Hlynur - 15.02.1975, Síða 3
HLYNUR
1. tbl. 23. árg. 1975
Útgefendur:
LIS og NSS
Útgáfustjórn:
Reynir Ingibjartsson, ábm.,
Guðmundur R. Jóhannsson,
Gunnar Sigurðsson,
Sigurður Jónsson,
Pálmi Gíslason.
Afgreiðsla:
Hamragarðar,
Hávallagötu 24
sími 21944.
Umbrot og myndataka:
Repró s.f
Setning og offsetprentun:
Formprent s.f.
Forsíðumynd:
Tvasr kynslóðir að Bifröst. Til vinstri
et Hörður Haraldsson, sem kennt
hefur að Bifröst þau tuttugu ár,
sern Samvinnuskólinn hefur starfað
Þar, og er nú einn eftir úr hópi
T fyrstu kennara Bifrastar.
' hægrj er Guðmundur Arnaldsson,
sem hóf kennslu við skólann s.l.
aust og veita mun sumarheimili
arovinnumanna að Bifröst forstöðu.
Ljósm. Pétur Óli.
1700
áskrifendur
Sú hefur orðið raunin á að Hlynur er lífseigari en margur hygpur. Pegar
LÍS og NSS gáfu út tvö kynningarblöð fyrir s.l. áramót fylgdi með sú fróma
ósk, að undirtektir lesenda renndu stoðum undir áframhaldandi útgáfu.
Hrundið var af stað umfangsmikilli áskrifendasöfnun og það takmark sett,
að ekki yrði um áframhaldandi útgáfu að ræða í því formi sem þessi tvö
blöð voru, nema a. m. k. 1500 áskrifendur fengust í fyrstu lotu. Takmarkið
náðist og gott betur. Harla var þó árangurinn misjafn eftir félögum og vinnu-
stöðum og jafnvel landshlutum. Sýndi sig þar sem og jafnan áður, að mestu
veldur hver á heldur.
Á Reykjavíkursvæðinu voru undirtektir mjög góðar bæði í Samvinnutrygg-
ingum og í Samvinnubankanum og gerðist talsverður meirihluti starfsmanna
á báðum stöðum áskrifendur. Undirtektir starfsmanna Sambandsins voru við-
unandi en þó harla misjafnar eftir vinnustöðum. Út um land var árangurinn
afar mismunandi. Sé haldið vestur fyrir þá var 100% þátttaka í Stykkishólmi
miðað við fastráðna starfsmenn og í öðrum félögijm á Vesturlandi voru undir-
tektir þokkalegar. Vert er að geta þess að velflestir nemendur Samvinnuskól-
ans að Bifröst gerðust áskrifendur. Á Vestfjörðum var hlutfallið yfirleitt um
helmingur fastra starfsmanna en Hólmvíkingar sýndu þá hugulsemi að senda
áskriftargjöldin með áskriftarlistanum.
1 Norðurlandi vestra er hlutfallið um þriðjungur af föstum starfsmönnum
kaupfélaganna en þegar kemur til Akureyrar lækkar þetta hlutfall allmjög.
Hjá KEA er það um 15% og í verksmiðjunum um 7%. Út á Svalbarðsströnd
er svo þetta hlutfall komið upp í 75%. Austur um til Egilsstaða er árangur-
inn yfirleitt góður. 80% á Kópaskeri og 70% af starfsmönnum Kaupfélags
Héraðsbúa, þar af allir fimm starfsmenn félagsins á Borgarfirði eystra. Síðan
fer he’dur að halla undan fæti nema í Vík í Mýrdal og hjá félögunum á Hvols-
velli og Selfossi er áskriftarhlutfallið af föstum starfsmönnum komið niður í
7—8%. í Hafnarfirði voni svo undirtektir góðar en lakari í Keflavík.
Innan Nemendasambands Samvinnuskólans varð árangurinn líka mjög
misjafn eftir bekkjum en þó gerðust um 270 nemendur áskrifendur auk allra
þeirra, sem starfa hjá samvinnufélögunum og munu með örfáum undantekn-
ingum hafa skrifað sig fyrir áskrift. Er ekki fráleitt að áætla að a. m. k. 400
nemendur og félagar í NSS hafi gerst áskrifendur eða um % og alltaf er all-
stór hópur sem verður útundan, ekki næst til eða ekki er haft samband við
af viðkomandi bekkjarfulltrúa. Einna bestar undirtektir voru hjá yngstu nem-
endum úr Samvinnuskólanum eða í bekk 1974 og eins gerðust nær allir
Samvinnuskólanemendur, sem búsettir eru í Danmörku áskrifendur, en það
er orðinn allstór hópur.
Nú er fyrir höndum að standa við gefin loforð og koma út 6 blöðum á
þessu ári. Pótt allur kostnaður hækki dag frá degi verður staðið við óbreytt
áskriftargjald eða 400 krónur. Pað verður þó að innheimta ekki síðar en á
miðju ári, þar sem útgefendur eiga enga sjóði til að greiða þann kostnað, sem
útistandandi verður við hvert blað. Einnig verður að halda áfram af krafti
við áskriftarsöfnun og stefna að ekki færri en 2000 greiðandi áskrifendum á
þessu ári. R.I.
HLYNUR3