Hlynur - 15.02.1975, Síða 8

Hlynur - 15.02.1975, Síða 8
BIFROST Sumarheimili samvinnumanna Eins og getið var um i 8. tbl. Hlyns á s.l. ári, þá verður ekki rekið hótel á Bifröst næsta sum- ar eins og gert hefur verið mörg undanfarin sumur. Þess I stað er markmiðið að gera Bifröst að nokkurs konar orlofsheimili fyrir samvinnumenn, félagsmenn sem starfsmenn. Einn hinna nýju kennara við Samvinnuskólann, Guðmundur Arnaldsson, hefur verið ráðinn til að skipuleggja og annast -þennan rekstur í sumar. Þvi þótti Hlyns- mönnum ráð að taka hann tali um þessa hluti, iþegar Bifröst var sótt heim fyrir skömmu, ekki síst vegna þess, að timinn líður hratt og mjög æskilegt að þetta takist sem best á sumri komanda. Það var þó heldur takmarkað næði til spjalls, því gamlir nemendur úr Samvinnuskólanum voru í heim- sókn á Bifröst og Guðmundur, sem hefur umsjón með félagslífinu í skólanum þurfti að sjá til þess, að þeir færu ekki heim nema með góðar endurminningar, en núver- andi nemendur héldu þó sóma sín- um i keppni við þá fyrrverandi. Næði fannst þó yfir síðasta kaffi- bollanum, sem drukkinn var á Bif- röst i þetta sinn. Orlofsdvöl í 3 mánuði — Hvenær er áformað að þessi starfsemi hefjlst? — 1 byrjun júní. Aðalfundur Sambandsins verður á Bifröst 5. og 6. júní og strax eftir hann verð- ur hin árlega húsmæðravika fyrir félagskonur í kaupfélögunum. Hugmyndin er, að miðað verði við vikudvöl í senn að öllu jafnaði, en iþó gætu hópar verið styttri tima. Hugmyndin er svo að leigja Bif- 8 HLYNUR röst til ágústloka og starfseminni ijúki hugsanlega með landsþingi LÍS, sem rætt hefur verið um að halda um mánaðarmótin ágúst— september . Rúm fyrir 60 dvalargesti — Hvað geta margir dvalist á Bifröst í einu? Gistirúm er fyrir um 60 manns, sem verða leigð fyrir orlofshópana. Hugmyndin er einnig að halda Viðtal við Guðmund Arnaldsson kennara Bifröst. lausum nokkrum rúmum fyrir samvinnufólk, sem vill dveljast nótt og nótt, en Þá þyrfti að panta þau herbergi með fyrirvara. Ég vil taka það fram í sambandi við þessar breytingar, að fólk verð- ur að líta á þetta sem orlofsdvöl en ekki hóteldvöl. Allur kostnaður verður skorinn niður eins og hægt er t.d. verður fólk látið taka rúm- föt þegar það kemur og skipta á rúmum. Dvalarkostnaður um 2000 krónur á dag —■ Hver er áætlaður dvalar- kostnaður ? — Það er ekki alveg ljóst, en fyrir samvinnufólk, sem dvelur i viku þá verður um að ræða um 2000 krónur á dag. Þetta er þó með fyrirvara um miklar hækk- anir við matarkaup I þessu verði er gisting, tvær máltíðir auk morg- unmatar og kaffi um miðjan dag- inn og kvöldið. Sem sagt, fullt fæði. 1 þessu sambandi er stefnt að því að breyta eldhúsi og mat- sal þanníg, að um teriu verði að ræða og sem mest sjálfsafgreiðsla. Til samanburðar má geta iþess, að á Edduhótelunum er ódýrasta eins manns herbergi með morgun- mat um 1650 krónur. Hér er því um algert lágmarksverð að ræða. Þá má bæta Því við. að jafnframt er aðgangur að allri aðstöðu, sem Bifröst hefur upp á að bjóða t. d. saunabaði, leikfimisal, setustofu og verslun með algengustu ferða- vörur. Tjaldstæði og svefnpokapláss Þá er áhugi fyrir þvi, að fólk sem vill tjalda í nágrenni Bifrast- ar fái einhverja fyrirgreiðslu. Þetta er þó allt á athugunarstigi en t.d. mætti hugsa sér. að vestan við Bifröst yrði komið upp að- stöðu með vatni o. s. frv. Einnig gæti verið um að ræða svefnpoka- pláss heima á Bifröst, en þessu öllu verður að halda innan ákveð- inna marka.

x

Hlynur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.