Hlynur - 15.05.1974, Qupperneq 13
kvæmdastjórinn á það, að viður-
kenna verði, að á undanförnum
árum hafi olíuframleiðslulöndin
fengið lágt verð greitt fyrir vör-
ur sínar. Hins vegar verði að
vona, að þessi lönd beini nú
hluta af auknum tekjum sínum
til að efla félagslega og efna-
hagslega velmegun í þróunar-
löndunum. í þvi sambandi minn-
ir hann sérstaklega á samvinnu-
félögin i þróunarlöndunum, sem
séu mjög þurfandi fyrir stuðn-
ing.
305 milj. félagsmenn
í yfirliti, sem fylgir ávarpinu,
kemur m. a. fram, að innan ICA
eru nú samvinnusambönd í 62
löndum, og þau telja innan
sinna vébanda rúmlega 305 milj -
ónir félagsmanna. Heildarfjöldi
samvinnufélaga er rösklega 630
þúsund, og þar af eru neytenda-
samvinnufélög 66 þús., sam-
vinnusparisjóðir 278 þús., land-
búnaðarsamvinnufélög 165 þús.
°g byggingasamvinnufélög 46
hús. Heildarvelta þessara félaga
á ársgrundvelli er talin um 78
niiljarðar sterlingspunda.
Af hinum 305 miljónum fé-
lagsmanna eru flestir í Evrópu,
eða 146 miljónir, þar af 60 milj-
ónir í samvinnusamtökum Sov-
étríkjanna. Næst á blaði eru
Rúmenia með 13 miljónir félags-
menn og Bretland með 11 milj-
ónir, en af Vesturlöndum eru
annars hæst Vestur-Þýzkaland
með 9 milj. og Frakkland með 7
milj. Af Norðurlöndunum er
Sviþjóð hæst með 3,3 milj., síð-
an Finnland með 1,9 milj., þá
Danmöik með 1,4 milj. og loks
Noregur með 0,8 milj.
Af heimsálfunum kemur Asía
næst með 97 milj. félagsmenn,
har af 59 milj. i Indlandi. Þá
kemur Ameríka með 58 milj.,
þar af 45 milj. i Bandaríkjunum,
og síðan Afrika, þar sem eru
aðeins 2,3 milj. félagsmenn í
samvinnufélögunum. Lestina
rekur svo Ástralia, þar sem fé-
lagsmenn eru röskar 2 milj. Tek-
ið skal fram, að þessar tölur eru
flestar frá árinu 1971, þar sem
nýrri tölur hafa enn ekki feng-
izt frá flestum aðildarlandanna.
- e.
Úr
ýmsum
áttum
Skólaslit Samvinnuskólans
Samvinnuskólanum Bifröst var
slitið miðvikudaginn 1. maí síðast
liðinn. Skólaslitaathöfnin fór fram
í hátíðasal skólans að viðstöddu
fjölmenni. Athöfnin hófst með yfir-
litsræðu fráfarandi skólastjóra, síra
Guðmundar Sveinssonar, sem ráð-
inn hefur verið skólameistari við
fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Nemendur Samvinnuskólans Bif-
röst voru veturinn 1973—1974 83
talsins, 37 í 1. bekk og 46 í 2. bekk.
Þá starfaði að auki framhaldsdeild
Samvinnuskólans í Reykjavík og
voru nemendur í byrjun kennslu-
ársins 10 talsins. Þetta er fyrsti vet-
urinn að framhaldsdeild eða 3.
bekkur er starfræktur á vegum
Samvinnuskólans.
Á föstu starfsliði skólans varð sú
ein breyting á skólaárinu, að Hrafn
Magnússon kennari lét af starfi, en
við starfinu tók Þórir Páll Guðjóns-
son frá Hemru í Skaftártungu, sem
verið hafði verzlunarstjóri Kaup-
félags Árnesinga að Laugarvatni
um skeið. — Óvenjulega margir
aukakennarar störfuðu við skólann.
Þannig kenndu ellefu stundakenn-
arar við framhaldsdeild skólans í
Reykjavík. Allmiklar breytingar
urðu einnig á námsefni svo og
kennsluaðferðum og verður gerð
nánari grein fyrir þessu í skóla-
skýrslu kennsluársins.
Allir nemendur 2. bekkjar, 46 að
tölu, luku burtfararprófi og hefur
aldrei fjölmennari nemendahópur
útskrifazt frá því skólinn var fluttur
að Bifröst. Námsárangur þessa fjöl-
menna hóps var einn sá allra bezti,
sem nokkru sinni hefur náðst í skól-
anum. Ágætiseinkunn hlutu sex
nemendur, þessir: Gísli Gunnlaugur
HLYNUR 13