Hlynur - 15.05.1974, Side 14
Haraldsson frá Hafnarfirði, 9.41
(hæsta einkunn á burtfararprófi frá
Bifröst er 9.42 ); Stefanía Skarphéð-
insdóttir frá Siglufirði, 9.35; Kristín
Einarsdóttir frá Reykjavík, 9.18;
Aðalsteinn Hákonarson frá Akur-
eyri, 9.14; Guðríður Ólafía Magnús-
dóttir frá Akranesi, 9.13 og Selma
Tómasdóttir frá Kópavogi, 9.00. —
Fyrstu einkunn hlutu 39 nemendur,
þar af fengu 26 einkunnina 8.00 og
þar yfir. — Aðra einkunn hlaut einn
nemandi og enginn lægri einkunn.
Að yfirlitsræðu lokinni las frá-
farandi skólastjóri að venju meðal-
talseinkunnir allra nemenda skól-
ans. Þá voru hinum brautskráðu
nemendum afhent prófskírteini sín.
Næst voru verðlaun veitt. Um-
sjónarmenn skólans hlutu viður-
kenningu fyrir störf sín, Kristján J.
Eysteinsson umsjónarmaður í 1.
bekk og Björn Gunnarsson umsjón-
armaður annars bekkjar og skólans
alls. Bókfærslubikarinn hlaut að
þessu sinni Þorgrímur Aðalgeirsson
frá Húsavík. Verðlaun Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur fyrir bezt-
an árangur í vélritun fékk Stefanía
Skarphéðinsdóttir frá Siglufirði, en
skólinn veitti öðrum brautskráðum
nemanda samsvarandi verðlaun,
Sigrúnu Kristinsdóttur frá Siglu-
firði, þar sem árangur þeirra beggja
var jafn og óvenjulegur. Viðurkenn-
ingu frá danska sendiráðinu fyrir
mikla hæfni í dönsku hlutu tveir
nemendur, Gísli Gunnlaugur Har-
aldsson og Guðríður Ólafía Magn-
úrdóttir. Viðurkenningu frá þýzka
sendiráðinu fyrir kunnáttu í þýzku
hlutu fjórir nemendur: Ragnheiður
Guðrún Þórðardóttir frá Reykjavík,
Guðríður Ólafía Magnúsdóttir,
Helga Lóa Pétursdóttir frá Hafnar-
firði og Gísli Gunnlaugur Haralds-
son.
Samvinnustyttuna fyrir kunnáttu
í samvinnusögu fékk Þórólfur Gísla-
son frá Reyðarfirði. — Þá afhenti
formaður Nemendasambands Sam-
vinnuskólans, Pétur Óli Pétursson,
Félagsstyttuna, verðlaunagrip, sem
veittur er sem viðurkenning þeim
nemanda, sem bezt hefur unnið að
félagsmálum. Styttuna hlaut að
þessu sinni Jón Leifsson frá Reykja-
vík.
Skóladúxinn, Gísli Gunnlaugur
Haraldsson, fékk sérstök verðlaun
fyrir frábæran námsárangur.
Hópur eldri nemenda var að
venju við skólaslitin. Af hálfu nem-
enda, er brautskráðust fyrir 25 ár-
Erlendur Einarsson kveður skólastjórahjónin.
um, tók til máls Einar Þorsteinsson
búnaðarráðunautur og tilkynnti
bókagjöf, er send yrði til bókasafns
skólans innan tíðar. Af hálfu nem-
enda, er luku burtfararprófi fyrir
10 árum, talaði Óli H. Þórðarson
skrifstofustjóri og afhenti sérstætt
listaverk. Listaverkið kallast Hring-
ir, en listafólkið Margrét Jóelsdóttir
og Stephen Fairbairn hafa í sam-
einingu unnið og skapað.
Við skólaslitin fluttu að venju
nokkrir heimamanna stuttar ræður.
Fulltrúi 1. bekkjar var Kristján J.
Eysteinsson frá Húsavík, fulltrúi 2.
bekkjar var Ingimar Halldórsson
frá Hnífsdal, en af hálfu kennara
mælti Sigurður Hreiðar Hreiðarsson.
Fyrrverandi skólastjóri, Guðmund-
ur Sveinsson, og kona hans Guðlaug
Einarsdóttir, húsmóðir skólans, voru
kvödd sérstaklega við skólaslitaat-
höfnina. Leopold Jóhannesson veit-
ingamaður í Hreðavatnsskála beindi
þakkar- og viðurkenningarorðum til
skólastjórahjónanna fyrrverandi og
gat sérstaklega um hlut Guðlaugar.
Þá tók til máls Erlendur Einarsson
forstjóri Sambands íslenzkra sam-
vinnufélaga og ræddi um störf og
framlag skólastjórahjónanna til
menntastofnunarinnar að Bifröst.
Sem viðurkenningu frá Samband-
inu færði hann þeim málverk eftir
Eirík Smith og Guðlaugu sérstak-
lega, veglega gjöf. Vegna þessara
sérstæðu tímamóta í sögu skólans
mættu nokkrir forráðamenn sam-
vinnusamtakanna við skólaslitin á-
samt konum sínum, auk Erlendar
Brautskráðir nemendur 3. bekkjar 197j.
14 HLYNUR