónsson, Keflavík, og Páll
Andreasson, Þingeyri. Varamenn
voru kosnir þeir Jón Karlsson,
Innri-Njarðvík, Ásgrímur Hall-
dórsson, Höfn í Hornafirði, og
Tryggvi Finnsson, Húsavík.
Afkomuhorfur
Þá urðu miklar umræður á
fundinum um afkomuhorfur út-
gerðarinnar og frystiiðnaðarins
á yfirstandandi ári, og að lok-
um samþykkti hann svohljóð-
andi ályktun:
„Aðalfundur Félags Sam-
bandsfiskframleiðenda, haldinn
í Reykjavík mánudaginn 20. maí
1974, bendir á, að hin mikla
þensla, sem ríkt hefur í þjóð-
félaginu að undanförnu, ógnar
nú atvinnuöryggi landsmanna,
þar sem rekstrargrundvöllur
undirstöðuatvinnuveganna er
brostinn. Það er því krafa fund-
arins, að stjórnvöld geri nú þeg-
ar ráðstafanir til, að fiskiðnað-
inum í landinu verði skapaður
viðhlítandi rekstursgrundvöll-
ur.“
Iceland Products, Inc.
Sama dag var einnig haldinn
aðalfundur sölufyrirtækisins Ice-
8 HLYNUR