Hlynur - 15.05.1974, Síða 15
Einarssonar, Sigurður Markússon,
framkvæmdastjóri Skipulags- og
fræðsludeildar, og Gunnar Gríms-
son, starfsmannastjóri Sambands-
ins.
Undir lok skólaslitanna ávarpaði
fráfarandi skólastjóri hina braut-
skráðu nemendur, flutti þeim
heilla- og árnaðaróskir, en ræddi
síðan sérstaklega um rannsóknir
bandaríska sálfræðingsins Abra-
bams Maslows og niðurstöður þeirra
f ljósi samfélags og menningar á
okkar dögum.
Við skólaslitin söng Jón Sigur-
björnsson, söngvari og leikari, með
undirleik Ragnars Björnssonar,
dómorganista. Setti það sérstakan
svip á hátíðahöldin. Að síðustu söng
nemendakór Samvinnuskólans
nokkur lög undir stjórn Oddnýjar
Þorkelsdóttur frá Borgarnesi.
(Prá Samvinnuskólanum).
Kaupfélagsstjóri á Skriðulandi
Við starfi sem kaupfélagsstjóri
hjá Kaupfélagi Saurbæinga á
Skriðulandi hefur tekið Magnús
Jónsson. Hann er fæddur í Reykja-
vik 21. sept. 1935, lauk sveinsprófi
í rennismíði 1956 og vann við það
næstu þrjú árin. Árin 1959-65 starf-
aði hann hjá Skýrsluvélum ríkis-
ins og Reykjavíkurborgar, og frá
1965 var hann fulltrúi við skýrslu-
vélar hjá Loftleiðum, þar til hann
tók við kaupfélagsstjórastarfinu um
s. 1. áramót. — Magnús er kvæntur
Laufeyju Símonardóttur, og eiga
Þau fimm börn.
Breytingar hjá Fræðsludeild
Um þessar mundir eiga sér stað
ýmsar breytingar á starfi Fræðslu-
deildar Sambandsins. Upp úr miðju
ári er fyrirhugað að sameina tíma-
ritin Samvinnuna og Hlyn í félags-
fnannablað samvinnufélaganna, er
beri heitið Samvinnan. Séra Guð-
nrundur Sveinsson, sem verið hefur
Magnús SigurSur
skólastjóri Samvinnuskólans s.l. 19
ár og jafnframt skólastjóri Bréfa-
skóla SÍS og ASÍ lætur nú af þeim
störfum, en hann hefur verið ráðinn
skólameistari hins nýja fjölbrautar-
skóla í Breiðholti. Þá hefur verið
afráðið að efla mjög starfsemi
Bréfaskólans, m. a. með tilliti til
þeirra nýju hugmynda, sem nú eru
uppi um fullorðinsfræðslu.
Sigurður A. Magnússon, sem verið
hefur ritstjóri Samvinnunnar, verð-
ur nú skólastjóri Bréfaskólans. Gylfi
Gröndal, sem verið hefur ritstjóri
Vikunnar, verður ritstjóri Samvinn-
unnar og blaðafulltrúi Sambandsins.
Haukur Ingibergsson cand. mag.
verður skólastjóri Samvinnuskólans
að Bifröst og stjórnar hann jafn-
framt framhaldsdeild skólans í
Reykjavík.
Sigurður A. Magnússon er fæddur
1928. Hann lauk stúdentsprófi 1948
og stundaði næstu árin háskólanám
í Reykjavik, Kaupmannahöfn, Aþ-
enu, Stokkhólmi og New York, þar
sem hann lauk B. A. prófi í bók-
menntum frá The New School for
Social Research árið 1955. Kennslu-
störf í Reykjavík 1948—1950 og í
New York 1954—1956. Sigurður var
blaðamaður við Morgunblaðið frá
1956 til 1967 og hefur verið ritstjóri
Samvinnunnar síðan. Hann hefur
samið tíu bækur og skrifað mikinn
fjölda greina í innlend og erlend
blöð og timarit, einkum um bók-
menntir og menningarmál. Hann
hefur tekið virkan þátt í félagsmál-
um rithöfunda og er nú formaður
Rithöfundasambands íslands. Sig-
urður er kvæntur Svanhildi Bjarna-
dóttur.
Gylfi Gröndal er fæddur 1936.
Hann lauk stúdentsprófi 1957 og
stundaði um skeið nám í íslenzkum
fræðum við Háskóla íslands. Hann
var ritstjóri Fálkans 1960—1963, rit-
stjóri Alþýðublaðsins 1963—1967 og
ritstjóri Vikunnar 1967—1974. Þá
Haukur Gylfi
annaðist hann um skeið útgáfu
tímaritsins Úrval. Jafnframt hefur
hann fengizt við sjónvarpsþýðingar,
þýtt nokkrar bækur og tekið saman
ævisögur tveggja erlendra stjórn-
málamanna, Roberts Kennedy og
Franklin D. Roosevelt. Gylfi er
kvæntur Þórönnu Tómasdóttur.
Haukur Ingibergsson er fæddur
1947. Hann lauk stúdentsprófi 1967
og hefur síðan lokið eftirtöldum
prófum við Háskóla íslands: upp-
eldis- og kennslufræði 1970, B. A.
próf í sagnfræði og landafræði 1970,
hagfræði (frá Félagsfræðideild)
1971, cand mag. próf í sagnfræði
1973. S.l. vetur var Haukur kennari
við Mýrarhúsaskóla á Seltjarnar-
nesi. Hann er kvæntur Jóhönnu
Margréti Guðjónsdóttur B. A.
-------------------------------
Frakkland
Framhald af bls. 16.
Þannig eru mjólkurstöðvar,
stórar vörugeymslur og korn-
geymslur á síðustu árum svo
til eingöngu reistar með sameig-
inlegu átaki fjöldasamtaka
framleiðenda.
Aðalsamtök franskra sam-
vinnumanna, „Confédération
Fran?aise de la Coopération
Agricole", hafa nýlega gengið í
gegnum umfangsmikla skipu-
lagsbreytingu, sem á að vera í
betra samræmi við þróunina
innan félaganna. Þetta samband
samanstendur af þremur aðal-
hópum, þ. e. sérsamböndum ein-
stakra framleiðslugreina, sam-
tökum heildsöluaðila og hinum
svo nefndu Promocoop-samtök-
um, sem flest stærstu samvinnu-
félög landsins eru aðilar að.
Hafa þau þar bundizt samtök-
um um að samræma markaðs-
aðgerðir sínar og sölustefnu
gagnvart franska ríkisvaldinu,
svo að þetta samband þeirra er
nánast pólitísks eðlis.
Með þessu nýja skipulagi er
vonazt til, að hægt verði að
samræma betur en fyrr söluað-
gerðir félaganna hvarvetna i
landinu. Auk þess er síðan gert
ráð fyrir, að þetta verði til að
efla hina félagslegu samstöðu
innan samtakanna og styrkja
enn samtakamátt þeirra á við-
skiptasviðinu.
HLYNUR 15